Fréttablaðið - 19.06.2009, Síða 46

Fréttablaðið - 19.06.2009, Síða 46
34 19. júní 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. skíðaíþrótt, 6. gat, 8. fyrirboði, 9. kvk. nafn, 11. fyrir hönd, 12. flatfótur, 14. kvk nafn, 16. skóli, 17. dýrafita, 18. andi, 20. tveir eins, 21. staðarnafn. LÓÐRÉTT 1. tarfur, 3. í röð, 4. ósigur, 5. lík, 7. land í Evrópu, 10. flýtir, 13. angan, 15. illgresi, 16. skammst., 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. brun, 6. op, 8. spá, 9. lóa, 11. pr, 12. ilsig, 14. lilja, 16. ma, 17. mör, 18. önd, 20. ff, 21. oddi. LÓÐRÉTT: 1. boli, 3. rs, 4. uppgjöf, 5. nár, 7. pólland, 10. asi, 13. ilm, 15. arfi, 16. möo, 19. dd. Íslenskir aðdáendur Íþróttaálfsins og Sollu stirðu ættu að geta tekið gleði sína á ný. Því samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru forsvarsmenn Latabæjar nánast búnir að ákveða að setja upp Latabæjar leiksýningu á Íslandi á næsta ári. Tíu ár verða þá liðin síðan leiksýningin Glanni glæpur í Latabæ sló öll aðsóknarmet í Þjóðleikhúsinu. Latibær hóf í kjölfarið mikla útrás til Evrópu, Bandaríkjanna og nú síðast Suður-Ameríku þar sem þetta hugarfóstur Magnúsar Scheving hefur slegið rækilega í gegn. Latabæjarleiksýningar hafa nú verið settar upp bæði í Mexíkó og á Bretlandi og samkvæmt síðustu tölum höfðu yfir ein milljón aðgöngumiða verið seldir. Ekki liggur fyrir hvar og hvenær sýningin verður frumsýnd. Hins vegar má reikna með að sýningin verði mikill smellur enda selst Latabæjarvarningur nú sem aldrei fyrr. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er enn ekki komið á hreint hvort leitað verði að nýjum íslenskum Íþróttaálfi eða hvort Magnús Scheving sjálfur bregði sér í ljósbláa ofurhetjubúninginn. Þá hefur ekki fengist staðfest hvort Stefán Karl Stefánsson, sjálfur Glanni glæpur, muni endurtaka hlutverk sitt sem skúrkurinn ógurlegi. Fréttablaðið hafði samband við Hlyn Sigurðsson, upplýsinga - fulltrúa Latabæjar, en hann vildi hvorki játa né neita því að þetta væri satt. - fgg Latabæjarsýning fyrirhuguð á Íslandi SAMAN Á SVIÐ Glanni glæpur og Íþróttaálfurinn endurnýja kynni sín við íslenskt smáfólk þegar ný íslensk Lata- bæjarsýning verður sett upp á næsta ári. „Við erum að styrkja hópinn. Hér er sterkur hópur leikara fyrir og það er að bætast í hann,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhús- stjóri í Borgarleikhúsinu. Þau tíðindi berast nú úr Borgar - leikhúsinu að einn vinsælasti leikari þjóðarinnar, Hilmir Snær Guðnason, hafi fastráðið sig við Borgarleikhúsið. Hann hefur ekki verið á föstum samningi við leikhús í fjögur ár en hann sagði samningi sínum við Þjóðleikhúsið lausum við síðustu leikhússtjóraskipti. Magnús Geir er að sópa til sín öflugum leikurum. Þannig er Rúnar Freyr Gíslason einnig að ganga til liðs við Borgarleikhúsið – en hann leikur nú í Kardimommubæ Þjóðleikhússins. Áður höfðu Þröstur Leó, Jóhann Sigurðarson, Guðjón Davíð Karlsson, Kristín Þóra og Hallgrímur Ólafsson gengið til liðs við Magnús og hans fólk. „Hilmir er klárlega einn vinsælasti leikari undanfarinna ára og hér bíður hans fjöldi spennandi verkefna. Hann mun verða áberandi á fjölunum en Hilmir mun einnig leikstýra. Hann tekst fyrst á við gríðarlega flott og margverðlaunað verk, August, eftir Tracy Letts, sem hefur sópað til sín verðlaunum á borð við Tony- og Pulitzer- verðlaunin. Þetta leikrit hefur verið heitasta verkið á Broadway að undanförnu og fer nú sem eldur um sinu um heiminn.“ Stór hópur leikara fer með hlutverk í sýningunni en það er svo sjálfur KK sem semur tónlistina en hann hefur ekki verið á stóra sviði Borgarleikhússins síðan hann sló rækilega í gegn í Þrúgum reiðinnar. Magnús Geir segir að frumsýning verði í október. - jbg FENGUR FYRIR MAGNÚS GEIR Borgarleikhúsið styrkir leikhóp sinn til muna og eru Hilmir Snær og Rúnar Freyr meðal þeirra sem hafa fastráðið sig við húsið. Rúnar Freyr og Hilmir í Borgarleikhúsið HUMAR 2000 KR/KG MARINERUÐ STÓR LÚÐU STEIK ROÐLAUUS/BEINLAUS 1.990KR/KG Áheyrnarfulltrúar Bandalags íslenskra listamanna, BÍL, í menn- ingar- og ferðamálaráði lögðu fram bókun við þá ákvörðun að Stein- unn Sigurðardóttir fata hönnuð- ur var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkurborgar. Allir kjörnir fulltrúar menningar- og ferða- málaráðs greiddu útnefningunni atkvæði sitt. Í bókun áheyrnar- fulltrúanna kemur fram að ástæðulaust sé fyrir menningar- og ferðamálaráð að leita út fyrir Bandalag íslenskra listamanna en félagar í BÍL eru þrjú þúsund. „Borgar listamaður er heiðursnafn- bót sem jafnframt fylgir peninga- upphæð. Á þeim tímum þegar mjög þrengir að hjá listamönnum, jafn- vel meira en hjá flestum öðrum starfsstéttum er mikilvægt að listamenn hljóti þó það sem lista- mönnum ber,“ segir í bókuninni. Jafnframt er tekið skýrt fram að ekki sé verið að vega að Steinunni Sigurðardóttur í bókuninni. „Enda hefur hún þegar fengið margvís- lega og verðskuldaða viðurkenn- ingu fyrir störf sín.“ Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er þetta í fyrsta skipti í mörg ár sem fram kemur bókun frá áheyrnarfulltrú- um BÍL þegar borgarlistamaður er tilnefndur. Ágúst Guðmundsson kvikmynda- leikstjóri var annar áheyrnar- fulltrúanna frá BÍL. Hann sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki ætla að taka það hlutverk að sér að skil- greina orðið listamaður. „Borgar- stjórn vill þó greinilega túlka það hugtak á víðari hátt en við.“ Ágúst segist hafa viljað að borg- arlistamaður kæmi úr hefðbundn- ari hópi listamanna og bendir í því samhengi á að aðildarfélögin að BÍL séu fjórtán. „Margir íslensk- ir hönnuðir eru að gera það gott á erlendum vettvangi og þá ekki síst Steinunn. Okkur finnst full ástæða til að meta það að verð- leikum en útnefning borgarlista- manns er ekki rétti vettvangurinn fyrir það.“ Fulltrúar meirihlutans í menn- ingar- og ferðamálaráði lögðu fram bókun í kjölfar þessa og þar kemur fram að í reglum um útnefningu borgarlistamanns sé þess ekki getið að sá sem hljóti útnefningu þurfi að tilheyra félagi Bandalags íslenskra listamanna né öðrum fagfélögum. Á fundinum, sem haldinn var hinn 11. júní en var trúnaðarmál allt þar til í gær, kom jafnframt fram tillaga um að stofna til sérstakra Hönnunarverð- launa Reykjavíkur borgar. Full- trúar listamanna lýstu yfir ein- dregnum stuðningi sínum við slík verðlaun. freyrgigja@frettabladid.is ÁGÚST GUÐMUNDSSON: ÞRENGIR AÐ HJÁ LISTAMÖNNUM LISTAMENN ÓSÁTTIR VIÐ VAL Á BORGARLISTAMANNI ÓSÁTT VIÐ VALIÐ Þau Ágúst Guðmundsson og Áslaug Thorlacius lögðu fram bókun þegar menningar- og ferðamálaráð hafði útnefnt Steinunni Sigurðardóttur fatahönnuð sem borgarlistamann. Þau töldu ástæðulaust að leita út fyrir BÍL og að á tímum þegar kreppti að listamönnum væri mikilvægt að þeir hlytu það sem listamönnum bæri. „Ég hlusta helst á iPodinn minn, sem hefur að geyma mjög fjöl- breytta tónlist, allt frá Talking Heads til David Byrne.“ Þorgerður Ólafsdóttir, listamaður og gallerírekandi. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Garðabæ. 2 The Mars Volta. 3 Grosswallstadt. Einkaþjálfarinn Egill „Gillzenegg- er“ Einarsson, sem til skamms tíma kallaði sig „Störe“, hefur fengið nýtt viðurnefni: „Þykki“ sem vísar til þess að hann mun aldrei hafa verið þykkari yfir axlir og upphandleggi en þessa dagana. Félagar hans gerðu því skil með því að skipta um bílnúmer á bíl Egils að honum forspurðum og settu að næturþeli einka- númerið „ÞYKKI“ á bíl Egils. Þetta var nóttina áður en hann útskrifaðist sem íþróttafræðingur og ráku háskólamenn upp stór augu þegar hann mætti til útskriftarinnar á bíl sínum þannig merktum – ekki eins virðulegur og hann vildi. Sigurður Kaiser, kandídat í stöðu þjóðleikhússtjóra, stýrði Grímuhátíð- inni af mikilli röggsemi og er óhætt að segja að mikil og góð stemning hafi myndast í sal Borgarleikhúss- ins. Slegið var upp balli í anddyri leikhússins þar sem hver leikarinn á fætur öðrum tróð upp við undirleik frábærrar húshljómsveit- ar. Þó er um það rætt innan leikhússins að ekki hafi verið mikið tillit tekið til smekks áhorfenda sem greiða atkvæði með veskjum sínum í miðasölunni. Sigursýningarnar Utangátta, Húman- ímal og Steinar í Djúpinu – eins ágætar og þær eru – teljast ekki með vinsælustu leiksýningum síðasta árs. Sagan segir að þríeykið Sveppi, Auddi og Eiddi (Eiður Smári Guðjohn- sen) sé í mikilli og gríðarlega flottri strákareisu í Bandaríkjunum þar sem staðir á borð við Las Vegas og Miami eru inni á ferðaáætlun stjarnanna. Grínararnir munu vera þarna í boði fótbolta- kappans en auk þeirra munu með í för gamlir félagar Eiðs úr Chelsea svo sem John Terry. - fgg, jbg FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.