Fréttablaðið - 19.06.2009, Page 42
30 19. júní 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI „Það er voða lítið hægt
að segja um hnéð á þessu stigi. Ég
verð bara að bíða og sjá hvernig
þetta verður. Það var verið að gera
það sama og síðast nema að hnjá-
liðurinn er orðinn ónýtur, sem er
ekki gott. Svo var verið að laga
brjósk, bora göt og reyna að lappa
upp á þetta og þá aðallega til þess
að ég geti gengið óhaltur og verkja-
laus í framtíðinni. Ef ég spila aftur
handbolta þá er það bónus,“ sagði
handknattleikskappinn Sigfús
Sigurðsson.
Þessi 34 ára gamli handknatt-
leikskappi hefur að öllum líkindum
spilað sinn síðasta handboltaleik.
Hnéð á honum er illa farið eins
og hann sagði sjálfur. Nú skiptir
heilsan miklu máli enda hefur Sig-
fús ekki áhuga á því að haltra eða
ganga við staf það sem eftir er
ævinnar.
Silfrið var ekki án fórna
„Ég var orðinn slæmur í hnénu
fyrir svona einu og hálfu ári.
Svo kom þessi undankeppni fyrir
Ólympíuleikana og þá tók ég þá
ákvörðun að hætta öllu væli og
reyna að koma mér í stand ef mér
stæði síðan til boða að fara til
Kína. Það kostaði sitt. Silfrið var
ekki án fórna,“ sagði Sigfús.
„Nú snýr maður sér bara að ein-
hverju öðru, hvort sem það verð-
ur golf eða þjálfun eða eitthvað
annað. Nú er ég bara að reyna að
venjast þeirri tilhugsun að þess-
um kafla sé lokið. Ég get ekki gert
annað þar til annað kemur í ljós.
Það er betra að vera með minni
væntingar en meiri á þessu stigi
málsins.“
Miðlar af reynslu sinni til ungra
krakka
Sigfús fór í aðgerð fyrir þrem
vikum og hnéð er enn afar bólgið.
Hann styðst við hækjur til að kom-
ast leiða sinna. Hann segist þurfa
að vera þolinmóður en síðan tekur
endurhæfing við.
„Ég er nokkurn veginn kominn
á aldur í handboltanum og þarf að
hugsa um annað. Ég mun fara að
þjálfa hjá Val og halda svo áfram
í útbreiðslu- og kynningarstarfi
hjá HSÍ. Svo verð ég eitthvað í því
að fara áfram í grunn- og gagn-
fræðaskólana til að sinna forvarn-
arstarfi sem ég hef verið í. Svo er
aldrei að vita nema ég skelli mér í
skóla eftir átján ára hlé,“ sagði Sig-
fús léttur spurður hvað tæki við að
loknum ferlinum.
Hann hefur lifað tímana tvenna
á löngum ferli sem meðal annars
varð hlé á þegar hann varð undir
í baráttunni við Bakkus. Það var
lærdómsrík reynsla fyrir Sig-
fús, sem hefur reynt að miðla af
reynslu sinni til ungra krakka svo
þeir brenni sig ekki á sama hátt og
hann.
„Ef það hefði verið almenni-
legt forvarnarstarf þegar ég var í
grunnskóla hefði ruglið og vitleys-
an á mér líklegast ekki orðið eins
mikið og raun bar vitni. Hugsan-
lega hefði ég aldrei byrjað. Það
verða einhverjir að verða öðrum
víti til varnaðar og það er komið
að mér að deila minni reynslu með
þeim sem þurfa á því að halda. Ef
það verður til þess að hjálpa ein-
hverjum, jafnvel þó það séu ekki
nema einn til tveir í hverjum
árgangi, þá er það frábært og þess
virði,“ sagði Sigfús.
Var í lélegasta forminu af öllum í
Ólympíuþorpinu
„Það er ekkert létt að sætta sig við
þá hugsun að þetta sé líklega búið.
Ég setti mér aftur á móti mark-
mið þegar ég fór af stað aftur árið
1998. Þá vildi ég sjá hvort ég gæti
þetta ekki ennþá og svo í kring-
um EM 2002 lýsti ég því yfir að ég
ætlaði mér að vinna til verðlauna
á stórmóti.
Það tókst síðasta sumar og ég get
því ekki annað en stigið sáttur frá
borði. Ég er mjög sáttur við minn
feril og ekki ónýtt að enda með
medalíu á Ólympíuleikum,“ sagði
Sigfús, sem er þakklátur fyrir að
hafa fengið að taka þátt í ævintýr-
inu í Peking.
„Það er ekkert sjálfgefið að
maður eins og ég, sem var á síð-
ustu dropunum, fái að taka þátt
í stærsta íþróttamóti heims. Ég
held ég geti vel sagt að ég hafi
verið í lélegasta forminu af öllum
í Ólympíu þorpinu og það er ekki
sjálfgefið að slíkur maður fái að
vera með. Ég tel mig samt hafa náð
að skila einhverju til liðsins.
Ég vissi að ég yrði varaskeifa
en þá fór ég áður í fýlu. Ég gerði
hugarfarsbreytingu þar fyrir leik-
ana enda vissi ég líka að ástæðan
fyrir því að ég fór var sú að Vignir
[Svavarsson] var svo óheppinn að
meiðast. Því miður fyrir hann
en eins dauði er annars brauð
í þessum bransa,“ sagði Sigfús
auðmjúkur.
Í hönd fara hjá honum erfiðir
mánuðir í endurhæfingu þar sem
hann þarf meðal annars að taka af
sér þrjátíu kíló til þess að létta á
álaginu á hnénu. Það er ekki auð-
velt verk þegar menn eiga erfitt
með að hreyfa sig.
„Það gengur vel því fjögur kíló
eru farin á fjórum vikum bara
út af breyttu mataræði. Ég held
jákvæður inn í þennan nýja slag
sem bíður mín,“ sagði Sigfús að
lokum. henry@frettabladid.is
Rússajeppinn kominn á endastöð
Einn ástsælasti íþróttamaður þjóðarinnar, Sigfús Sigurðsson, þarf líklega að leggja skóna á hilluna vegna
þrálátra hnémeiðsla. Sigfús var að koma úr enn einni aðgerðinni og vonast til þess að verða ekki haltur til
æviloka. Hann ætlar að einbeita sér að þjálfun og forvarnarstarfi í grunnskólum landsins.
SÍÐASTI LEIKURINN? Sigfús huggar hér liðsfélaga í Val síðasta vor eftir að Valur hafði tapað úrslitaeinvíginu gegn Haukum um
Íslandsmeistaratitilinn. Það var líklega síðasti handboltaleikur Sigfúsar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SILFRIÐ KOSTAÐI SITT Sigfús lagði mikið á sig til þess að spila í Peking en það kost-
aði sitt þar sem hnéð var afar illa leikið eftir leikana.. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍÞRÓTTIR Vegna viðgerðar á
háspennukerfi í Hafnarfirði og
Garðabæ þurfti Fréttablaðið að
fara í prentun klukkan 20 í gær-
kvöldi.
Af þeim sökum eru engin
úrslit úr VISA-bikarnum í blað-
inu í dag. Við bendum lesendum á
íþróttavef Vísis þar sem má finna
öll úrslit gærkvöldsins.
Prentun Fréttablaðsins:
Engin úrslit
KÖRFUBOLTI Körfuknattleiksdeild
Keflavíkur stendur nú frammi
fyrir því í fyrsta sinn í langan
tíma að finna nýjan þjálfara.
„Sigurður er búinn að vera hjá
okkur í tólf ár og við höfum ekk-
ert þurft að hugsa um. Nú er allt
í einu komin upp ný staða,“ sagði
Margeir Elentínusson, formaður
körfuknattleiksdeildar.
„Við erum annars ekkert farnir
að spá í framhaldið. Við munum
boða til fundar eftir helgina og
fara yfir þá möguleika sem eru
í stöðunni. Eftir það munum
við ræða við einhverja aðila.
Við erum opnir fyrir öllu í þeim
efnum og næsti þjálfari þarf ekki
endilega að koma frá Keflavík,“
sagði Margeir. - hbg
Þjálfaramál Keflavíkur:
Erum opnir
fyrir öllu
> Fram og FH fá tíu milljónir frá KSÍ
KSÍ úthlutaði á dögunum í annað sinn úr mannvirkjasjóði
sínum. Að þessu sinni var 34 milljónum króna úthlutað
sem fóru til átta félaga. Mest fengu Fram og FH eða tíu
milljónir hvort félag. Fram vegna aðstöðu í Úlfarsárdal og
FH vegna stúkubyggingar sinnar. Sjóðnum er ætlað að
styðja við nýframkvæmdir knattspyrnumann-
virkja til að skapa iðkendum, stjórnendum og
áhorfendum sem besta aðstöðu. KSÍ gerir
ráð fyrir að úthluta 200 milljón-
um úr sjóðnum til ársins 2011.
Landsliðsþjálfarinn Siguður Ingimundarson hefur ákveðið
að venda sínu kvæði í kross og yfirgefa herbúðir Kefla-
víkur og skrifa undir árs langan samning við sænska
úrvalsdeildarfélagið Solna frá Stokkhólmi.
„Þetta er bara klappað og klárt og ég skrifaði undir
eins árs samning við Solna. Mér leist bara vel á allar
aðstæður hjá félaginu og þetta er góður klúbbur með
mikinn metnað. Þeir hafa staðið sig vel undanfarin
ár og stefna enn lengra þannig að þetta er bara
skemmtileg áskorun sem mér líst mjög vel
á,“ segir Sigurður brattur en hann tekur við
starfinu af Finnanum Pekka Salminen.
Sigurður tók við þjálfun Keflavíkur haustið
1996 og stýrði því til ársins 2003 þegar hann
tók sér árs frí frá þjálfun. Sigurður stýrði svo
Keflavíkurliðinu frá árinu 2004 og út síðasta
keppnistímabil. Á þessum árum hefur
Sigurður unnið fimm Íslandsmeistaratitla
með félaginu.
„Ég var búinn að vera lengi hjá sama félaginu og það er því
skemmtilegt að breyta algjörlega um umhverfi þegar maður ákveður
loks að yfirgefa Keflavík. Sænska deildin hefur líka styrkst mikið síð-
ustu ár og er orðin nokkuð kröftug deild með mörg góð lið. Sænska
og finnska deildin eru svipaðar að styrkleika og eru sterkustu
deildirnar á Norðurlöndum,“ segir Sigurður en hann hefur engar
áhyggjur af því að Keflavík finni ekki góðan eftirmann til að þjálfa
Suðurnesjaliðið.
„Keflavík er í sterkri stöðu að mínu mati og það er mikið af
góðum þjálfurum sem eru á lausu,“ segir Sigurður.
Samningur Sigurðar við Solna mun ekki hafa neinar
breytingar í för með sér varðandi landsliðsþjálfarastarf
hans hjá karlalandsliðinu en hann ætlar að standa við
núgildandi samning sinn við KKÍ.
„Ég virði bara minn samning við KKÍ og klára því þessa
leiki sem landsliðið á eftir í b-deild Evrópukeppninnar í
ágúst. Við höfum ekkert rætt um framhaldið því það var
bara ákveðið að klára þessa leiki fyrst,“ segir Sigurður
sem heldur svo út til Svíþjóðar í byrjun september.
SIGURÐUR INGIMUNDARSON: SKRIFAR UNDIR EINS ÁRS SAMNING VIÐ SÆNSKA ÚRVALSDEILDARFÉLAGIÐ SOLNA
Skemmtilegt að breyta algjörlega um umhverfi
FÓTBOLTI Þýska félagið FC Bayern
hefur sett portúgalska bakvörð-
inn Jose Bosingwa efstan á óskal-
ista sinn fyrir sumarið.
Bayern staðfesti í gær að við-
ræður við Chelsea um kaup á
leikmanninum væru í gangi.
Miðað við hversu vel Bosingwa
spilaði í vetur er ekki talið líklegt
að Chelsea vilji selja hann nema
Bayern sé tilbúið að selja þeim
Frakkann Franck Ribery sem
er undir smásjá margra félaga
þessa dagana.
Þar á meðal er Man. Utd og
Real Madrid. Bayern segir það
ekki koma til greina að selja leik-
manninn eins og staðan sé í dag.
- hbg
FC Bayern:
Vill fá Jose
Bosingwa
BOSINGWA Var frábær með Chelsea í
vetur. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES