Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 13
Landkuðungaskrá
Hér verður fjallað nánar um út-
breiðslu einstakra sniglategunda og
getið nýrra fundarstaða. Tegundun-
um er raðað samkvæmt viðtekinni
flokkunarvenju.
Ætt: SUCCINEIDAE
Succinea pfeifferi Rossm., mýrabobbi.
12. mynd (C).
Samnefni: Succinea groenlandica,
Oxyloma pfeifferi.
Islenski og grænlenski mýrabobbinn
er talinn sérstök undirtegund, Suc-
cinea pfeifferi Rossm. groenlanclica
Beck.
Mýrabobbinn er útbreiddur á lág-
lendi um allt land. Hann er algerlega
bundinn við deiglendi og finnst helst
í mýrum og við lækjarsytrur, oftast
alveg við vatnsborðið.
COCHLICOPIDAE
Cochlicopa lubrica (Múller),
eggbobbi. 13. rnynd (A).
Samnefni: Cionella lubrica.
Finnst á láglendi um allt land.
13. mynd. A) Cochlicopa lubrica (Múll.),
eggboblji. B) Cocldicopa lubricella
(Porro), gljábobbi.
14. mynd. Columella aspera Waldén,
birkistúfur. A) Ólafsfjörður. B) Kvísker.
Cochlicopa lubricella (Porro),
gljábobbi. 13. mynd (B).
Nokkuð nýlega fundinn hérlendis.
Útbreiðslukortið (2. rnynd) er teiknað
eftir upplýsingum hjá Lindroth o. fl.
(1973). Teikningin er af eintaki frá
Heimaey.
VERTIGINIDAE
Columella aspera Waldén, birkistúf-
ur. 14. rnynd, 6. mynd.
í Zool. of Iceland er getið um teg-
undina Columella edenhda frá Kví-
skerjum í Öræfum. Waldén (1966)
hefur greint þessa tegund sundur í
tvær tegundir. Nýja tegundin nefnist
Columella aspera Waldén, og tilheyr-
ir Kvískerjakuðungurinn henni. Col-
umella edentula hefur enn ekki fund-
ist hérlendis. Columella aspera hefur
nú fundist víðar um landið, og eru
fundarstaðirnir þessir: Svínafellsá og
Bæjarstaðaskógur í Öræfum (Hálfdán
Björnsson). Skaftafell, Öræfum (Lind-
roth 1965 og Hálfdán Björnsson),
Auðnahyrna, Ólafsfirði (höf.). Ólafs-
dalur, Dalasýslu, og Vattarfjörður,
75