Fréttablaðið - 22.06.2009, Qupperneq 8
8 22. júní 2009 MÁNUDAGUR
Áætlun um
endurreisn
Á fundunum fl ytja þingmenn og sveitastjórnarmenn stutt ávörp og
svara spurningum um þau stóru og vandasömu mál sem verið er að
leiða til lykta í ríkisstjórn og á Alþingi þessar vikurnar.
Komið og látið raddir ykkar heyrast í lífl egum umræðum.
Allir velkomnir | Nánari upplýsingar á www.xs.is
mánudaginn 22. júní kl. 20
Hótel KEA, Akureyri
Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller,
Sigmundur Ernir Rúnarsson og Hermann
Jón Tómasson.
Hamraborg 11a, Kópavogi
Jóhanna Sigurðardóttir, Árni Páll Árna -
son, Magnús Orri Schram og Hafsteinn
Karlsson.
Verkalýðshúsinu, Grindavík
Guðbjartur Hannesson, Oddný Harðar-
dóttir, Björgvin G. Sigurðsson og Jóna
Kristín Þorvaldsdóttir.
þriðjudaginn 23. júní kl. 20
Edinborgarhúsinu, Ísafi rði
Ólína Þorvarðardóttir, Kristján L. Möller
og Sigurður Pétursson.
Grand Hótel, Reykjavík
Helgi Hjörvar, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
Skúli Helgason og Dagur B. Eggertsson.
Ránni, Reykjanesbæ
Árni Páll Árnason, Oddný Harðardóttir,
Róbert Marshall og Guðbrandur Einarsson.
Mælifelli, Sauðárkróki
Magnús Orri Schram, Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, Guðbjartur Hannesson og
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir.
miðvikudaginn 24. júní kl. 20
Egilsbúð, Neskaupstað
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Sigmundur
Ernir Rúnarsson, Dagur B. Eggertsson og
Guðmundur Bjarnason.
Sögumiðstöðinni, Grundarfi rði
Jónína Rós Guðmundsdóttir, Ólína
Þorvarðardóttir og Davíð Sveinsson.
Nýheimum, Höfn í Hornafi rði
Oddný Harðardóttir, Róbert Marshall,
Guðbjartur Hannesson og Árni Rúnar
Þorvaldsson.
fi mmtudaginn 25. júní kl. 20
Ráðhúskaffi , Þorlákshöfn
Össur Skarphéðinsson, Björgvin G. Sigurðs-
son, Valgerður Bjarnadóttir og Dagbjört
Hannesdóttir.
Fjölbrautaskólanum, Akranesi
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Guðbjartur
Hannesson, Ólína Þorvarðardóttir og
Sveinn Kristinsson.
Við höfnina, Dalvík
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Jónína Rós
Guðmundsdóttir, Dagur B. Eggertsson og
Svanfríður Jónasdóttir.
Þverholti 3, Mosfellsbæ
Árni Páll Árnason, Þórunn Svein bjarnar-
dóttir og Jónas Sigurðsson.
Opnir fundir Samfylkingarinnar um allt land
Sköpum samstöðu um leikreglur
og leiðir til endurreisnar
DÓMSMÁL Tæplega tvítugur piltur
hefur verið dæmdur í fangelsi í
einn mánuð, skilorðsbundið, fyrir
að berja annan pilt í höfuðið með
steinhnullungi. Atvikið átti sér
stað í Fjölbrautaskóla Suðurlands
í febrúar.
Pilturinn sem er af erlendum
uppruna kvaðst hafa verið reittur
til reiði vegna kynþáttafordóma.
Við ákvörðun refsingar leit
dómurinn til þess að hann játaði
brot sitt greiðlega fyrir lögreglu
og dómi. Þá var hann sautján ára
þegar árásin átti sér stað. Honum
hefur ekki verið gerð refsing
áður. Hins vegar var um einbeitt-
an ásetning hans að ræða. - jss
Fangelsisdómur á skilorði:
Barði pilt í höf-
uðið með grjóti
ÚTIVIST Stöðugur straumur erlendra ferðamanna er
á helstu ferðamannastaðina og eru þeir fleiri nú en
í fyrra. Búist er við að enn fleiri leggi land undir fót
síðar í sumar.
„Manni finnst eins og þetta sé heldur meira en
í fyrra, það koma um sextán til sautján hundruð
manns á dag svo þetta er heilmikil umferð,“ sagði
Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli,
en nú er byrjað að bjóða upp á gönguferðir með leið-
sögn á íslensku um helgar þar.
„Sumarið er tíminn hjá okkur. Frá maí fram
í september er mjög mikið af ferðamönnum hjá
okkur. Sérstaklega finnum við fyrir fjölgun
skemmtiferðaskipa en gríðarlegt álag er á ákveðn-
um tímum á Þingvöllum í tengslum við það,“ sagði
Einar Ásgeir Sæmundsen, fræðslufulltrúi Þing-
valla.
„Við erum með aðeins fleiri heimsóknir inn í
gestastofu núna heldur en í maí í fyrra. Þetta eru
aðallega erlendir ferðamenn og svo koma Íslending-
arnir um helgar,“ sagði Helga Árnadóttir, aðstoðar-
maður þjóðgarðsvarðar í Jökulsárgljúfri. -hds
Stöðugur straumur er á ferðamannastaði hér á landi segja staðahaldarar:
Íslendingar koma um helgar
ÞINGVELLIR Töluverð fjölgun gesta af skemmtiferðaskipum
hefur aukið álagið á Þingvöllum. MYND/ÚR SAFNI
1 Hvað var elsti maður heims
sem lést á dögunum gamall?
2 Á hvaða eyju mun Haffi Haff
koma fram í júlí?
3 Hvað var stóri músíkdagur-
inn haldinn í mörgum borgum?
SVÖR Á SÍÐU 22
GRÆNLAND Grænland varð í gær
fullvalda ríki. Margrét Þórhildur
Danadrottning afhenti formlega
lög um fullveldið við hátíðlega
athöfn í Nuuk í gær, á þjóðhátíðar-
degi Grænlands.
Fullveldisathöfnin hófst klukk-
an átta í gærmorgun með því að
kór söng þjóðsöng Grænlendinga.
Að því loknu tók Kuupik Kleist,
nýkjörinn forsætisráðherra lands-
ins, til máls og sagði daginn mik-
inn gleðidag í sögu þjóðarinnar
og að framtíð hennar væri björt.
Margrét Danadrottning afhenti
svo Josef Motzfeldt, forseta græn-
lenska þingsins lögin um sjálfs-
stjórnina. „Þetta er stórt augnablik
- líka fyrir mig - að afhenda þér og
þar með grænlensku þjóðinni þessi
lög,“ sagði hún þegar hún afhenti
honum lögin. Athöfninni lauk með
því að lúðrasveit lék danska kon-
ungssönginn.
Með lögunum fá Grænlending-
ar stjórn yfir innanríkismálum,
en Danir munu áfram stjórna
utanríkis- og varnarmálum. Þá er
grænlenska orðin opinbert tungu-
mál landsins. Grænland fær einnig
stærri hluta af tekjum af auðlind-
um, en reiðir sig áfram að miklu
leyti á fjárveitingar frá danska
ríkinu.
Danska konungsfjölskyldan var
viðstödd hátíðarhöldin í Nuuk í
gær. Einnig voru helstu ráðamenn
Danmerkur á svæðinu,og bæði
konungsfjölskyldan og forsætis-
ráðherrann klæddust grænlensk-
um þjóðbúningum í tilefni dags-
ins. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, Dorrit Moussaieff og
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, voru einnig við-
stödd hátíðarhöldin.
Þrjátíu ár eru frá því að Græn-
land fékk heimastjórn. Fullveldið
var samþykkt með miklum meiri-
hluta atkvæða í þjóðaratkvæða-
greiðslu í nóvember. Fyrr í mán-
uðinum fóru fram þingkosningar
þar sem miðju- og vinstri flokkar
unnu sigur og Kuupik Kleist tók
við sem forsætisráðherra. Hann
hefur lofað að taka á félagslegum
vandamálum í landinu, sem eru
mikil. thorunn@frettabladid.is
Grænland
fullvalda ríki
Grænlendingar öðluðust í gær fullveldi þegar Mar-
grét Þórhildur Danadrottning afhenti lög þess efnis.
Með lögunum verður grænlenska opinbert tungumál
og innanríkismál verða í höndum Grænlendinga.
LÖGIN AFHENT Margrét Þórhildur Danadrottning afhenti forseta þingsins, Josef Motz-
feldt, lögin sem kveða á um fullveldi Grænlands. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært átján ára pilt fyrir sér-
staklega hættulega líkamsárás.
Pilturinn sem um ræðir sló
mann með glerflösku í höfuð-
ið. Fórnarlambið hlaut skurð
vinstra megin á enni. Árásin átti
sér stað fyrir utan Nætursöl-
una við Strandgötu á Akureyri.
Sá sem fyrir árásinni varð gerir
kröfu um skaðabætur upp á rúm-
lega 480 þúsund krónur.
Þá krefst ákæruvaldið þess að
árásarmaðurinn verði dæmdur
til refsingar og til greiðslu alls
sakarkostnaðar. - jss
Átján ára piltur ákærður vegna árásar á Akureyri:
Sló með flösku í höfuð
VEISTU SVARIÐ?