Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Síða 15

Náttúrufræðingurinn - 1954, Síða 15
ISLENZKIR FUGLAR IX 125 1. mynd. Varpheinikynni skúmsins á íslandi. — The breeding distribution of the Great Skua in Iceland. 1 Rangárvíillasýslu er mun meira un; «kúm. Talið er, að á sand- inum milli ósa Þjórsár og Hólsár verpi nú um 120—150 skúmapör, en hins vegar er ekki vitað til, að skúmur verpi nú á sandinum milli ósa Hólsár og Affalls, enda þótt örnefni á þessu svæði, svo sem Skúmsstaðir (og Skúmsstaðavatn), gætu bent til Jiess, að skúmur hafi áður orpið þar. Austan til á sandinum milli ósa Affalls og Mark- arfljóts er nokkurt skúmsvarp á sandleirunum suður af Bakka, og einnig eitthvað vestur á móts við önundarstaði. Mér hefur ekki tekizt að afla upplýsinga um Jiað, hvort skúmur verpi á sandinum austan við Markarfljótsós, en hins vegar er nokkurt skúmsvarp á Markarfljóts- og Þveráraurum, Jiegar ofar dregur, allt inn á móts við Fljótsdal í Fljótshlíð. Hvergi á þessu svæði er þó mikið um skúm. Loks er nokkurt skúmsvarp á Skógasandi undir Eyjafjöllum (50 -—100 pör). 1 Vestur-Skaftafellssýslu verpur nokkuð af skúm á Sólheimasandi og lítils háttar einnig skammt ofan við fjöruna á svæðinu milli Hús- ár og Klifanda i Mýrdal. Þá er og allmikið skúmsvarp á Mýrdals- sandi, einkum neðan til á sandinum, allt frá Hjörleifshöfða og aust-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.