Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 14
110
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
aðslýsingum þannig, að þær gætu fallið sem lcaflar inn i nýja
íslandslýsingu ?
Hvernig á ný íslandslýsing að vera um efnisskipun og litlit?
Eg geri ráð fyrir, að ])ar muni sýnast sitt Iiverjum, Það er þó áríð-
andi að strax í upphafi sé komst að svo hagfeldu fyrirkomulagi,
að hægt sé að fylgja því sem nánast við samningu ritsins, og nú
skal ég birta uppástungu mína um þetta efni, þeim til athugunar,
sem málið vilja hugsa.
Mér dettur í hug að íslandslýsingin yrði í tveimur aðalhlutum.
Yrði sá fyrri allsherjarlýsing landsins og skiptist í þrjú bindi.
Síðari hlutinn yrði svæðalýsing (Topografi). Væri landinu skipt í
svæði, eða landshluta og væri eitl bindi um hvert svæði. T. d. myndi
Veslfjarðakjálkinn mynda eitt slíkt svæði, Snæfellsnes annað,
Suðurlandsundirlendð, frá Reykjanesi að Seljalandsmúla, ])að
þriðja, allt hálendi landsins það fjórða o. s. frv. Efni livers bindis
væri gei'ð mjög rækileg skil. Fvlgdu þvi Icort og myndir, eftir því
sem þurfa þætti, landfræðilegar, jarðfræðilegar, veðurfarslegar og
af gróðri og dýrum. Þá væri lýsing merkra sögustaða, örnafna-
skrá o. fl.
í svæðalýsingunni eiga öll fræðiorð að vera kunn úr allsherjar-
lýsingunni. Þaðan á lesandinn strax að vita við hvað er áll þegar
nefnt er ,,hvarfleir“, „misgengi“, „botnurð“, „drumlin“, svo nefnt
sé nokkur luigtök lir jarðfræðinni til skýringar ])ví, sem við er
átt. Um leið og allsherjarlýsingin er, eins og nafnið bendir lii, lýs-
ing á náttúru landsins i heild, liermir hún einnig frá því, með
livaða hætti formin í landslaginu, sem við virðum fyrir okkur
hafa skapazt, m. ö. o. hún á að lcenna á hvern liátt náttúruöflin
vinna.
Til enn frekari skýringar á því, hvernig mér finnst, að nýrri
íslandslýsingu væri bczt fyrir komið um efni og niðurröðun þess,
skal þessum greinarstúf fylgja uppkast af efnisyfirliti. Aðalkaflar
hvers bindis verða þó aðeins nefndir, nema þess, er um jarðfræð-
ina fjallar, þar verður efnisniðurröðunin rakin ofurlítið nánar,
en þó ekki út í æsar.
Fyrri hlutinn: ALLSHERJARLÝSINGIN.
I. Bindi: „Fysisk“ landlýsing.
(Iínattstaðan, stærðin, strendurnar, fjöllin, láglendið o. s. frv.
endar á: landgrunnið og sjórinn umhverfis landið).
| í*,» {*'•?* . i- > *'’» 'C>':;b<íiiO|C>pn'|'i
II. Bindi: Myndun Islands og ævi: