Fréttablaðið - 24.06.2009, Page 14

Fréttablaðið - 24.06.2009, Page 14
14 24. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR UMRÆÐAN Ágúst Guðmundsson og Áslaug Thorlacius skrifa um hönnun og list Talsverðar umræður hafa spunnist út af bókun okkar í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur út af vali á borgarlistamanni í ár. Eins og gjarnan gerist koma fram ýkjur og oftúlkanir, og rökræn niðurstaða nokkrum setning- um síðar er sú að undirrituð séu óbæri- lega hrokafull og gjörræðisleg. Svona vill þetta nú oft verða í umræðum á Íslandi, fólk verður stóryrtara en það þarf að vera. Þeir sem vilja setja list og hönnun undir sama hatt hafa ýmislegt til síns máls, og verði það krafa félagsmanna skulum við hafa forgöngu um að taka til athugunar nýja skipan á regnhlífar- samtökum þeim sem kallast Bandalag íslenskra listamanna og við erum í for- svari fyrir þessi misserin. Við getum meira að segja tekið undir með Goddi að sama sé hvaðan gott komi. En rétt eins og okkur ber að tala fyrir okkar hagsmunasamtök, talar Goddur sem kennari í hönnunardeild Listaháskólans og er þar af leið- andi ekki óhlutdrægur aðili, frekar en rektor og deildarforseti sama skóla. Fríða á Mogganum er á hlutlausu svæði og kemur með ágæt rök. Það má vissulega spyrja: Er frábær fatahönnuður ekki jafnmikils virði og frábær listmálari? – og því mundum við seint svara neitandi, en jafnframt má spyrja á móti: Hver er ástæðan til þess að yfirleitt er verið að skilja á milli einstakra starfsstétta á þessu sviði? Samtök listamanna hljóta að standa vörð um hagsmuni sína rétt eins og önnur stéttarfélög. Með harðfylgi hefur listamönnum tekist að ýta á ráðamenn til að fá reistar stofn- anir utan um starfsemi sína, það eru til launasjóðir, sem líklega væru ekki björgulegir ef ekki hefði verið dugandi fólk í forystu fyrir samtökum okkar. Grunnurinn að þessu öllu er að litið sé á listamenn sem atvinnumenn, hverja á sínu sviði. Orðið listamaður verður þannig í okkar augum starfsheiti, rétt eins og læknir, blaðamaður eða – hönn- uður. Í almennu máli finnst orðið lista- maður þó vissulega í merkingunni: ein- hver sem kann sitt fag, sem vinnur verk sitt vel. Því má svo bæta við að á meðan hönn- uðir líta gjarnan á sig sem listamenn, leyfist listamönnum ekki alltaf að líta á sig sem hönnuði, eins og nýleg sam- keppni, Hönnun í anda Erró, ber vitni um. Þar liggja væntanlega einhverjar faglegar forsendur að baki – en sama gildir þá um bókun okkar í ráðinu. Og þeir sem saka okkur um óbilgirni ættu ekki gleyma því að Bandalagið sam- þykkti fyrir sitt leyti nú í vetur að sérstakur sjóður verði stofnaður fyrir hönnuði í lögum um starfslaun listamanna. Vitrænustu athugasemdirnar koma síðan frá Steinunni Sigurðardóttur borgarlistamanni sjálfri, þar sem hún hvetur til samvinnu og sátta. Vitaskuld kviðum við því að henni kynni að sárna bókunin, en aldrei var það ætlunin að gera lítið úr henni eða verkum hennar. Viðbrögð hennar eru henni og stéttinni allri til sóma. Þessi marg- verðlaunaði hönnuður er greinilega hátt yfir arga- þrasið hafinn. Ágúst Guðmundsson er forseti BÍL og Áslaug Thorlacius formaður SÍM. ÁGÚST GUÐMUNDSSON ÁSLAUG THORLACIUS Hönnun og list UMRÆÐAN Margeir Pétursson gerir athugasemd við grein Þorvaldar Gylfasonar Það verður ekki hjá því komist að gera alvarlega athugasemd við umfjöllun dr. Þor- valdar Gylfasonar próf- essors í Fréttablaðinu síðastliðinn fimmtudag undir fyrirsögninni „Fjórar bækur um hrun“. Þar fjallar hann um nýja bók með eftir farandi hætti: „Bók Þorkels Sigurlaugssonar, Ný framtíðarsýn, er af öðrum toga af kápunni að dæma. Þar fjallar eitt hvellasta gjallarhorn útrásar- innar um endurreisn efnahagslífsins og bætt viðskiptasiðferði. Ég hef ekki lesið bókina og hef því ekkert meira um hana að segja.“ Þetta er afskaplega ósanngjörn afgreiðsla sem ekki verður unað við af hálfu þeirra sem þekkja til starfa og ferils Þor- kels Sigurlaugssonar og hafa þar að auki lesið bók hans. Allt sem Þorkell hefur ritað undanfarna áratugi byggir einmitt á því að vanda þurfi mjög til stjórnunar- hátta fyrirtækja og byggja þurfi þau upp á heilbrigðan hátt. Ég held að ekkert geti verið fjarlæg- ara hans gildum en að hægt sé að ná í skjótfenginn gróða með því að stækka sem hraðast og skuldsetja sig sem mest. Það var einmitt langtímahugsun Þorkels sem viðskiptalífið skorti mjög á árunum 2003-2008, þegar allt virtist svo auðvelt. Þorkell starfaði hjá Eimskip á níunda og tíunda áratugnum þegar félagið innleiddi nýja og agaðri stjórnunar hætti, sem mörgum urðu fyrir mynd. Hann hefur ávallt haft brennandi áhuga á stjórnun og stefnumótun fyr- irtækja og verið ötull við að miðla af reynslu sinni og þekk- ingu. Þorkell tók t.d. að sér að koma að stjórnum ýmissa sprota- fyrirtækja og ber þar hæst Marel og Össur, auk margra annarra. Í gegnum alla þá reynslu þekkir Þorkell manna best að það kost- ar mikið erfiði og fórnir að koma á fót fyrirtæki sem er arðbært og veitir mörgum atvinnu. Um svipað leyti og nýir menn með nýja siði tóku yfir rekstur Eimskips söðlaði Þorkell um og hóf störf við Háskólann í Reykja- vík. Hans viðhorf fóru líka úr tísku í nokkur ár, en nú er hans tími kominn eins og fleiri. Það er gott til þess að hugsa í núver- andi erfiðleikum að ungt og metn- aðarfullt fólk geti leitað í smiðju hans. Rit hans Ný framtíðarsýn er jákvætt og þarft innlegg í umræð- una um framtíð Íslands, sem allir ættu að kynna sér. Þorkell Sigur- laugsson þekkir mikið mótlæti vegna fötlunar, en lætur það ekki á sig fá. Það eru þeir menn sem gefast ekki upp við andstreymi sem vert er að hlusta á núna. Höfundur er stjórnarformaður MP Banka. Þorkell á betra skilið Ég held að ekkert geti verið fjarlægara hans gildum en að hægt sé að ná í skjótfenginn gróða með því að stækka sem hraðast og skuldsetja sig sem mest. MARGEIR PÉTURSSON HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Öll helstu merkin í bakpokum: TNF, Millet, Deuter, Osprey. ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 46 55 9 06 /0 9 Deuter Aircontact Pro Sá vandaðasti úr smiðju Deuter. Frábært stillanlegt burðarkerfi. Fáanlegur í ýmsum stærðum f. dömur og herra. Deuter Aircontact Margverðlaunaður bakpoki! Góður í lengri ferðir. Vandað, stillanlegt burðarkerfi. Regnyfirbreiðsla. Fáanlegur í ýmsum stærðum f. dömur og herra. Deuter Futura Okkar vinsælustu dagpokar! Með frábæru öndunarkerfi í baki. Regnyfirbreiðsla og ýmsar festingar. Fáanlegur í ýmsum stærðum. 70+15 L Verð: 39.990 kr. 60+15 L Verð: 48.990 kr. 55+15 L Verð: 41.990 kr. 60+10 L Verð: 29.990 kr. 65+10 L Verð: 29.990 kr. 75+15 L Verð: 32.990 kr. 22 L Verð: 16.990 kr. 28 L Verð: 12.990 kr. 32 L Verð: 19.990 kr. Góðir ferðafélagar í sumar Deuter bakpokarnir eru mest verðlaunuðu bakpokar seinni ára SENDU SMS EST 3LV Á NÚMERIÐ 1900 - ÞÚ GÆTIR UNNÐ EINTAK! Fullt af aukavinningum: Tölvuleikir, DVD myndir, gos og margt fleira! 199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. KOMNIR ÍELKO! 9. HVER VINNUR ! WWW.BREIK.IS/3GAMES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.