Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 115 jafn miklu kappi og raun var á á friðartímabilinu á milli heims- styrjaldanna, myndi Þýzkaland liafa orðið að gefast upp löngu fyrr en ella, vegna beinnar liungursneyðar og skorts á hráefnum. Það merkilegasta, sem jurtakynbætur Þýzkalands hafa gert, er eflaust kynbætur úlfabaunanna, sem áður voru aðeins nothæfar sem áburðarjurtir, en nú eru orðnar hinar prýðilegustu fóðurjurtir. Úlfabaunirnar bera fræ, sem hafa nær jafn góða eggjahvítu og sojabaunirnar, en vegna þess að í þeim er mikið af liinu eitraða kúmaríni, er ekki liægt að gefa þær sem fóður. Það er kúmarín, sem reyrinn íslenzki ilmar af. Ýmsir ihöfðu reynt að kynbæta úlfa- baunir, en vegna þess að engir eiturlausir stofnar voru þekktir, var ekki hægt að kynbæta þæt á grundvelli gömlu aðferðarinnar. Þjóðverjinn von Sengbusch í Míincheberg ákvað fyrir nær tveim áratugum að reyna að bæta úr þessum vandkvæðum á grundvelli þess, sem kallað er stökkbreyting, en það er það nefnt, þegar nýir, ættgengir eiginleikar verða skyndilega til hjá einhverri jurt. Þegar slík stökkbreyting hefir orðið til, er hún óbreytileg og erfist óbreytt til allra síðari ættliða. Stökkbreytingar eru álitnar vera hin fyrsta or- sök allrar ættgengrar tilbreytni allra lifandi vera. Úrval af handahófi, oftast að mestu leyti óvitandi, af stökkbreytingum hjá ýmsurn jurta- tegundum hefir verið einn aðalþátturinn í sköpunarsögu nytjajurt- anna. En skipulagt úrval stökkbreytinga er aftur á móti kynbótaað- ferð, sem vísindin hafa aðeins notað í tvo áratugi. Stökkbreytingar eiga sér stað hjá öllum lifandi verum úti í náttúr- unni, en þær eru að sjálfsögðu mjög sjaldgæfar samt. Með röntgen- geislum er hægt að fjölga þeim mjög og eins með ýmsum öðrum geislum og efnum. Ef þær snerta einhvern sýnilegan eiginleika, koma þær fljótt í ljós, en þegar einhver ósýnilegur eiginleiki á í hlut, geta þær leynzt ættliðum saman. Kynbæturnar á úlfabauninni byggðust á þessari vitneskju vísinda- mannanna. Það var ekki ósennilegt, að öðru hvoru myndi geta komið fram úlfabaun, sem er laus við eiturefnið. Von Sengbusch ákvað að leita þessi eintök uppi, og hann og aðstoðarmenn hans fundu upp aðferðir til að athuga fljótt, hve mikið er af eiturefni í hverri jurt. Enginn veit, hve mörg eintök af úlfabaunum voru athuguð á þennan hátt í Muncheberg, en þau skiptu eflaust milljónum, því að leitin tók mörg ár. En hún borgaði sig samt margfalt, því að henni lauk með sigri von Sengbusch og aðstoðarmanna lians. Þeir fundu nokkur eintök af úlfabaunum, sem voru eiturlausar, og þær baunir ganga nú undir nafninu „sætar“ úlfabaunir, „Sússlupinen". 8*

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.