Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 41

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 41
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 135 bóginn urðu æ algengari. Þar fengu hvalveiðamennirnir og ríku- lega launaða dirfsku sína, því að norðan við heimsskautsbauginn fundu þeir nýja hvalategund, grænlandshvalinn, sem gaf af sér meira lýsi en nokkur hvalategund önnur. A seytjándu og átjándu öld héldu miklir hvalaveiðiflotar árlega norður á bóginn. Voru það einkum Frakkar, Hollendingar, Bretar og Norðurlandabúar, sem stunduðu þessar veiðar. Sum skipin bræddu lýsið í landi á eyjunum Svalbarði, Jan Mayen og Bjarnarey, en önnur skáru spikið niður og söltuðu í tunnur, og var það brætt, þegar heim var komið. Snemma á átjándu öld tók hvalaveiðunum í norðurhöfum að hraka mjög, því að grænlandshvalurinn var þá orðinn mjög sjald- séður, og það var aðeins hið háa verð á skíðunum, sem liélt veið- unum uppi. Að lokum lögðust þær alveg niður, er krínólínan hvarf úr sögunni og stálfjaðrir komu í stað skíðanna í mjaðmabeltum kvenna. Getur varla heitið, að sléttbakar hafi verið veiddir síðan í norðurhöfum. Við austurströnd Bandaríkjanna gerðist sama sagan á sviði hval- veiðanna á átjándu öld, en þar voru jöfnum höndum stundaðar sléttbaksveiðar í norðurhöfum og búrhvelisveiðar í tempruðum höf- um og hitabeltishöfum. A fyrri helmingi nítjándu aldar fóru miklar flotar bandarískra livalveiðiskipa víða um höf, en borgarastyrjöldin og þróun jarðolíuvinnslunnar kipptu fótunum undan hvalveiðum Bandaríkjamanna, og lögðust þær að fullu niður á fyrsta tug þess- arar aldar. Á síðara helmingi nítjándu aldar urðu leiðangrarnir æ lengri og urðu allt að fimrn ára útivistum. Voru í þeim stundaðar jöfnum höndum sléttbaksveiðar í norður- eða suður-höfum, Atlants- hafsmegin eða Kyrrahafsmegin, auk langra ferða um hitabeltisliöfin á búrhvelisveiðum. í þessurn löngu veiðiferðum tóku Bandaríkja- menn upp á því að bræða lýsið um borð á skipunum, og tóku brátt hvalveiðimenn annarra þjóða upp þá nýbreytni þeirra. Til bræðsl- unnar voru notaðir uppmriraðir katlar á þilfari, og var kynt með úrgangsspiki, sem búið var að bræða lýsið úr. Þrátt fyrir eldhættu þá, sem því hefir verið samfara að bræða svo eldlimt efni um borð á tréskipum, urðu þó engir óeðlilega miklir skipsskaðar vegna elds- voða. Hvalveiðarnar voru stundaðar með því að kasta skutlum frá smá- veiðibátum, sem rennt var niður frá móðurskipunum. Voru veið- arnar takmarkaðar við fáar hvalategundir, einkum sléttbaka og búr- hveli, því að það eru einu hvalategundirnar, sem fljóta, þegar þeir eru drepnir. Á árunum í kringum 1860 hafði norski hugvitsmaðurinn Svend

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.