Fréttablaðið - 22.06.2009, Síða 32

Fréttablaðið - 22.06.2009, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Í dag er mánudagurinn 22. júní, 173. dagur ársins. 2.56 13.29 0.03 1.29 13.14 0.59 FRÍTT Það kost ar ekker t að nálg ast Konur og Kaupma nnahöfn á www.ice landexpr ess.is með ánægju Kaupmannahöfn er frábær fyrir konur á öllum aldri. Verslanir með öllum fínustu merkjunum, það heitasta í hönnun og náttúrulega þessar stóru og ódýrari fataverslanir sem allir þekkja. Svo er upplagt að dekra aðeins við sig inn á milli og hafa það huggulegt á kaffihúsum og njóta lífsins á veitingahúsum borgarinnar. Af nógu er að taka! Á vefnum okkar finnurðu veftímaritið Konur og Kaupmannahöfn sem hefur að geyma spennandi og hagnýtar upplýsingar um tísku og hönnun, bestu kaupin og ýmis góð ráð fyrir konur í Kaupmannahöfn. Nánar á www.icelandexpress.is Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Um er að ræða valdar dagsetningar og takmarkað sætaframboð. Flugsæti frá: 12.900 kr. Kvenlega hliðin á Køben BÓKAÐU NÚNA! Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74% Rithöfundaþingið í Lahti í Finn-landi var sett í nístingskulda í síðustu viku. Fyrirlestrarnir fóru ekki fram úti við eins og stað- ið hafði til, heldur inni í tjaldi og urðum við þátttakendur að vefja okkur inn í þykk teppi. Ekki hafði ég dvalist lengi á finnskri grund þegar ég áttaði mig á því að fleira en veðrið var öfugsnúið. Ég hafði verið beðin um að lesa upp ljóð og var ungur heimamaður fenginn til að lesa þýðingarnar. Þær voru bæði til á ríkisfinnsku og mál- lýsku, og lagði maðurinn áherslu á að lesa frekar mállýskuna. Þetta eru alldramatísk ljóð um dauða, einmanaleika og svoleiðis nokk. Ég hafði því búist við nokkurri yfir- vegun hjá áheyrendum en það var öðru nær. TIL að byrja með mátti heyra fólk flissa en ekki leið á löngu þar til salurinn sprakk úr hlátri. „Þetta hafði ekkert með ljóðin að gera, heldur hvernig hann las,“ sagði fólk afsakandi og benti á unga manninn. Þetta reyndist ein- hvers konar „prumpa í stamp- inn“-húmor en hjálpi mér, hvað það var skemmtilegt að lesa upp fyrir þetta káta fólk. Á eftir mér steig þéttholda Finni á svið. Hann lék á skemmtara og söng My Way á finnsku. Þá mátti heyra saumnál detta, nema þegar mér og Lise frá Hjaltlandi varð það á að horfast í augu og flissið þrengdi sér fram á milli tannanna. VISSULEGA voru þarna fastir liðir sem maður getur alltaf búist við á rithöfundaþingi, svo sem konan sem spyr hvort maður hafi séð álfa og maðurinn sem dansaði við Vigdísi Grímsdóttur (að þessu sinni árið 1993!) og hefur enn ekki jafnað sig. Annars var allt frekar öfugsnúið. Ég spurði Finnana um fjárhagsþrengingarnar í byrjun 10. áratugarins. Jú, eitthvað hafði verið erfiðara að fá vinnu en þetta fólk hafði aðallega verið í námi á þessum tíma og þá er fólk hvort sem er blankt. Það hafði því lítið fundið fyrir erfiðleikunum. FINNAR hafa marga fjöruna sopið og árið 1969 þegar þeir áttu varla bót fyrir boruna á sér ákváðu þeir nú samt að höggva kirkju inn í klett í Helsinki. Leiðsögukonan hristi höfuðið af hneykslun. „Sjáið bruðlið,“ sagði hún og benti upp í koparþakið. „Svo verður allt of heitt hér í sólskini.“ Þegar maður situr inni í kirkjunni og horfir á hvern koparhringinn taka við af öðrum færist yfir mann ró sem öllum er bráðnauðsynleg. Og nái maður að kasta tölu á hringina getur maður jafnvel komist að því hvað Guð er gamall. Finnska leiðin

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.