Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 46
92
NÁTTÚRUFRÆRINGURINN
neytti sinna síðustu krafta lil að halda áfram starfi þessara vina
sinna um það, að auka þekkingu alþýðu á nytsemi jurtanna og
efla matjurtaræktina heima hjá sér og gjöra með því hændum
svo ljóst sem unnt var, hversu jurtirnar gætu komið að almenn-
um notum lil manneldis í hallærum og lækninga í Iæknaleysinu.
Þessu áformi sínu til eflingar samdi liann bækling á síðustu
árum sínum, er liann nefndi: „Grasnytjar, um það gagn, sem
hver búandi maður gæti haft af ósánum villijurtum, sem vaxa í
landeign lians“. (Kaupmh. 1783). Áður gaf hann út ágrip af Mat-
urtabók Eggerts Ólafssonar, sem fyr getur, handa væntanlegum
garðyrkjumönnum. Það var hann, sem fyrstur setti niður jarð-
epli hér á landi í Sauðlauksdal vorið 1759; var það ein af hinum
mörgu gróðursetningartilraunum hans, sem ekki dóu út með lion-
um. Og svo kvað hann:
„Einhver kemur eflir mig, sem hlýtur,
bið ég honum blessunar
er bústaðar,
minn nár í moldu nýtur“.
í formála sínum fyrir „Grasnytjum“ ritar hann (1781): „Með-
an mér vansl handafli til nokkurrar starfsemi, neytti ég Iians
mcð fingrum minum, cn síðan þeirri atorku er lokið, þá neyti ég
þriggja fingra aðcins til pennans og þeirra verk er þessi bækl-
ingur“. .
„Grasnytjar" er talið eitl hið merkasta grasfræðirit á íslenzku
frá sínum tíma, enda varð það mörgum böndanum kært og nyt-
samt, sem ekki var i tölu þeirra, sem „telja sér htinn yndisarð
að annast blömgaðan jurtagarð“ (J. H.) Þeir bændur hafa ávallt
síðan uppi verið hér á landi.
Samt voru ]iað helzt embættismenn landsins, sem fengust við
garðyrkjuna lengi l'ram eftir. Óbeit bænda og búaliðs á „þessu
grasi upp úr moIdinni“ var svo rik, að þeir fengust ekki til að
koma upp hjá sér kálgarðsholu, þó að þeim, sem það gerðu væri
heitið verðlaunum úr konungssjóði.
Öðru miáli var að gegna með hagnýtingu ósánu jurtanna.
Snemma var farið að tína fjallagrös og taka söl og önnur fjöru-
grös til manneldis og fóðurbætis handa kúm; arfi var hafður til
að eyða bólgu á mönnum og skepnum, sár voru grædd með
græðisúrum og undafíflum. Af öðrum jurtum var drukkið seyði
til lækninga við algengustu magakvillum, brjóstveiki og öðrum