Náttúrufræðingurinn - 1954, Side 16
126
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ur undir Kúðafljót. Meðfram Kúðafljóti að vestan er varpið mest
suður af Mýrum, en einnig er varp á eyrum í fljótinu sjálfu, svo
sem í svonefndum Körtum suður af Söndum og ef til vill víðar. Talið
er, að skúmur verpi ekki á Meðallandssandi austan Kúðafljóts, l'yrr
en kemur austur á svonefnda Sjávarmela og í Fljótafit við Eldvatn,
en á báðum þessum stöðum er dálítið skúmsvarp. Á sandinum milli
Eldvatns og Skaftáróss verpa 5—10 skúmapör, og í Máfabót austan
Skaftáróss verpur einnig eitthvað af skúm og ef til vill einnig á
sandinum milli Veiðióss og Hvalsíkis. Þá tekur við Skeiðarársandur,
en á honum vestanverðum eru takmörkin milli V,- og A.-Skafta-
fellssýslu. Á Skeiðarársandi eru mestu varpstöðvar skúmsins hér á
iandi, enda er hér um geysivíðáttumikið landflæmi að ræða (1000
km2). Að vísu verpur skúmurinn ekki jafnþétt um allan sandinn.
Mest er af honum neðan til á sandinum, nokkru ofan við fjörurnar,
en miklu minna ofan til á sandinum, enda þótt slæðingur af skúm
verpi alveg upp undir jökul og jafnvel upp á móts við Skaftafell í
öræfum. Á vestanverðum sandinum er skúmsvarpið einna þéttast
á Kálfafellsmelum austan við Nýjaós og á Rauðabergsmelum báð-
um megin við Rauðabergsós. Með tilliti til upplýsinga þeirra, er ég
hef fengið hjá kunnugum mönnum um skúmsvarpið á Skeiðarár-
sandi, ætla ég, að á sandinum verpi alls 3000 skúmapör eða 3 pör
að meðaltali á hverjum ferkílómetra. En eins og áður hefur verið
tekið fram, er langt frá því, að skúmurinn sé jafndreifður um sand-
inn. Sums staðar eru allþéttar byggðir, en annars staðar er skúm-
urinn mjög strjáll. 1 Öræfum austan Skeiðarársands verpur slæð-
ingur af skúm á aurum austan við Hnappavelli. Síðan tekur við
Breiðamerkursandur, en þar er annað mesta varpsvæði skúmsins liér
á landi. Áætla ég, að þar verpi alls 1500 pör. Varpið á Breiðamerkur-
sandi nær frá Vestari Kviá í öræfum alla leið austur á móts við
Breiðabólsstað í Suðursveit. Þéttast er varpið á svonefndum Ný-
græðum vestan við Jökulsá, en allþétt varp er einnig vestan við
Breiðabólsstaðarlón í Suðursveit. Á Steinasandi í Suðursveit hafa
skúmar fundizt verpandi, en aðeins örfá pör. Hins vegar veit ég
ekki til, að skúmar verpi austar í Suðursveit eða í Mýrahreppi vest-
an Hornafjarðar, en það skal þó tekið fram, að heimildir mínar um
þetta svæði eru af mjög skornum skammti. Aftur á móti er nokk-
urt skúmsvarp á ósasvæði Hornafjarðarfljóts, og sömuleiðis verpur
slæðingur af skúm á Suðurfjörum og Austurfjönmi sunnan Horna-
fjarðar og Hamarsfjarðar. Þá er loks nokkurt skúmsvarp á ósasvæði