Fréttablaðið - 11.06.2009, Page 35
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009
Í safninu eru um 2.000 steinar.
Steinasafnið í Breiðdal er nú opið
þriðja sumarið í röð en það er til
húsa í gamla pósthúsinu í Breið-
dal við hlið Hótels Bláfells. Stein-
unum hefur að mestu verið safn-
að í nágrenni Breiðdals af Reyni
Reimarssyni en safnið er nú í eigu
Björns Björgvinssonar.
„Safninu tilheyra um 2.000
steinar og hefur það að geyma
flestar steintegundir sem finnast
á Austurlandi, en á þessu land-
svæði finnast flestar steinteg-
undir á landinu,“ segir Björn. „Það
er skráð og merkt á íslensku og
ensku af svissneskum jarðfræð-
ingum sem gerir það allt áhuga-
verðara.“
Að sögn Björns verður áfram
unnið að því að fullkomna þessa
skráningu og innan tíðar verður
hægt að sjá einstaka steina á tölvu-
skjá ásamt öllum helstu upplýsing-
um. Má þar nefna hversu margar
steintegundir eru í hverjum steini,
hvað steinarnir eru gamlir, hvar
þeir fundust og svo framvegis.
Safnið er opið í júlí og eftir sam-
komulagi. „Þetta er lítill staður og
utan opnunartíma er velkomið að
hringja í símanúmer á hurðinni og
þá er hlaupið til og opnað,“ segir
Björn. - ve
Steinar úr ná-
grenni Breiðdals
Sjóðheitar skógarlummur með ilmandi
rabarbarasultu og sjóðheitu ketilkaffi.
20.
JÚNÍ
EGILSSTAÐIR
SÍMI 471-1800
BARRI
H
ér
að
sp
re
nt
FÉLAG SKÓGARBÆNDA
Á AUSTURLANDI
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki