Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 63
r
Þjóðviljinn
blað islenzkrar alþýðn
Halldór Kiljan Laxness ritar:
„Þó að Þjóðviljmn sé ekki alltaf prentvillulaus og margt
megi að honum finna, þá er hann þó ef til vill bezta eign-
in í hverju smáu húsi á landinu. Þetta virðist ekki trúlegt
í fyrstu, en þegar við gætum að, sjáum við fljótt, að fá
vopn voru sterkari en hann í þeirri baráttu, sem háð hefur
verið til þess að bæta gengi vinnandi manna á íslandi.
Alltaf stóð hann fremstur, þegar barizt var um líf og af-
komu launþiggjandi verkamanna, vissulega gat honum
skjátlazt í mörgu atriði, en stefnan var alltaf rétt, af því
takmarkið var að hefja alþýðuna í landinu til betra lífs,
vegsamlegri kjara. Sumu fékk hann framgengt, öðru varð
afstýrt af því Þjóðviljinn gekk fram fyrir skjöldu. Hvenær
sem átti að svipta alþýðuna einhverjum hlut, var Þjóð-
viljanum að mæta. Og hvenær sem alþýðan var þess um-
komin á einhverjuim stað að hefja baráttu fyrir öflum góðs
hlutar, var Þjóðviljinn sterkasta vopnið í höndum hennar.
Ekkert er jafnauðvelt og að benda á -galla hans, en aldrei
í nokkurt skipti brást hann í máli, sem varðaði velferð al-
þýðunnar og eflingu verkalýðsstéttarinnar.“
Alþýðumenn!
Gerizt áskrifendur Þjóðviljans með því( að skrifa eða
hringja til afgreiðslunnar, Skólavörðustíg 19, Reykjavík,
sími 2184.