Náttúrufræðingurinn - 1946, Qupperneq 47
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
141
bókina hér í dálkum Náttúrufræðingsins, er fyrst og fremts sú, hve
mikinn fróðleik hún lieí'ir að geyma. í stuttu máli er þess þó enginn
kostur, að gera efni bókarinnar nein veruleg skil; ég kann eigi öðr-
um að .selja betra ráð en það, að kynna sér hinn margvíslega fróð-
leik, sem Vöruhandbókin ber á borð fyrir íslenzka lesendur og í
fyrsta skipti birtist þeim á prenti. Þarna gelur að lesa um alidýr,
afbrigði þeirra og nytjar, um nytjajurtir allra mögulegra tegunda,
hér eru með öðrum orðum bornir á borð veigamiklir kaflar úr dýra-
ifræði og jurtafræði, þótt einkum sé lögð áherzla á hagnýtu hlið
málsins, eins og luin veit að kaupsýslumanninum og framvörðum laga
og réttar. Það sama er að segja um þriðju megingrein náttúruvís-
indanna í þrengri skilningi jarð- og steinafræðinnar. Trúað gæti ég
því, að mörgum fróðleiksfúsum manni þætti gaman að leita til bók-
arinnar til fróðleiks um ýmsa þá muni, senr hann þekkir mæta vel
úr daglega lífinu, eða af afspurn, en fær eigi annars staðar kynnst
af íslenzkri lýsingu. Hvað er til dæmis; Hunang, Arnbra, Moskus,
Negull, Oplátur, Tjana, Jarðvax eða Bik? Hver af þessum efnum
eru sótt beint í skaut náttúrunnar, og liver eru gerð af manna-
höndum? Hvar fást þau? Hvernig eru þau gerð? Hvernig má þekkja
þau? Og að hvaða notum verða þau okkur? Hundruðum, ef ekki
þúsundum, af slíkum fyrirspurnum svanar þessi bók. Þá mega sumir
kaflarnir teljast allveigamiklar ritgjörðir, eins og t. d. kaflinn um
korntegundir heimsins, og kaflinn um áfenga drykki. Efniviður bók-
arinnar er yfirleitt svo umfangsmikill, að hann gæti vel orðið uppi-
staðan í fjöldan allan af smáritum unr hin margvíslegustu efni, al-
menningi til fróðleiks og skemmtunar.
Tollskráin, senr gefin var út 1940, greinist í 87 kafla; eru 27 þeirra
teknir til meðferðar í þessu bindi Vöruhandbókarinnar, en í öðru
bindinu, senr áætlað er að geti komið út á þessu ári, verður fjallað
um kaflana, sem eru númer 28 til 35 í tollskránni. í lokabindi
verksins, sem væntanlegt er á næsta ári, verður lýst vörutegundum,
sem taldar eru í 36. til 87. kafla tollskrárinnar. í ráði er, að út verði
gefin Vöruskrá um það leyti, sem verkinu verður lokið.
Ég get ekki betur séð, en Vöruhandbókin sé höfundi sínum til
Iiins mesta sóma. í liana hefir verið lagt brautryðjandastarf, sem
að mörgu leyti hefir hlotið að vera allerfitt. Að vísu er efniviður-
inn alþjóðaeign, og svipaðar handbækur eru að sjálfsögðu til hjá
öðrum menningðarþjóðum, en það sama mætti segja um nær því
allt annað, sem ritað er á íslenzka tungu, nema þá helzt hreinrækt-
aðar vísindalegar ritgjörðir. En hvað sem því líður, þá er hér að
ræða um glæsilega nýsmíð á okkar máli.