Fréttablaðið - 24.06.2009, Side 18

Fréttablaðið - 24.06.2009, Side 18
MARKAÐURINN 24. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4 Ú T T E K T A llir eru að bíða. Bankakerfið ýtir á undan sér stórum ákvörð- unum sem vinda endalaust upp á sig. En enginn tekur ákvörðun um það sem þarf að gera,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins. Samtökin sendu í gær frá sér harðorða ályktun þar sem segir að verktakastarf- semi landsins sé að blæða út. Niðurskurður í vegagerð sé reiðarslag og skora samtök- in á ríkisstjórnina að taka boðaðan niður- skurð í samgöngumálum upp á tólf millj- arða króna til endurskoðunar. Þá er varað við framkvæmdastoppi við núverandi aðstæður enda eigi að halda framkvæmdastigi í horfinu í lengstu lög. Samtök iðnaðarins benda á í ályktun sinni að á árum áður hafi á bilinu tíu til tólf þús- und manns starfað við mannvirkjagerð. Nú stefni fjöldinn niður í fjögur þúsund manns. Þótt niðurskurður sé óumflýjan legur um þessar mundir sé óþolandi að hann bitni allur á mannvirkjagreinum. Bent er á að með niðurskurðinum megi búast við að gjaldþrotum fyrirtækja, ekki síst verktakafyrirtækja, muni fjölga á næst- unni, fjöldi fólks bætast við þær þúsundir sem þegar hafi misst vinnuna síðustu mánuði hjá fyrirtækjum á borð við Ístak, ÍAV, Loftorku, Hlaðbæ-Colas, Klæðningu, Hektar, Háfelli, Ásbergi og Nesprýði. Fyrirtækin bíði öll skýrra svara fyrir mán- aðamót í næstu viku. Fyrir þann tíma þurfi að taka ákvarðanir um framtíð mörg hundr- uð starfsmanna fyrirtækjanna. Jón Steindór, líkt og aðrir þeir sem Markaðurinn hefur rætt við um íslenskt atvinnulíf síðustu misseri, vitnar til við- bragða Görans Persson, fyrrverandi for- sætisráðherra Svía og þeirra ráða sem stjórnvöld þar notuðu þegar sænska fjár- málakerfið fór á hliðina í byrjun tíunda ára- tugar síðustu aldar. Viðbrögðin voru snörp öfugt við það sem hér hefur viðgengist. „Það verður að horfast í augu við vandann og grípa strax til aðgerða. Við tökum hins vegar plásturinn af hægt og rólega, það er verra,“ segir hann og leggur áherslu á að koma hjólum atvinnulífsins í gang. Takist það ekki fljótlega geti vandinn orðið dýpri og erfiðari en ella. ERFIÐAR AÐSTÆÐUR „Aðstæður eru ekki góðar,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskipta- ráðs. „Útlánsvextir bankanna eru allt of háir og enginn sérlega áhugasamur um að taka lán á þeim kjörum sem bjóðast.“ Hann bætir við að fá fyrirtæki standi undir slík- um byrðum. Finnur segir fjármögnunarþörf atvinnu- lífsins allnokkra á næstu mánuðum. Ekki sé ljóst hvernig henni verði mætt nema með þeim afarkostum sem bjóðist. „Það er mikilvægt að fá fjármagn inn í atvinnulífið svo svigrúm verði til fjárfest- inga og ráðninga á starfsfólki. Til að það verði að veruleika þarf að lækka stýrivexti verulega. Ljóst er að uppfylla þarf ákveðn- ar forsendur svo hægt sé að lækka vexti, en þar liggur boltinn hjá stjórnvöldum,“ segir hann og bætir við að ljúka þurfi trúverðugri áætlun um fjármál hins opinbera og ljúka endurskipulagningu bankakerfisins. „Frumvarpið sem nú liggur fyrir vegna ríkisfjármála veldur nokkrum vonbrigðum, sérstaklega að álögur á fyrirtæki og heimili eru auknar en ekki verulega gengið fram í niðurskurði á útgjöldum hins opinbera þar sem svigrúm ætti að vera til þess í ljósi út- þenslu undanfarinna ára. Þó er jákvætt að verið er að búa til ákveðinn sjóndeildahring og framvindan að skýrast. En við núverandi aðstæður munu fyrirtæki landsins halda að sér höndum og þá teygist á niðursveiflunni,“ segir Finnur Oddsson. Þar eru sömuleiðis ákvæði sem gera fjár- mögnun íslenskra fyrirtækja enn erfiðari, svo sem hugmyndir um ádráttarskatt á er- lendar vaxtagreiðslur, að hans sögn. AUKNAR ÁLÖGUR Í FARVATNINU Allir viðmælendur Markaðarins eru sam- mála um að álögur hins opinbera séu að sliga fyrirtæki landsins. Þótt stýrivextir hafi mjakast niður séu þeir enn mun hærri en í samkeppnislöndunum og verji stjórnendur fyrirtækja of miklum tíma í varnarstöðu í afleitu rekstrarumhverfi. Fyrirtæki landsins, sem Íslensk fyrirtæki í öndunarvél Fjármögnun fyrirtækja hér á landi er mjög erfið um þessar mundir. Viðmælendur Markaðarins sögðu í samtali við Jón Aðalstein Bergsveinsson útlit fyrir að aðstæður ættu eftir að versna enn frekar yrði ekki gripið til trúverðugra aðgerða. JÓN STEINDÓR VALDIMARSSON FINNUR ODDSSON BYGGINGARKRÖNUM BEINT ÚT Í BLÁINN Aðstæður í fyrirtækjarekstri hér á landi eru erfiðar um þessar mundir. Ekki er ljóst hvert stefnir á næstu misserum. MARKAÐURINN/SAMSETT MYND Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.