Fréttablaðið - 19.06.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
SUMARÞJÓNUSTA
Viðbótarsýning Frétta
Stöðvar 2 og Íslands í dag
kl. 21.00 alla virka daga
á Stöð 2 Extra
FÖSTUDAGUR
19. júní 2009 — 144. tölublað — 9. árgangur
„Ég bjó til salat sem er í uppáhaldi hjá mér og kjúklingaböku með,“ segir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. „Þetta er brokkólí-salat og uppistaðan í því er hrátt brokkólí sem er ljónhollt. Það er örugglega komið hátt á annan ára-tug síðan ég fékk þetta fyrst þegar ömmusystir mín kom frá Ameríku í heimsókn en þá var það mjög visælt þar á b
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
KVENNAHLAUP SJÓVÁR OG ÍSÍ verður hlaupið
nú í tuttugasta sinn á morgun, laugardaginn 20. júní, og í
þetta sinn í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands.
200 g hveiti
150 g rjómaostur½ dl vatn
Sett í matvinnsluvél og hrært þar til deigið hleypur í kúlur
Sveppir léttsteiktir, með hvítlauk, pipar og salti. Takið af hita og spínati og klettasalati bætt söxuðu samanvið Sý ð
BAKA MEÐ KJÚKLINGI, SVEPPUM OG OSTI
FYRIR 10
Fjölbreytt og ljónholltErnu Guðrúnu Agnarsdóttur finnst gaman að skoða uppskriftir, fá hugmyndir og vinna með þær í eldhús-
inu. Hún gefur lesendum Fréttablaðsins uppskriftir að réttum sem gott er að taka með í lautarferðir.
Erna Guðrún Agnarsdóttir bjó til brokkólísalat frá ömmusystur sinni og böku þar sem innihaldið ræðst af hugarfluginu. F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Næg ókeypis bílastæði við Perluna
Ódýrt og gott!
Súpubar 620 kr. · Salatbar 990 kr.Súpa og salatbar á aðeins 1.430 kr.~ NÝBAKAÐ BRAUÐ FYLGIR MEÐ SÚPU- OG SALATBAR. ~Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti á frábæru verði: Crépes, samlokur, pizzur og smurt brauð. Eins er hægt að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls kyns ísrétti, kökur og tertur.
Komnar aftur!
Láttu belgísku vöfflurnareftir þér, þær eru algjörlega þess virði. Nú enn betri meðk
E
lf
a
D
ög
g
M
ah
an
ey
R
ek
st
ra
rs
tj
ór
i k
af
fi
te
rí
un
na
r
VEÐRIÐ Í DAG
ERNA GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR
Mælir með kjúklinga-
böku og brokkólísalati
• matur • helgin
Í MIÐJU BLAÐSINS
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 19. júní 2009
TRANSDANS HORMÓNASVEIFLUR
&
Stóra svið Þjóðleikhússins verður tileinkað konum í kvöld, þegar fimm konur bregða sér í hlutverk systra, norna, nunna og önnur kvennaspor. Erna Ómarsdóttir er höfundur verksins.
Frumkvöðull á sínu sviði
Minnisvarði reistur við Hófsvað í
tilefni af aldarafmæli Guðmundar
Jónassonar fjallabílstjóra.
TÍMAMÓT 20
MARÍA SIGURÐARDÓTTIR
Lilja „forever“
á leiksvið
Spennandi leikár á Akureyri
FÓLK 28
Rúnar Freyr og Hilmir í
Borgarleikhúsið
Bætast við öflugan hóp
nýrra leikara í Borgar-
leikhúsinu.
FÓLK 34
Latabæjarsýn-
ing á Íslandi
Íslenskir aðdáend-
ur Íþróttaálfsins og
Sollu stirðu geta
tekið gleði sína
á ný.
FÓLK 34
MENNING Reykjavíkurborg hefði
ekki átt að leita út fyrir raðir
félagsmanna Bandalags íslenskra
listamanna
(BÍL) er borgar-
listamaður
var tilnefndur.
Áheyrnarfull-
trúar BÍL lögðu
fram bókun þess
efnis er tekin
var ákvörðun
um að tilnefna
Steinunni Sig-
urðardóttur fatahönnuð.
Guðmundur Oddur Magnússon,
prófessor í grafískri hönnun við
Listaháskóla Íslands, segir þetta
afleita afstöðu hjá áheyrnar-
fulltrúunum tveim, þeim Ágústi
Guðmundssyni og Áslaugu
Thorlacius. „99 prósent af list er
drasl og 99 prósent af hönnun er
drasl. Hvaðan góðir hlutir koma
er ekki aðalatriðið.“ - fgg / sjá síðu 34
Listamenn gagnrýna borgina:
Ósáttir við val
á listamanni
HANDBOLTI Einn ástsælasti íþrótta-
maður þjóðarinnar, Sigfús Sigurðs-
son, neyðist líklega til þess að
leggja handboltaskóna á hilluna
vegna hnjámeiðsla.
„Það var verið
að lappa upp á
hnéð á mér fyrir
þrem vikum
svo ég geti
labbað óhaltur
og verkjalaus í
framtíðinni. Ef
ég spila aftur
handbolta þá er
það bara bónus,“
sagði Sigfús, sem fór í aðgerð á
hné fyrir þrem vikum.
Hann býst við því að vera við-
loðandi handboltann í framtíðinni
þar sem hann er að þjálfa hjá Val
og er einnig að vinna fyrir HSÍ í
útbreiðslustarfi. - hbg / sjá síðu 30
Sigfús Sigurðsson:
Líklega leikið
sinn síðasta leik
SIGFÚS
SIGURÐSSON
Sigurður til Solna
Sigurður Ingimundar-
son er hættur að
þjálfa hjá Keflavík
og stýrir liði í Svíþjóð
næsta vetur.
ÍÞRÓTTIR 30
ERNA ÓMARSDÓTTIR
Felur sig á
leikhúsfjölunum
Föstudagur
Í MIÐJU BLAÐSINS
BJARTVIÐRI Í dag verða norð-
vestan 10-18 norðaustast og
austast, annars hægari norðlæg
átt. Bjart sunnan til og vestan en
dálítil væta í fyrstu við norðaustur-
ströndina en léttir svo víðast
nokkuð til.
VEÐUR 4
13
9
7
10
16
AÐGERÐAPAKKI FÓLKSINS Á AUSTURVELLI Mótmælendur sitja ekki aðgerðalausir þó að vissulega sé hægt að slaka á í blíðunni
á milli anna. Þeir höfðu slegið upp skjaldborg heimilanna á Austurvelli í gær og meira að segja hvítbláinn var dreginn að húni.
Evrópufánanum var einnig flaggað en gerðar höfðu verið smávægilegar breytingar á honum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DÓMSMÁL Samningar Ríkiskaupa við
Vodafone um síma- og gagnaflutn-
ingaþjónustu fyrir Land spítalann
hafa verið stöðvaðir. Kærunefnd
útboðsmála segir verulegar líkur
á að lög séu brotin með samnings-
gerðinni.
Síminn og Vodafone voru meðal
bjóðenda í mars í útboði fyrir
þriggja ára þjónustu fyrir Land-
spítalann. Tilboð Vodafone var 185
milljónir króna, sem var 42 milljón-
um undir tilboði Símans. Ríkiskaup
sögðu stefnt að því að skrifa undir
samninga við Vodafone í næsta
mánuði en Síminn kærði málið á
þeim forsendum að Vodafone hefði
verið með neikvæða eigin fjárstöðu
þegar tilboðið hefði verið sett fram
og það væri andstætt lögum.
„Það er ánægjulegt að kæru-
nefndin skuli hafa stöðvað þetta
ferli því það var klúður í uppsigl-
ingu,“ segir Sævar Freyr Þráins-
son, forstjóri Símans, um ákvörðun
kærunefndarinnar sem tekin var á
þjóðhátíðardaginn.
Hrannar Pétursson, forstöðu-
maður almennatengsla hjá Voda-
fone, segist ekki geta tjáð sig um
ákvörðun kærunefndar útboðsmála
því hún hafi ekki borist fyrirtæk-
inu. - gar
Kærunefnd útboðsmála segir verulegar líkur á að Ríkiskaup séu að brjóta lög:
Stöðva símasamning Landspítalans
EFNAHAGSMÁL Skera á ríkisútgjöld
niður og afla nýrra tekna til að ná
hallanum á ríkissjóði niður um
samtals 86 milljarða króna á árun-
um 2009 og 2010.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verður um sextíu prósent-
um þessarar upphæðar náð fram
með niðurskurði útgjalda og um
fjörutíu prósentum með auknum
tekjum. Ætlunin er sú að á árinu
2013 verði fjárlögin hallalaus.
Meðal hagræðingaraðgerða
sem stefnt er að er mikil endur-
skipulagning ríkisstofnana. Þar
á meðal mun vera rætt um sam-
einingu Varnarmálastofnunar og
Landhelgisgæslunnar og veruleg-
ar breytingar á embætti Ríkislög-
reglustjóra. Þá á að veita verkefn-
um sem nú eru hjá ríkinu yfir á
sveitarfélögin. Söfn á landsbyggð-
inni verða sameinuð og sumar
stofnanir lagðar niður. Rætt er um
fækkun sendiráða og sölu sendi-
ráðsbygginga erlendis, mikla fækk-
un sýslumannsembætta og fækkun
skattstofa, sem verði sameinaðar
Ríkisskattstjóra.
Spara á í rekstri ríkisins. Meðal
annars verði ferðakostnaður á
næsta ári aðeins helmingur þess
sem hann var hjá ríkinu í fyrra.
Lækka á útgjöld vegna stjórna og
nefnda um helming og forðast í
lengstu lög að ráða utanaðkomandi
ráðgjafa til ríkisins.
Laun hjá yfirmönnum ríkis-
stofnana og -fyrirtækja verða felld
undir kjararáð. Fara á sérstaklega
yfir laun ríkisstarfsmanna með
mánaðartekjur yfir 400 þúsund
krónum og lækka hlutfallslega
mest laun þeirra sem hafa hæstu
launin. Aksturskostnaður og risna
verða skorin niður.
Af áðurnefndum 86 milljörðum
má nefna að spara á 5,5 milljarða
í almannatryggingakerfinu, til
dæmis með lækkun á frítekjumarki
ellilífeyrisþega. Draga á úr fram-
lögum til Þjóðkirkjunnar um 450
milljónir og 420 milljónir sparist
með því að hámarksgreiðsla úr
Fæðingarorlofssjóði verði 350 þús-
und krónur. Virðisaukaskattur á
sumar matvörur, á borð við sykur,
sem áður báru sjö prósenta skatt,
verður eftirleiðis 24,5 prósent.
Til að standa straum af sívax-
andi útgreiðslum úr Atvinnuleysis-
tryggingasjóði verður trygginga-
gjald fyrirtækja hækkað úr 0,65
prósentum í 2,21 prósent. - gar
Lækka á fjárlagahallann um
86 milljarða á tveimur árum
Draga á úr halla ríkissjóðs á þessu ári og því næsta um samtals 86 milljarða króna, að mestu með niður-
skurði útgjalda. Sameina á stofnanir og flytja verkefni til sveitarfélaga. Fjárlög eiga að verða hallalaus 2013.
STEINUNN
SIGURÐARDÓTTIR