Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1943, Blaðsíða 3

Náttúrufræðingurinn - 1943, Blaðsíða 3
Steingrímur Jónsson : Um þurrðir í Hvítá. í 1. liefti Náttúrufræðingsins þ. á. er ítarleg lýsing Guðmundar Kjartanssonar, jarðfræðings, á vatnsþurrðinni í Hvitá þ. 11. nóv. f. á. , : j*j Byggir hann lýsingu sína á eigin athugun árinnar, er þó var eigi gerð fyrr en nokkru eftir að þurrðin varð, og auk þess á munn- legri lýsingu margra manna, er búa meðfram ánni og ýmist höfðu orðið þurrðarinnar varir eða ekki. Virðist höfundi hafa tekizt ágætlega að meta slíkar lýsingar og draga af þeim réttar ályktanir. Athugun hans sjálfs á staðháttum lier volt um góða eftirtekt á verksummerkjum við ána og ágætan liæfileika til að tengja sam- an öll smáatriðin í lcit að orsökum þeirra. Er því lýsingin öll hin skilmerkilegasta og fróðlegasta. Siðar í greininni lýsir höfundur fyrri þurrðum í Hvítá og minn- ist auk þess á Þjórsá, hvortveggja eflir bæði skrifuðum og munnlegum heimildum. Dregur hann af þeim nokkrar almennar ályktanir og bendir á, hversu mikilsvert það væri að fá sem ná- kvæmastar rannsóknir gerðar á þessum náttúrufyrirbrigðum, svo að menn gætu fengið réttari skilning á þeim en verið hefir. Við þessa ágætu grein höfundar langar mig lil að Iiæta nolckr- um atriðum. Þetta mál er ekki aðeins mikilsvert sem almennur þekkingarauki, heldur eiunig frá liagnýtu sjónarníiði i framtíð- inni. Til þessa hafa jökulárnar ekki verið hagnýttar lil orkuvinnslu hér á landi, og er meðal annars orsökin sú, að þær verða ekki beizlaðar nema með liltölulega miklum tilkostnaði, svo að ekki er viðlit að hyrja á hagnýtingu þeirra í smáum stil, er síðar megi við auka. Þær bylta sér svo mjög, að gera verður í þeim mikil vatnsmiðlunarvirki, sem þurfa að gela haldið þeim í skefjum 8

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.