Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.06.2009, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 19.06.2009, Qupperneq 8
8 19. júní 2009 FÖSTUDAGUR VIÐSKIPTI Sjaldan hefur verið meiri þörf en nú á leiðbeiningum um góða stjórnarhætti fyrirtækja, að mati Gylfa Magnússonar viðskiptaráð- herra. Nýja útgáfu slíkra leiðbein- inga sem kynnt var í gær sagði hann þó vekja blendnar tilfinning- ar, en Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöllin kynntu í gær þriðju og mikið endur bætta útgáfu leiðbeininganna. Fyrsta útgáfa þeirra kom út árið 2004 og var endurbætt ári síðar, en hefur síðan verið óbreytt. Gylfi segir blendnar tilfinn- ingar þó ekki til komnar af því að reglurnar séu slæmar, þvert á móti séu þær um margt ágætar. „Skýringin á blendnum tilfinning- um er einfaldlega forsagan. Ekki hefur gengið nógu vel að fá þá sem áttu að fylgja slíkum reglum til þess að gera það,“ segir hann. Þörfin á gagnsæi og skýrum regl- um um stjórnarhætti sé hins vegar aldrei meiri en á endur reisnar- og umbrotatímum sem þessum. „Hvort sem okkur líkar betur eða verr fara allt of mörg fyrirtæki nú í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu og lenda jafnvel í fanginu á fjár- málafyrirtækjum sem um tíma að minnsta kosti eru í eigu ríkisins. Þetta er auðvitað afleitt ástand á alla kanta og býður heim þeirri hættu að stjórnarhættir verði eitt- hvað sérkennilegir, fyrirtækjum mögulega mismunað, fákeppnis- sjónarmið ekki höfð til hliðsjónar og ýmislegt annað af þeim toga. Það hlýtur því að vera sérstakt áherslu- atriði hjá þeim sem halda utan um þetta ferli allt saman að reyna að sjá til þess að leiðbeiningum á borð við þessar sé fylgt.“ Í inngangi leiðbeininganna kemur fram að viðtökur við fyrri útgáfu hafi valdið nokkrum von- brigðum. „Því miður má segja að ófarir undanfarinna missera bendi til brotalama í stjórnarháttum margra fyrirtækja, bæði hérlendis og erlendis.“ Í kynningu Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallarinnar, kom fram að leggja ætti aukna áherslu á alla eftirfylgni við að reglunum yrði framfylgt í fyrirtækjum land- ins. Þannig yrði haft samstarf við nýtt Rannsóknasetur um stjórnar- hætti hjá Háskóla Íslands, um að greina og kanna upptöku regln- anna í fyrirtækjum landsins. Þær ættu enda víða við, ekki bara hjá skráðum fyrirtækjum. Þá kæmu þær til með að gagnast fjárfestum, stjórnar mönnum, fjölmiðlafólki og hverjum þeim sem veita vildi við- skiptalífinu aðhald. Reglurnar væru fyrsta skrefið í að koma á hugarfarsbreytingu þar sem fólk sætti sig ekki við að eiga viðskipti við fyrirtæki sem stöðugt störfuðu á „gráum svæðum“ reglu- verks. Þá mæltist hann til þess að ríkisstjórnin kæmi leiðbeiningun- um til stjórnenda opinberra fyrir- tækja. olikr@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL „Það er enginn vafi á því að það er hægar ekið,“ segir Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi. Hann segir að aksturslag sé betra; þeir sem sektaðir séu fyrir hraðakstur aki hægar en áður. Kristján telur ástæður betra aksturslags og fækkunar hraðasekta samtvinning margra þátta. Hærri sektir, aukið eftirlit og meiri sýnileiki lögreglu hafi áhrif auk hærra eldsneytisverðs. Hann bætir við að heldur minni umferð sé um svæðið en undan- farin ár. „Það hefur verið lítið um óhöpp og slys, sem er mjög jákvætt,“ segir hann. - bþa Færri sektaðir á Blönduósi: Hraðinn minni á þjóðveginum Bílahreinsivörur Þú sparar 3.746.- TILBOÐ 2.990.-PAKKI 1Verð áður 6.736.- LÖGREGLUMÁL „Innbrotum fjölgaði heilmikið í byrjun árs og hefur það haldist,“ segir Gunnar Hilm- arsson, aðalvarðstjóri lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann telur óhætt að fullyrða að þessi aukning sé ákveðið kreppu- merki. Aðspurður segist hann ekki sjá meira um heimabrugg eða landasölu þrátt fyrir að kreppi að heimilunum. Einnig segir Gunnar að stuldur á hjólum aukist iðulega á þessum árstíma. Ekki sé um skipulagða starfsemi að ræða heldur ein- staklinga sem ferðist á hjólunum stutta vegalengd og skilji þau svo eftir. - bþa Hjólastuldur eykst á sumrin: Innbrotaalda í kreppunni Á KYNNINGARFUNDI Í GÆR Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, Gylfi Magnússon viðskiptaráð- herra og Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, kynntu í gær nýtt rit um stjórnarhætti fyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vilja endurheimta traust Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöllin hafa gefið út endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Viðskiptaráðherra segir þær góðar og mikilvægar, en vekja blendnar tilfinningar. Reglurnar fá víðtækara gildissvið. Þeim er ekki einungis beint að skráðum félögum heldur öllum félögum sem teljast til eininga tengdra almannahagsmunum. Nýr kafli hefur verið saminn um hluthafafundi og hlutverk stjórnar skýrt og útfært nánar. Hnykkt er á mikilvægi samstarfs og markmiðasetningar. Samdir hafa verið nýir kaflar um innra eftirlit og áhættustýr- ingu, siðareglur og samfélags- lega ábyrgð, samskipti stjórnar við hluthafa, um stjórnarfor- menn og helstu skyldur þeirra og um framkvæmdastjóra og þeirra helstu skyldur. Þá hefur kafli um endurskoð- unarnefnd verið færður til sam- ræmis við nýlega lagasetningu. Hlutverk starfskjaranefndar er skýrt nánar og nýr kafli saminn um grundvallaratriði starfskjara- stefnu. Nýr kafli hefur verið saminn um tilnefningarnefnd, auk þess sem kveðið er á um stórbætta upplýsingagjöf, bæði einstakl- ingsbundna og almenna, til hlut- hafa og annarra hagsmunaaðila í ársreikningum og á vefsíðu. HELSTU NÝJUNGAR NÝRRA LEIÐBEININGA MENNTUN „Allir sem eru undir átján ára aldri eiga rétt á skóla- vist og þeim mun verða tryggð slík vist. Það verður bara að gera það,“ segir Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur í menntamálaráðu- neytinu, sem þessa dagana fer yfir umsóknir í framhaldsskóla lands- ins. Samtals bárust 4.437 umsókn- ir frá nemendum úr 10. bekk, sem eru um 96 prósent þeirra sem luku grunnskólanámi í ár. Sagt var frá því í blaðinu á þriðjudag að menntaskólar neyddust til að vísa mörgum umsækjendum frá. Til að mynda verða 308 nemendur teknir inn í Verzlunarskóla Íslands af 520 umsækjendum. Svipað er uppi á teningnum hjá Menntaskólan- um við Hamrahlíð, en þar verða ríflega 300 nemendur innritaðir af 470 umsækjendum. Hver nemandi hefur kost á að sækja um fjóra framhaldsskóla. Að sögn Sigurbjargar verður unnið sérstaklega með þau til- felli þegar umsækjandi fær ekki inngöngu í neinn þeirra fjögurra skóla sem sótt er um. „Þessum einstaklingum verður fundinn skóli. Þeir sem sækja um bók- nám fara í bóknámsskóla og þar fram eftir götunum,“ segir Sigur- björg. Spurð hvort til greina komi að finna umsækjendum á höfuð- borgarsvæðinu skólapláss úti á landi segist Sigurbjörg ekki búast við að slíkt verði nauðsynlegt. - kg Tæplega 96 prósent 10. bekkinga sóttu um að komast í framhaldsskóla: Öllum verður tryggð skólavist NÝTT UPPHAF Framhaldsskólar landsins hafa frest fram í miðja næstu viku til að fara yfir umsóknir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl- maður hefur verið ákærður fyrir stórfellt og ítrekað skjalafals, svo og þjófnaði og fíkniefnabrot. Maðurinn framvísaði tékka að upphæð rúmlega 240 þúsund í Glitni. Hann vissi að tékkinn var falsaður og falsaði svo framsals- áritunina. Næst framvísaði maðurinn tveimur fölsuðum tékkum upp á tæpar 700 þúsund krónur í KB banka. Þá bar hann niður í versluninni BT í Skeifunni. Þar sveik hann út heimabíókerfi ásamt fylgihlutum fyrir rúm 320 þúsund. Í desember 2007 blekkti maðurinn svo starfsmenn Kaupþings banka símleiðis til að millifæra heimildar- laust tæp sautján þúsund af tékka- reikningi annars manns yfir á sinn reikning. Hann hafði komist yfir lykilnúmer og tókst að nota það í þessum tilgangi. Skömmu áður hafði hann blekkt starfsmenn í tveimur útibúum Landsbankans til að taka út 104 þúsund af tveimur bankareikning- um, sem maðurinn sló eign sinni á. Auk þessa var maðurinn ákærð- ur fyrir ítrekuð fíkniefnabrot, bíl- þjófnað og innbrot þar sem hann stal fartölvum, myndavél og tveim- ur fjarstýringum. - jss FJÁRSVIK Maðurinn er ákærður fyrir skjalafals sem miðaði að því að svíkja út hundruð þúsunda. Ákærður fyrir stórfellt og ítrekað skjalafals: Sakaður um að svíkja út háar fjárhæðir CALGARY, AP Gestum dýragarðsins í borginni Calgary í Kanada brá í brún í gær þegar þeir náðu mynd- um af górillunni Bartiku þar sem hún otaði hnífi að sambýlisgórillu sinni í búri þeirra. Yfirmenn í dýragarðinum segja Bartiku ekki hafa ætlað að skaða hina górill- una með hnífnum. Að sögn Cathy Gaviller, fræðslustjóra dýragarðsins, var hnífurinn óvart skilinn eftir af starfsmanni sem fór inn í gór- illubúrið til að skilja eftir mat. Hnífur inn var tekinn af Bartiku örfáum mínútum eftir að hann uppgötvaðist. Að sögn Gaviller er það ekki í eðli górilla að brúka vopn. „Bartika hafði aldrei í hyggju að fremja ofbeldisverknað,“ segir Gaviller. - kg Ferðamönnum brá í brún: Górilla afvopn- uð í dýragarði GÓRILLA Óvarkár starfsmaður skildi hnífinn eftir í búr- inu. Fræðslustjóri dýragarðsins telur að górillan hafi aldrei haft í hyggju að fremja ofbeldis- verknað þótt hún væri vopnuð hnífi. NORDICPHOTOS/AFP SÓMALÍA, AP Að minnsta kosti tuttugu manns létu lífið í sjálfs- morðsárás við hótel í Sómalíu í gær. Á meðal hinna látnu var varnarmálaráðherra landsins, Omar Hashi Aden. Að sögn sjónarvotta var lítill bíll sprengdur í loft upp fyrir framan hótelið. Forseti landsins hefur sakað Al-Kaída um að standa að baki árásinni. Sérfræðingar hafa lýst yfir ótta við að stjórn- leysið í landinu verði til þess að íslamskir hryðjuverkahópar muni í auknum mæli nota landið sem höfuðstöðvar sínar. - þeb Sjálfsmorðsárás í Sómalíu: Ráðherra á meðal látinna 1 Hvar er ódýrast að fara í sund á höfuðborgarsvæðinu? 2 Hvaða hljómsveit er að gefa út sína fimmtu plötu á jafn mörgum árum? 3 Hvaða þýska félag er hand- knattleiksmaðurinn Sverre Jakobsson að ganga til liðs við? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34 VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.