Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1943, Blaðsíða 16

Náttúrufræðingurinn - 1943, Blaðsíða 16
118 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN og er sú aðferðin ef lil vill sú venjulegasta, eða að farið sé að, eins og hér er gert ráð fyrir, að rannsóknarsvæðin séu valin þannig, að þau myndi sem beztar landfræðilegar heildir hvert um sig. í sumum tilfellum myndu þessi takmörk falla saman. Að síku riti sem því, er hér liefir verið lýst þurfa margir menn að starfa, ef það á nokkurntíma alll að sjá dagsins ljós. Ýmsar rannsóknir þarf að framkvæma áður en liægt verður að rita alla þá kafla, sem i efnisyfirlitinu eru nefndir. Áður en II. bindi alls- Iæi'jarlýsingarinnar gæti komið þarf l. d. að fá yfirlit yfir öll sérkennilegustu formin í landslagi íslands, það þarf að ná af þeim góðum myndum á mismunandi þrógunarstigi, og gera þarf glögga grein fvrir myndunarhætti þeirra og þróunarferli. Þá þarf að kanna rækilegar, en gjört hefir verið lil þessa, plöntuleifarnar i fylgilögum surtarbrandsins, og fá úr því skorið frá hvaða tíma (eða timum) þessi gróður er. Ákvarða verður fánu Tjörneslag- anna betur en gjört hefir vcrið. Mildu nákvæmari og rækilegri rannsókn þarf að fara fram á jarðlögum landsins frá hlýviðris- skeiðum jökultímans, og loks, nákvæm könnun á frjóum (pollen) mómýranna verður að framkvæmast. Hér er aðeins drepið á það helzla, sem rannsaka verður i jarð- fræði íslands áður en ný íslandslýsing gæti komið út. Nægir það lil þess að sýna, að ekki verður hlaupið að, að framkvæma verk- ið. Þá er aðeins ein spurning eftir: Er þetla framkvæinalegt eins og sakir standa?. Ég held það. Ég held líka, að þjóðin vilji að þetta sé gert, (smh. allar útgáfur héraðslýsinganna, sem áður var á drepið). Að þessu sinni skal þó ekki rætt hvernig með málið ætli að fara í framkvæmdinni. En ýmsar stofnanir eru til, sem gætu haft forgöngu i því. Bókmenntafélagið hefir verið nefnl (Steindór Steindórsson í áður nefndri grein í Samtíðinni) en eins mætti nefna Menntamálaráð íslands og Rannsóknarráð ríkisins o. fl. Ef til vill væri heppilegast að allar þessar stofnanir stæðu sameinaðar að útgáfunni.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.