Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 34
136
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Uppi er auðs gaukur
niðri er ná gaukur.“
Ekki ætla ég að lialda fram sannleiksgildi þessara vísuorða,
en vísan bendir til þess, að mönnum liafi ekki verið ókunnugt um
það, að gaukurinn gæti Jmeggjað á jörðu niðri.
Frá síðustu fræðsluferð Hins íslenzka
Náttúrufræðifélags.
Á undanförnum árum liefir náttúrufræSifélagið efnl til fræðsluferöa
um nágrenni Reykjavíkur. Farið hefir verið t. d. til Þiingvalla, um Reykja-
nes, til Eyrarbakka og Stokkseyrar, um Rauðhóla og til Viðeyjar. Hver
þessara ferða hefir aðeins varað daginn eða part úr degi. Þátttakendum
hefir einkum verið leiðbeint i grasafræði og dýrafræði og ofurlítið í
jarðfræði. Nú var hrugðið til þeirrar nýlundu, að fara fjögra daga ferð
um Snæféllsnes. Þátttakendur voru 23, eða eins margir og hægt var að
koma í stóran áætlunarbil. Lagt var af stað með Laxfossi laugardaginn
14. ágúst, til Borgarness. Þaðah ekið að Hamraendum í Breiðuvík. Þenn-
an dag var færra skoðað en ráð hal'ði verið fyrir gert„ vegna óhagstæðs
veðurs. Á sunnudaginn var Búðahraun skoðað, en það er eins og kunn-
ugt er þekkt fyrir fjölskrúðugan gróður. Sunnudagskvöldið var ckið
yfir Fróðárheiði lil Ólafsvíkur og áfram tiil Mávahlíðar og gist þar. Á
mánudaginn var géngið til Grafarness í Grundarfirði. Á leiðinni voru
Búlandshöfði og Brimlárhöfði (Stöðin) skoðaðir, en þeir eru báðir þekkt-
dr fyrir jökultímajarðlög, cr í þeim finnast. Jafnframt því var gróður
athugaður eftir því, sem tími vannst til. Mánudagskvöldið var ekið méð
])il eins og leið liggur til Stykkishólms og þar höfð næturvist. Þriðju-
daginn var haldið með hil yfir Kerlingarskarð til Borgarness og með
Laxfossi til Reykjavíkur um kvöldið. Þennan dag gengu allir á Helga-
fcll (sumir í fyrsta sinni), skoðaðar voru fornar sjávarmenjar við Kaldá
og fleira. — Þegar undan er skilinn fyrsti dagur fer&arinnar var veðrið
alltaf hið ákjósanlegasta, og allir virtust ánægðir með ferðina.
J. Á.
Félagsprentsmiðjan h.f.