Fréttablaðið - 08.06.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
8. júní 2009 — 134. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ÞRIÐJUDAGSGANGA verður farin um Viðey þriðju-
daginn 9. júní. Gestir fá leiðsögn um eyna og Auður I.
Ottesen garðyrkjufræðingur mun segja frá ræktun að
fornu og nýju á Íslandi og í Viðey. Þá fá gestir kennslu í
sáningu, útplöntun og niðursetningu útsæðis. Siglt er frá
Skarfabakka klukkan 19.15.
Leikkonan Esther Talía Casey býr ásamt Ólafi Agli Egilssyni og dóttur þeirra Ragnheiði Eyju í gömlu húsi í Grjótaþorpinu og kann því vel. Fyrir aftan húsið er stór og mikill garður þar sem Esther nýtur sín hvað best nú þegar sum-arið er gengið í garð. „Þetta er ei i
og svo er ég búin að planta sumar-blómum í potta í kring.“ Aðspurð segist Esther vera með nokkuð græna fingur. „Ég hef allt-af haft áhuga á blómum og garð-rækt og það sama á við um Ólafen við sjáum fram á ðþ
til hreyfings. Við leggjum þó mikið upp úr því að á nýja staðnum verði smá grasblettur. Esther sér fram á að eyða ófáum stundum næstu vikurnar byfir k d
Dyttar glöð að garðinumEsther Talía Casey nýtur sín hvað best í garðinum þar sem hún hefur ásamt sambýlismanni sínum Ólafi
Agli Egilssyni komið sér upp litlum kryddjurtagarði, en bæði deila þau áhuga á blómum og garðrækt.
Esther bograr yfir kryddjurtum og blómapottum á meðan dóttirin Ragnheiður Eyja leikur sér í garðinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Auglýsingasími
VEÐRIÐ Í DAG
Mikið úrval af
upphengdum salernum
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
ESTHER TALÍA CASEY
Ræktar kóríander og
graslauk í garðinum
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Mikið breyst
frá stofnun
Gigtarmiðstöðin fagn-
ar 25 ára afmæli.
TÍMAMÓT 16
ÞORLEIFUR ÖRN ARNARSSON
Tekst á við
Rómeu og Júlíu
Yfirborðskenndur farsi
FÓLK 26
Um verðtrygginguna
„Á síðustu árum hefur verðtrygg-
ingin ekki haft neikvæð áhrif á
lántakendur enda hafa laun hald-
ið í verðlagsþróun og gott betur,“
skrifar Kjartan Broddi Bragason.
Í DAG 14
Spurningakeppni
um fótbolta
Kolbeinn Tumi Daða-
son og Björn Berg
Gunnarsson halda
pöbba-spurninga-
keppni um fótbolta.
FÓLK 26
JANUS BRAGI JAKOBSSON
Heimildarþættir á netinu
um lífið á Vestfjörðum
FÓLK 20
SJÁVARÚTVEGUR Lítill sem enginn
markaður er fyrir hvalkjöt í
Japan, samkvæmt forstöðumanni
innflutningsfyrirtækisins Asian
Trading Co. Ltd. í Japan. Fyrir-
tækið hefur verið aðalkaupandi
afurða Hvals hf. í Japan.
Forstöðumaðurinn segir að fyrir-
tækið ætli ekki að flytja inn hval-
kjöt frá Íslandi í ár. Þetta kemur
allt fram í upptöku af símasamtali
milli manns frá Greenpeace og for-
stöðumannsins frá því 7. maí, sem
Fréttablaðið hefur undir höndum.
Í samtalinu segir forstöðu maður-
inn að Japanar borði lítið sem ekk-
ert hvalkjöt lengur og unga fólkið
sé afhuga því. Neysla á hvalkjöti
er um 4.000 tonn árlega í Japan,
samkvæmt forstöðumanninum,
þar með talin neysla á höfrung-
um.
Kristján Loftsson, framkvæmda-
stjóri Hvals, segir að ætlunin sé að
selja allar langreyðarnar til Jap-
ans í gegnum Asian Trading. Um
150 langreyðar á að veiða, sem
gera a.m.k. um 6.000 tonn. Í fyrra
flutti Hvalur hf. um 80 tonn til
Japan í gegnum Asian Trading.
„Það geta allir deilt um það til
eilífðar hvað Japanar borða mikið
á ári,“ segir Kristján. Hann segir
lægð vera í efnahagnum í Japan
sem stendur og verð hafi lækkað,
en hann hafi ekki áhyggjur af því
að enginn markaður sé í Japan.
„Menn eru ekki að hugsa bara
til ársins í ár heldur til framtíð-
ar. Að komast í gang eftir svona
langan tíma er mjög dýrt,“ segir
Kristján.
Kristján segist hafa talað við
forstöðumann Asian Trading og
hann hafi neitað því að hafa talað
við Greenpeace.
„Ef þetta er samtal við hann þá
er þetta eitthvað sem Greenpeace
hefur búið til. Þeir vinna þannig,“
segir Kristján.
Í samtali við Fréttablaðið stað-
festi maðurinn, sem Greenpeace
segist hafa talað við, að hann væri
forstöðumaður Asian Trading.
Hann vildi hins vegar ekki tjá sig
frekar um málið.
Nokkrir félagar í Greenpeace
komu til Íslands í gær, sunnudag,
til að eiga fund með stjórnvöldum
og stjórnmálamönnum.
„Ástæða þess að við erum að
koma er að við viljum sýna stjórn-
völdum fram á að það sé enginn
markaður fyrir hvalkjöt í Japan,“
segir Wakao Hanaoka hjá Green-
peace í Japan, sem átti samtalið
við forstöðumann Asian Trading
fyrir hönd samtakanna. - vsp
Sala hvalkjöts er í uppnámi
Innflutningsfyrirtækið sem Hvalur hf. hefur skipt við ætlar ekki að flytja inn hvalkjöt til Japans. Ársneysla
á hvalkjöti þar er um 4.000 tonn. Langreyðar sem flytja á út eru um 6.000 tonn.
Tap gegn
Hollandi
Möguleikar
Íslands á að
ná öðru sæti síns
riðils minnkuðu
verulega eftir tap
gegn Hollandi.
ÍÞRÓTTIR 22
SÚLD VESTANTIL Í dag verður
hæg vestlæg eða breytileg átt,
bjart með köflum suðaustan- og
austan til en skýjað að mestu
norðvestanlands. Dálítil rigning
eða súld af og til, einkum vestan-
lands. Hiti 8-14 stig.
VEÐUR 4
11
9
10
9
12
14
FURÐUFISKAR VÖKTU LUKKU Á Bótabryggju gaf um helgina að líta ýmsa fiska sem Hafrannsóknastofnunin hefur sankað að sér.
Þar voru til sýnis helstu nytjafiskar við Íslandsstrendur auk fjölmargra fiskitegunda sem finnast í úthafinu og koma sjaldan fyrir
sjónir almennings. Má þar nefna Gulldeplu og Bramafisk. FRETTABLAÐIÐ/VILHELM
Belgíska ríkissjónvarpið:
Vildu mynda
undaneldi
FÓLK Belgíska ríkissjón-
varpið lét taka upp þátt um
íslenska hestinn um helgina.
Farið var
með hóp-
inn í hesta-
ferð og var
komið við
á Kjóa-
stöðum og
Þórodds-
stöðum.
Þáttur-
inn, sem
er mikils
metinn í
heimalandinu, fjallar um
dýralíf í ýmsum löndum og
er sýndur á besta tíma.
Leiðsögumaður Íshesta,
Svan dís Dóra Einarsdóttir,
leiddi hópinn um Austur-
land, en beðið var sérstak-
lega um kynni við íslensku
sauðkindina. Þá vildu sjón-
varpsmennirnir ná myndum
af íslenskum stóðhesti að
verki, en til þessa var farið
á Þóroddsstaði, og heimsótt-
ur einn fremsti stóðhestur
landsins, Þóroddur sjálfur.
- kbs / sjá síðu 26
SVAN DÍS DÓRA
EINARSDÓTTIR
STJÓRNMÁL Samkomulag um skuld-
bind ingar Íslendinga vegna
Icesave-innistæðna verður til
umræðu á Alþingi í dag. Baldvin
Jónsson, sem er í stjórn Borgara-
flokksins, hefur boðað til mótmæla
á Austurvelli klukkan þrjú þar sem
því er mótmælt að gengið verði að
þessu samkomulagi.
Þórólfur Matthíasson hagfræði-
prófessor segir að Íslendingar
megi nokkuð vel við una þótt hann
skilji vissulega gagnrýni þeirra
sem hefðu viljað láta á það reyna
að fá hagstæðari úrlausn. Segir
hann það mikilvægt að með sam-
komulaginu sé komið í veg fyrir að
Íslendingar lendi í skaðabótamál-
um fyrir að mismuna kröfuhöfum.
Einnig sé mikilvægt að sett hafi
verið hámark á þann skaða sem
við hljótum af málinu og hann sé
lægri en það sem miðað var við
þegar gert var upp við íslenska
kröfuhafa. Einnig séu möguleikar
á að málið verði endurskoðað eftir
sjö ár þegar tvenn stjórnarskipti,
að minnsta kosti, hafi átt sér stað
í Bretlandi.
Eiríkur Bergmann stjórnmála-
fræðingur segist hins vegar eiga
erfitt með að skilja af hverju
Íslendingar reyndu ekki að vinna
þeim málstað fylgis að Bretar ættu
að sitja uppi með skuldbinding-
arnar. - jse / sjá síðu 4
Stjórnarmaður í Borgarahreyfingunni boðar til mótmæla á Austurvelli:
Icesave-sátt rædd á Alþingi