Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 32
126 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURIN N Kollstör (C. macloviana D’Urville). Ferjubakki 26. júlí '44, Ærlækur, Oxarfirði, 29. júlí '44. Túnin. Aðeins fundin á þessum tveim stöðum; en þar sem hún finnst hór á annað borð, hlýtur hún að vaxa víðar í héraðinu. Skriðstör (C. Mackenziei V. Krecz). Snartastaðir, Núpasveit, 1. ágúst '44. í blautum mýrum nálægt sjó. Dvergstör (C. glacialis Mackenzie). Algeng á rannsóknarsvæðinu, þar sem skilyrðj til vaxtar eru fyrir hendi. Virðist fylgja Móastörinni fast eftir bæði hátt cg lágt. (Lægst fundin 20. m y. s.) Flóastör (C. limosa L.). Vesturhúskrókur undan Ærlæk I. ágúst 1941. Víða á nefndum stað. Gullstör (C. serotina Mérat). Vesturhúskrókur, Ærlæk, 1. ágúst 1944. Fundin aðeins á einum stað, skammt frá undanfarandi tegund. Flæðastör (C. subspatacea Wormskj.). Snartarstaðir 1. ágúst 1944. f mýrum nálægt sjó. Tegundin er áreiðanlega algengari en ætlað hefir verið. Hvítstör (C. bicolor All). Klifshagaengjar, Öxarfirði. 31. júli 1944. Óx í mjóu belti fram með Sandá. Skrautpuntur (Milium effusum L.). Forvöð, 7. ágúst 1944. Og auk þess allmiklu sunnar í gljúfrinu. Víðast óblómgaður. Hallhöfðaskógur við Jökulsá 8. ágúst 1944. Þar á mörgum stöðum og í blóma. Hjartatvíblaðka (Listera cordata R. Br.). Smjörhólsfell, 8. ágúst 1944. Fann aðeins örfá eintök, óblómguð. Forvöð, 7. ágúst 1944. Hallhöfðaskógur 8. ágúst. Sennilega víðar. Akurarfi (Stellaria graminea L.). Hafursstaðir, Öxarfirði, 7. ágúst 1944. Túnið. Skinnastaður s. st., 8. ágúst 1944. Túnið. Hefur á báðum þessum stöðum vaxið í fjölmörg ár. Verður því að teljast ílendur í Öxarfirði. Snækrækill (Sagina intermedia Fenzl). Valþjófsstaðafjall, 3. ágúst 1944. Sandfell, Öxarfirði, 28. júlí 1944. Lítið á báðum stöðum. Fjallkrækill (Sagina caespitosa Lge). Sandfell, 28. júlí 1944. Aðeins eitt eintak fundið í blóma. Þessi fágæta planta er áður eingöngu fundin í Suður-Þingeyjarsýslu.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.