Náttúrufræðingurinn - 1957, Blaðsíða 21
ÁSTAND EFNISINS í IBRUM JARBAR
15
í (1) og (2) merkir P eðlisþyngd, k er ósamþjappanleiki (incom-
pressibility) efnisins, eða mótstaða þess gegn samþjöppun, og p er
festa (rigidity) efnisins eða mótstaða þess gegn kröftum, sem leitast
við að breyta lögun þess, án þess að rúmmálið breytist. í vökvum
er íestan g mjög lítil, og þá einnig hraði S-bylgja.
Á undanförnum áratugum hefur mikil vinna verið lögð í að út-
búa töflur, sem sýna þann tíma, sem P- og S-bylgjur eru að berast
frá upptökum jarðskjálfta, að stöðum í mismunandi fjarlægð á yfir-
borði jarðarinnar. Nákvæmni þeirra tafla, sem beztar eru, er svo
mikil, að hægt er að reikna, hver sé hraði bylgjanna á ýmsu dýpi
með sæmilegri nákvæmni.
Tölurnar, sem birtar eru hér í töflu I eru árangur af rannsókn-
um Jeffreys, og grundvöllur undir deilingu jarðarinnar í mörg
svæði, svo sem taflan sýnir. Hér á eftir verður gerð nokkur grein
fyrir nákvæmni þeirra talna, sem taflan gefur.
Tafla I.
Svæði Nafn Dýpi (km) a (km/sek) /3 (km/sek)
A Jarðskorpa 0-33 Mjög breytil. Mjög breytil.
B Möttull 33-410 8-1- 9-0 4-4—5-0
C 410-1000 i—i 1 o Ó) 5-0—6-4
D1 » 1000-2700 11-4-13-6 6-4—7-3
D2 2700-2900 13-6 7-3
E Ytri kjarni 2900-4980 8-1-10-4 Talinn núll
F 4980-5120 10-4- 9-5 Ekki athugað
G Innri kjarni 5120-6370 11-2-11-3 Ekki athugað
Svæðin A, B, C og D (ásamt D1 og D2) er það, sem nefnt er mött-
ull (mantle) jarðarinnar. í svæði A eru hraðar bylgjanna meira
breytilegir en í neðri lögum jarðarinnar og er A oft nefnt jarðskorp-
an (crust). Þykkt A er 30—35 km undir meginlöndunum (nokkru
þykkri undir miklum fjallgörðum), en aðeins 5—10 km. undir
meginhluta úthafanna.
í svæðunum B og C er bylgjuhraðinn ekki eins vel ákvarðaður
og í D, og dýpt markanna milli B, C og D er ekki ákvörðuð með
neinni nákvæmni. Einkum eru hraðastiglarnir illa ákvarðaðir. Aug-
ljóst er, að einhvers staðar í svæðunum B og C eru hraðastiglarnir
hærri, þ. e. hraðaaukning með dýpt meiri en meðaltalið (eða ef til
vill snögg hraðaaukning), og sennilegt er, að efnasamsetning sé all-
breytileg í þessum hluta jarðarinnar.