Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 14

Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 14
108 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN jökulruðningi. Menn voru sem sagt ekki í neinum vafa um, að þetta væri jökulruðningur. En hvað kom svo upp úr dúrnum við frekari rannskóknir? Það, að nú er það sannað mál, að þessir hólar standa í engu sambandi við jökla, heldur eru þeir leifar gamalla gígtappa. Þessi ruðningur, sem svo mjög líkist jökuiruðningi, hefir komið upp úr iðrum jarðar við gos við tiltölulega mjög lágt hitastig. Alveg sama fyrirbrigðið er þekkt í skozka og færeyska basalt- inu, sem er nátengt hinu íslenzka bergi. Bæði í Færeyjum og í Skot- landi er það fullkomlega sannað mál, að sams konar ruðningur og í Schwaben hefir streymt upp úr jörðunni við gos. Munurinn er að- eins sá, að í Skotlandi var uppruninn strax svo ótvíræður, að þetta efni hefir aldrei, svo að ég viti til verið sett í samband við jökla þar. Nú víkur málinu aftur að íslandi. Ég benti á það, hér á undan, að vænta mætti harðnaðra leðjustraumslaga innan um móbergið, er myndast hefðu við svipuð gos og í Lassen Peak. Einnig mætti vænta þess að lögin hvíldu á fáguðum og rispuðum berggrunni. Nú sjáum við ennfremur, að við tiltölulega köld gos getur blátt áfram komið upp úr jörðunni efni í ruðningslög, er iíkst geta jökul- ruðningi. Hvernig er nú umhorfs hér á landi í þessu efni? Það er skemmst frá að segja, að svona ruðningslög eru allvíða í mó- berginu og á einstaka stað hvíla þau á rispuðum grunni. En þessi lög hafa verið túlkuð senr jökulruðningur, og ég veit ekki til að menn hafi nokkurn tíma velt því fyrir sér, að þau kynnu að vera af öðrum uppruna. Þessi túlkun er þó þegar af þeirri ástæðu ófuilnægjandi, að hún hefir aldrei verið byggð á smásjárrannsókn bergsins, sem er þó harla æskilegt þegar ákveða á eðli fornra bergtegunda. Smásjárrannsóknir fá, að því er mér virðist, illa samrýmst þeirri kenningu, að þetta berg sé gamall jökulruðningur. En einnig frá öðrurn sjónarmiðum er hægt að benda á að sú túlkun sá vafasöm, þó að út í það verði ekki farið hér. Ég get þess aðeins, að ég hefi skoðað suma þá fundarstaði, sem taldir eru sanna bezt að um fornar jökul- urðir sé að ræða og hefi ekki getað sannfærzt urn að túlkunin væri rétt. Sá grunur hlýtur því að vakna, að margt af því, sem hingað til hef- ir verið kallaður forn jökulruðningur í móberginu, sé raunar mynd- un, sem eigi ekkert skylt við jökla, heldur sá fram kominn við gos á sama hátt og lýst var hér að framan. Oft hefir verið talið að gosin í Grímsvötnum gæfu ákveðnar bend-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.