Fréttablaðið - 08.06.2009, Side 10
10 8. júní 2009 MÁNUDAGUR
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
65
22
0
5/
0
9
*Flug aðra leiðina með sköttum.
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
STJÓRNMÁL Nýafstaðnar kosning-
ar á Íslandi og á Indlandi verða
til umræðu á málþingi í Háskól-
anum í Reykjavík í dag klukkan
12.
Sivaraman Swaminathan,
sendiherra Indlands, og Ólafur
Þ. Harðarson, prófessor í stjórn-
málafræði, munu fjalla um þann
lærdóm sem megi draga af kosn-
ingunum. Í síðustu kosningum
á Indlandi, sem er fjölmennasta
lýðræðisríki heims, gátu 714
milljónir manna valið á milli
rúmlega þúsund flokka. Kjör-
staðir voru tæplega milljón tals-
ins í 35 fylkjum og 543 kjördæm-
um. - þeb
Málþing um kosningar:
Elsta og stærsta
lýðræðisríkið
ALÞINGI Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra var ekki kunn-
ugt um það fyrir
fram að Össur
Skarphéðinsson
utanríkisráð-
herra væri á leið
í opinbera heim-
sókn til Möltu.
Þetta sagði
hún á Alþingi
á föstudaginn
þegar hún svar-
aði fyrirspurn
framsóknarmannsins Gunnars
Braga Sveinssonar um málið.
Jóhanna sagði ekkert óeðlilegt
við ferðina eða það að hún hefði
ekki vitað af henni, enda væru
ferðir utanríkisráðherra að öllu
jöfnu ekki bornar upp í ríkis-
stjórn. Á Möltu ræddi Össur við
ráðamenn um reynslu þeirra af
samningaviðræðum við ESB. - sh
Jóhanna Sigurðardóttir:
Vissi ekki um
Möltuferðina
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
DÝRAHALD Búið er að urða hross
sem voru dauð í skurði og við
heyrúllur á bænum Ánastöðum
á Mýrum. Héraðsdýralæknir og
búfjáreftirlitsmaður höfðu farið
í eftirlitsferð á staðinn í vor. Þeir
sáu þá mörg dauð hross í skurði
sem hálfpartinn hafði verið grafið
yfir og hræ af folaldi hafði verið
troðið niður við heyrúllur sem
gefnar höfðu verið. Hræ af einu
hrossi var einnig í skurði sem var
fullur af vatni.
„Við fórum þarna á laugar-
daginn síðasta, því þá gat eig-
andi hrossanna verið með okkur,
og fórum yfir stöðu mála,“ segir
Gunnar Gauti Gunnarsson, héraðs-
dýralæknir Borgarfjarðar- og
Mýrasýslu. Hann segir að eig-
andinn hafi þá, að boði yfirvalda,
verið búinn að ganga sómasam-
lega frá hræjum hrossanna sem
hann hafði sjálfur lógað. Ástand
hrossanna sem eftir lifðu sé við-
unandi. Eigandinn hafi bent á
fimm hross úr hópnum sem hann
hyggist lóga í haust. Mönnum sé
leyfilegt að lóga eigin hrossum og
urða sómasamlega í eigin heima-
landi.
„Við munum mæta aftur á stað-
inn í haust til eftirlits,“ segir
Gunnar Gauti. „Svo þarf eigandi
hrossanna að útvega sér tilsjón-
armann þar sem hann býr sjálfur
ekki á staðnum. Sá þarf að hafa
daglegt eftirlit með hrossunum í
vetur.“ - jss
ÚTIGJÖF Skylt er að hafa tilsjónarmann
með hrossum, búi eigandinn ekki á
staðnum.
Hrossahald á Ánastöðum á Mýrum áfram undir eftirliti:
Eigandi búinn að urða hrossin
NÁTTÚRA Hrossagaukur sást í tré í
Heiðmörk á miðvikudaginn. Aðal-
steinn Agnarsson tók myndirnar,
en hann var á göngu þar. Þetta er
ekki algeng sjón, en eins og sjá má
af einni myndinni grípur hrossa-
gaukurinn þéttingsfast í greinarn-
ar til að halda sér í.
„Hrossagaukar verpa oftast í
skóglendi en ég man ekki eftir
að hafa séð þá sitjandi uppi í tré.
Maður sér þá hins vegar oft á girð-
ingarstaurum,“ segir Ólafur Karl
Nielsen, doktor í vistfræði, sem
jafnframt staðfesti að um hrossa-
gauk væri að ræða.
Hrossagaukurinn er af strand-
fuglaætt. Hann er þekktastur
fyrir fagran söng þar sem hann
hneggjar á flugi. Fuglinn kemur
til Íslands í apríl eftir vetrardvöl
á Írlandi. Heimkynni hans eru
mýrar, fen, túndrur og votir hagar.
- vsp
Óalgeng sjón blasti við göngumanni í Heiðmörk:
Hrossagaukur sást uppi í tré
TRJÁGAUKUR Doktor í vistfræði man ekki eftir að hafa séð hrossagauk uppi í tré.
MYND/AÐALSTEINN
SVEITARSTJÓRNIR Fulltrúar Sam-
fylkingarinnar í menntaráði
leggja til að efnt verði til ritsmíða-
samkeppni
meðal barna
og unglinga til
heiðurs Guð-
rúnu Helgadótt-
ur rithöfundi.
„Ritsmíða-
verðlaun
menntaráðs
verði veitt
árlega þeim
reykvísku nem-
endum sem sýna leikni í skap-
andi skrifum. Fyrstu verðlaunin
verði veitt á fyrstu Barnalista-
hátíð Reykjavíkur, sem fram fer
vorið 2010,“ segir meðal annars
í tillögunni. Afgreiðslu hennar
var frestað á fundi menntaráðs
Reykjavíkur á miðvikudag.
- gar
Guðrún Helgadóttir:
Verði heiðruð
með samkeppni
GUÐRÚN
HELGADÓTTIR
GEOFFROY‘S MARMOSET Apafeðgar
af Geoffroy‘s marmoset-kyni láta fara
vel um sig í dýragarðinum í Tel Aviv
í Ísrael. Náttúruleg heimkynni þessa
apakyns er í frumskógum Brasilíu.
NORDICPHOTOS/AFP