Fréttablaðið - 19.06.2009, Síða 19

Fréttablaðið - 19.06.2009, Síða 19
„Ég bjó til salat sem er í uppáhaldi hjá mér og kjúklingaböku með,“ segir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. „Þetta er brokkólí- salat og uppistaðan í því er hrátt brokkólí sem er ljónhollt. Það er örugglega komið hátt á annan ára- tug síðan ég fékk þetta fyrst þegar ömmusystir mín kom frá Ameríku í heimsókn en þá var það mjög vin- sælt þar á bæ.“ Kjúklingabökuna segist Erna Guðrún hafa fikrað sig áfram með. „Ég fer sjaldan eftir uppskriftum. Í bökunni er grunnurinn alltaf sá sami. Innihald bökunnar getur svo verið mismunandi og það ræðst af manns eigin hugarflugi, til dæmis basil og tómatar í staðinn fyrir kjúklinginn, sveppina og gráða- ostinn.“ Erna Guðrún segir að báða rétt- ina sé auðvelt að gera fyrir fram, jafnvel deginum áður, og auðvelt sé að taka þá með í lautarferðir, sumarbústaðinn eða til að eiga í frystinum. Aðspurð segist Ernu Guðrúnu finnast gaman að elda. „Það er áhugamál mitt að skoða uppskriftir án þess að ég fari endilega eftir þeim. Ég fæ hugmyndir og vinn með þær. Ég sé uppskrift og kann einhver grunn og blanda svo bara saman því sem mér finnst gott.“ martaf@frettabladid.is Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 KVENNAHLAUP SJÓVÁR OG ÍSÍ verður hlaupið nú í tuttugasta sinn á morgun, laugardaginn 20. júní, og í þetta sinn í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands. 200 g hveiti 150 g rjómaostur ½ dl vatn Sett í matvinnsluvél og hrært þar til deigið hleypur í kúlur. 250 g sveppir, skornir í bita 2 væn hvítlauksrif olía til steikingar væn lúka af spínati og klettasalati 1 dós sýrður rjómi 1 dl rjómi 4 egg 150 g rifinn ostur 100 g gráðaostur 300 g steiktur kjúklingur, skorinn í smáa bita pipar úr kvörn Maldon-salt Sveppir léttsteiktir, með hvítlauk, pipar og salti. Takið af hita og spínati og klettasalati bætt söxuðu saman við. Sýrðum rjóma, rjóma og eggi blandað saman. Öllu blandað saman og hellt yfir bökubotninn sem búið er að setja í eldfast form. Gráðaosturinn mulinn yfir og rifinn ostur settur á. Bakað í 40 til 45 mínútur við 180 gráður. Brokkólísalat 6 bollar hrátt brokkólí, búið að klippa blómin smátt af stilkum 350 g stökksteikt beikon, skorið í bita 1 bolli saxaðar rúsínur ½ bolli smátt saxaður rauðlaukur Öllu blandað saman. Dressing 1 bolli mæjónes og sýrð- ur rjómi til helminga 4 msk. edik 3 msk. sykur Öllu hrært saman og blandað við salatið. BAKA MEÐ KJÚKLINGI, SVEPPUM OG OSTI FYRIR 10 Fjölbreytt og ljónhollt Ernu Guðrúnu Agnarsdóttur finnst gaman að skoða uppskriftir, fá hugmyndir og vinna með þær í eldhús- inu. Hún gefur lesendum Fréttablaðsins uppskriftir að réttum sem gott er að taka með í lautarferðir. Erna Guðrún Agnarsdóttir bjó til brokkólísalat frá ömmusystur sinni og böku þar sem innihaldið ræðst af hugarfluginu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V A LL I Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Heimasíða www.perlan.is H rin g b ro t Næg ókeypis bílastæði við Perluna Ódýrt og gott! Súpubar 620 kr. · Salatbar 990 kr. Súpa og salatbar á aðeins 1.430 kr. ~ NÝBAKAÐ BRAUÐ FYLGIR MEÐ SÚPU- OG SALATBAR. ~ Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti á frábæru verði: Crépes, samlokur, pizzur og smurt brauð. Eins er hægt að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls kyns ísrétti, kökur og tertur. Komnar aftur! Láttu belgísku vöfflurnar eftir þér, þær eru algjörlega þess virði. Nú enn betri með kanil auk vanillu. E lf a D ög g M ah an ey R ek st ra rs tj ór i k af fi te rí u n na r HELSA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.