Fréttablaðið - 08.06.2009, Síða 31
MÁNUDAGUR 8. júní 2009 19
– fyrir alla sem elda –
www.ms.is/gottimatinn
nýr vefurtímaritið gott í matinn
Ekki láta tímaritið Gott í matinn, sem dreift er á öll heimili,
fram hjá þér fara. Tímaritið er sneisafullt af girnilegum og
gómsætum réttum sem allir geta eldað.
taktu persónu-leikaprófið
hvernig eldar þú ?www.ms.is/gottimatinn
Finndu uppskriftir að gómsætum réttum með
Gott í matinn vörunum á www.ms.is/gottimatinn.
í matargerð þjóðarinnar
undirstaðan
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
1
9
2
Ég elda, þess vegna er ég
Tími sumarfarsanna er ekki lið-
inn: nú er að skýrast hvað verður
á boðstólum hér syðra af leik-
sýningum: Pétur Jóhann heldur
áfram sýningum sínum í stóra
sal Borgarleikhúss og á nýja sviði
leiðir Ari Matthíasson sitt lið í
gömlum hittara eftir Dario Fo.
Þá eru ónefndar þrjár leikkonur
í Gamla Bíói með gamanmál um
kyn sitt og framundan er endur-
reisn í Loftkastalanum með frum-
sýningu á Grease. Með tveimur
sýningum í Borgarleikhúsi má
spyrja hvort Magnús Geir ráð-
ist í að opna rekstur leikhússins
allt árið, láti af þessari kjánalegu
sumarlokun reglulegrar starf-
semi. Ekki þarf að velta fyrir sér
stöðu Þjóðleikhússins í því máli:
þar verður allt lokað næstu sextíu
sumur eins og hin sextíu sem liðin
eru. Víst er það sóknarfæri fyrir
aðra leikflokka ef leikhús sem
þiggja stóra styrki af opinberu fé
loka í nær fjórðung af ári.
Þess vegna er Ari að endur-
vekja gamalt verkefni, láta vinna
af því nýja textagerð sem er snið-
in að hruninu og kalla Þröst Leó
aftur til starfa við að setja Við
borgum ekki eftir Dario Fo í
gang í þriðja sinn. Frumsýningu
á laugardagskvöld var harla vel
tekið enda er það dauður maður
sem ekki hlær af dellukenndum
farsa Fo. Hann hefur eina yndis-
legustu endalínu í gjörvöllum
leikbókmenntum vesturlanda.
Sýningin var líka kraftmikil:
Maríanna Clara, Halldór Gylfa-
son, Ari sjálfur leika hér af mikl-
um krafti. Jóhann og Þrúður eru
í hinum erfiðu hlutverkum að
vera stoðir undir fyrirferðar-
mikil trúðshlutverkin þrjú. það
er mikið at, uppákomur býsna
fyndnar og mikill bægsla gangur.
Eins og oftast í försum eru mann-
gerðirnar það sem fyndið er og
þurfa þá ekki endilega að hafa
eitthvað skemmtilegt að segja.
Jóhann sem Ari leikur er leiðin-
dagaur, var á sínum tíma í leik-
riti Fo dyggur kommúnisti, en
er nú bara heiðarlegur meðaljón
sem vill hafa allt sitt á hreinu og
skulda engum neitt. Konan hans
Antonía er aftur fyndin því hún
hæðist stöðugt að manni sínum og
vinkonu og þvælir þeim báðum í
vef lyga og blekkinga sem þau
hvorugt kunna að meta. Svo
er hinn klassíski aðkomumað-
ur sem alltaf er leikinn af sama
leikaranum og hrindir atburða-
rásinni áfram.
Það er engum blöðum um
það að fletta að þau Halldór og
Maríanna keyra þessa sýningu
áfram og hún væri svipur hjá sjón
án þeirra. Hin þrjú gera þetta
eftir bókinni: Þrúður til dæmis
óttaleg gufa og Jóhann hreinn
kjáni þó hann leyni á sér og stal
senunni gersamlega í eina, tvær
mínútur, svo enginn sá né heyrði
hvað var annað að gerast á svið-
inu.
Ég hef efasemdir um stað-
færsluna, sumt er fyndið hjá
Magneu, annað ekki. En þetta var
hressandi kvöldstund. Samt ein-
hvern veginn eins og út úr kú af
því staðfærslan virkar ekki alveg
en uppákomurnar eru óborgan-
legar og Maríanna og Halldór
gamanleikarar af guðs náð.
Páll Baldvin Baldvinsson
Á sumrin skemmti ég mér
LEIKLIST Margrét (Þrúður) dælir vetni í taugatrekktan sérsveitarmann (Halldór) og
Antonía (Maríanna) áttar sig á skelfilegum mistökum. MYND/NÝJAÍSLAND/LR/LA
LEIKLIST
Við borgum ekki, við borgum
ekki
eftir Dario Fo
Þýðing og staðfærsla: Magnea Matthí-
asdóttir
Leikstjóri: Þröstur Leó Gunnarsson
Leikmynd: Stígur Steinþórsson
★★★
Óborganlegur farsi í þokkalegri svið-
setningu.
Auglýsingasími
– Mest lesið