Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 47
héldum við Sigmundur Einarsson til
nánari rannsókna á Tvíbollahrauni.
Sunnan undir Helgafelli nokkru aust-
an við áðurnefndan stað er jarðvegs-
torfa lítil við hraunkantinn og þar er
hraunið svo þunnt að auðvelt er að
brjóta það upp með handverkfærum.
Þarna tókum við gryfju og er ekki að
orðlengja það að þarna fundum við
landnámslagið með sínum þekktu
einkennum og var auðvelt að rekja
það inn undir hraunið þar sem efri
hluti þess hverfur í kolaða lagið næst
hrauninu (5. ntynd). Smásjárathugan-
ir á öskunni sýna að Ijósbrot glersins
og plagioklassins passa vel við það,
sem Jens Tómasson (1967) gefur upp,
og er því ekki ástæða til að efast um
að þarna sé landnámslagið komið.
Af ofangreindum staðreyndum má
því ráða, að hvað sem nákvæmni C14
aldursákvarðananna viðvíkur þá hef-
ur þetta gos orðið á þeim tíma þegar
landnám norrænna manna á íslandi
var að hefjast eða nýhafið. Því kann
að vera að gosið í Tví-Bollum við
Grindarskörð hafi verið fyrstu elds-
umbrot, sem forfeður vorir litu aug-
um hér á landi.
Af þessum niðurstöðum leiðir enn-
fremur að fleiri hafa eldgos orðið á
Reykjanesskaga á sögulegum tíma
heldur en fram til þessa hefur verið
vitað, en í þessari grein skal það ekki
rakið.
HEIMILDIR
Gunnlaugsson, Einar, 1973: Hraun á
Krísuvíkursvæði. Háskóli Islands,
Verkfræði og raunvísindadeild (vél-
rituð prófritgerð).
Moorhouse, W. W., 1959: The Study o£
Rocks in Thin Section. Harper &:
Brothers, New York.
Sigurðsson, Gisli, 1976: Selvogsgata. Úti-
vist I. Ársrit Útivistar 1975. Reykja-
vík.
Tómasson, Jens, 1969: Mineralogical and
Petrographical Classification of Ice-
landic Tephra-Layers. The Eruption
of Hekla 1947-1948 (1). Vísindafélag
íslendinga, Reykjavík.
Þórarinsson, Sigurður, 1971: Aldur ljósu
öskulaganna úr Heklu samkvæmt
leiðréttu geislakolstímatali. Náttúru-
fr. 41 (2), 99-105, Reykjavík.
— 1968: Heklueldar. Sögufélagið, Rvík.
Leiðrétting
Á korti því er fylgir grein minni
„Reykjafellsgígir og Skarðsmýrar-
hraun“ í síðasta hefti Náttúrufræð-
ingsins er leiðinleg villa. Þar er eld-
stöð sú, sem er suður af Krossfjöllum,
ranglega nöfnd Raufarhóll og liraun-
ið Raufarhólshraun. Nú hefur Eirík-
ur Einarsson frá Þóroddsstöðum tjáð
mér að þetta sé rangt, svæðið heiti
réttu nafni Dimmadalshæð og gígur-
inn Dimmidalur. Kann ég honum
bestu þakkir fyrir þessa ábendingu,
en mér til afsökunar hef ég það eitt
að ég tók þetta beint eftir korti og
greinargerð í skýrslu Orkustofnunar
um Þorlákshafnarsvæðið en á því
korti eru hraunin úr Dimmadal og
Ásum nefnd „Raufarhóll formation“.
Sbr. H. Tómasson et al. Þorlákshöfn.
Geological Report. Rit OS-ROD
7405 Febr. 1974. Eru lesendur beðnir
afsökunar á þessu og að leiðrétta
þetta á kortinu.
Jón Jónsson.
109