Fréttablaðið - 08.06.2009, Side 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ÞRIÐJUDAGSGANGA verður farin um Viðey þriðju-
daginn 9. júní. Gestir fá leiðsögn um eyna og Auður I.
Ottesen garðyrkjufræðingur mun segja frá ræktun að
fornu og nýju á Íslandi og í Viðey. Þá fá gestir kennslu í
sáningu, útplöntun og niðursetningu útsæðis. Siglt er frá
Skarfabakka klukkan 19.15.
Leikkonan Esther Talía Casey
býr ásamt Ólafi Agli Egilssyni
og dóttur þeirra Ragnheiði Eyju í
gömlu húsi í Grjótaþorpinu og kann
því vel. Fyrir aftan húsið er stór
og mikill garður þar sem Esther
nýtur sín hvað best nú þegar sum-
arið er gengið í garð.
„Þetta er eiginleg sameiginlegur
garður Grjótaþorpsins með tramp-
olíni og leiksvæði fyrir börnin en
þar höfum við Ólafur komið okkur
upp litlum kryddjurtagarði sem er
uppáhalds reiturinn minn í augna-
blikinu. Þar erum við að reyna að
rækta jurtir eins og myntu, kórí-
ander, graslauk og steinselju. Við
erum með þetta í sérstökum kassa
og svo er ég búin að planta sumar-
blómum í potta í kring.“
Aðspurð segist Esther vera með
nokkuð græna fingur. „Ég hef allt-
af haft áhuga á blómum og garð-
rækt og það sama á við um Ólaf,
en við sjáum fram á að sameinast í
þessu í ellinni. Við erum hins vegar
bara að leigja hér í Grjótaþorpinu
og þá er ekki hægt að leggja garð-
inn undir sig og nauðsynlegt að
finna önnur ráð. Við erum bara
með þetta á afmörkuðum bletti
sem ég held að hljóti að vera í lagi
enda held ég að enginn hafi nokk-
uð á móti blómum. Draumurinn er
svo að eignast eigin garð og við
erum aðeins farin að hugsa okkur
til hreyfings. Við leggjum þó mikið
upp úr því að á nýja staðnum verði
smá grasblettur.
Esther sér fram á að eyða ófáum
stundum næstu vikurnar bogr andi
yfir kryddjurtunum á meðan dóttir-
in hoppar á trampolíninu en sumar-
fríið er á næsta leiti eftir anna-
saman vetur. „Síðustu sýningar
á Kardimommubænum verða um
miðjan júní en um svipað leyti ætla
ég að mæta hress og kát á Grímuna
þar sem ég var tilnefnd fyrir leik í
jólasýningunni Sumarljósum. Í lok
sumars taka svo æfingar á Frida
Viva la Vida við en verkið verður
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í haust.“
vera@frettabladid.is
Dyttar glöð að garðinum
Esther Talía Casey nýtur sín hvað best í garðinum þar sem hún hefur ásamt sambýlismanni sínum Ólafi
Agli Egilssyni komið sér upp litlum kryddjurtagarði, en bæði deila þau áhuga á blómum og garðrækt.
Esther bograr yfir kryddjurtum og blómapottum á meðan dóttirin Ragnheiður Eyja leikur sér í garðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Óseyri 2, Akureyri, 461 1150 • Opið virka daga kl. 12:00-18:00 – laugardaga kl. 12:00-16:00 • www.svefn.is
HEILSUDYNUR OG HEILSUKODDAR
Eitt með öllu
SUMARTILBOÐ
á stillanlegum rúmum
Ný tilboð
sjá www.svefn.is
Íslenskir botnar
Íslensk framleiðsla
Íslenskir svefnsófar
Margir litir í boði
Vinsælasta
stillanlega
rúmið
hjá okkur
Auglýsingasími
– Mest lesið