Fréttablaðið - 22.06.2009, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Í dag er mánudagurinn 22. júní,
173. dagur ársins.
2.56 13.29 0.03
1.29 13.14 0.59
FRÍTT
Það kost
ar ekker
t að nálg
ast
Konur og
Kaupma
nnahöfn
á
www.ice
landexpr
ess.is
með ánægju
Kaupmannahöfn er frábær fyrir konur á öllum aldri. Verslanir með
öllum fínustu merkjunum, það heitasta í hönnun og náttúrulega
þessar stóru og ódýrari fataverslanir sem allir þekkja. Svo er upplagt
að dekra aðeins við sig inn á milli og hafa það huggulegt á kaffihúsum
og njóta lífsins á veitingahúsum borgarinnar. Af nógu er að taka!
Á vefnum okkar finnurðu veftímaritið Konur og Kaupmannahöfn
sem hefur að geyma spennandi og hagnýtar upplýsingar um tísku og
hönnun, bestu kaupin og ýmis góð ráð fyrir konur í Kaupmannahöfn.
Nánar á www.icelandexpress.is
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Um er að ræða valdar
dagsetningar og takmarkað sætaframboð.
Flugsæti frá:
12.900 kr. Kvenlega hliðin á Køben
BÓKAÐU
NÚNA!
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
Rithöfundaþingið í Lahti í Finn-landi var sett í nístingskulda í
síðustu viku. Fyrirlestrarnir fóru
ekki fram úti við eins og stað-
ið hafði til, heldur inni í tjaldi og
urðum við þátttakendur að vefja
okkur inn í þykk teppi. Ekki hafði
ég dvalist lengi á finnskri grund
þegar ég áttaði mig á því að fleira
en veðrið var öfugsnúið. Ég hafði
verið beðin um að lesa upp ljóð og
var ungur heimamaður fenginn
til að lesa þýðingarnar. Þær voru
bæði til á ríkisfinnsku og mál-
lýsku, og lagði maðurinn áherslu
á að lesa frekar mállýskuna. Þetta
eru alldramatísk ljóð um dauða,
einmanaleika og svoleiðis nokk. Ég
hafði því búist við nokkurri yfir-
vegun hjá áheyrendum en það var
öðru nær.
TIL að byrja með mátti heyra fólk
flissa en ekki leið á löngu þar til
salurinn sprakk úr hlátri. „Þetta
hafði ekkert með ljóðin að gera,
heldur hvernig hann las,“ sagði
fólk afsakandi og benti á unga
manninn. Þetta reyndist ein-
hvers konar „prumpa í stamp-
inn“-húmor en hjálpi mér, hvað
það var skemmtilegt að lesa upp
fyrir þetta káta fólk. Á eftir mér
steig þéttholda Finni á svið. Hann
lék á skemmtara og söng My Way
á finnsku. Þá mátti heyra saumnál
detta, nema þegar mér og Lise frá
Hjaltlandi varð það á að horfast í
augu og flissið þrengdi sér fram á
milli tannanna.
VISSULEGA voru þarna fastir
liðir sem maður getur alltaf búist
við á rithöfundaþingi, svo sem
konan sem spyr hvort maður hafi
séð álfa og maðurinn sem dansaði
við Vigdísi Grímsdóttur (að þessu
sinni árið 1993!) og hefur enn ekki
jafnað sig. Annars var allt frekar
öfugsnúið. Ég spurði Finnana um
fjárhagsþrengingarnar í byrjun
10. áratugarins. Jú, eitthvað hafði
verið erfiðara að fá vinnu en þetta
fólk hafði aðallega verið í námi á
þessum tíma og þá er fólk hvort
sem er blankt. Það hafði því lítið
fundið fyrir erfiðleikunum.
FINNAR hafa marga fjöruna
sopið og árið 1969 þegar þeir áttu
varla bót fyrir boruna á sér ákváðu
þeir nú samt að höggva kirkju inn
í klett í Helsinki. Leiðsögukonan
hristi höfuðið af hneykslun. „Sjáið
bruðlið,“ sagði hún og benti upp
í koparþakið. „Svo verður allt of
heitt hér í sólskini.“ Þegar maður
situr inni í kirkjunni og horfir á
hvern koparhringinn taka við af
öðrum færist yfir mann ró sem
öllum er bráðnauðsynleg. Og nái
maður að kasta tölu á hringina
getur maður jafnvel komist að því
hvað Guð er gamall.
Finnska leiðin