Fréttablaðið - 24.06.2009, Page 32
24. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR10 ● fréttablaðið ● ísland er land mitt
Fjórhjólaævintýri nefnist fyrir-
tæki í Grindavík sem sérhæfir
sig í að skipuleggja ferðir og
aðra viðburði fyrir fyrirtæki og
hópa. Þar verður Jakob Sigurðs-
son fyrir svörum.
„Fjórhjólin eru einna vinsælust
hjá okkur en við bjóðum upp á af-
þreyingu af öðrum toga líka, hella-
skoðun, reiðhjólaferðir, hópeflis-
leiki, sig og inniklifur svo nokkuð
sé nefnt,“ segir Jakob þegar hann
er beðinn að lýsa starfsemi fyrir-
tækisins Fjórhjólaævintýris sem
gert er út frá Grindavík.
Hann segir stundum heila
daga skipulagða fyrir hópa, með
ferðum, leikjum og máltíðum.
„Fólk hefur gaman af því að prófa
allt,“ útskýrir hann. „Þetta er búið
að vera mjög vinsælt og við höfum
verið með dans og hvaðeina sem
okkur dettur í hug til að gera dag-
ana skemmtilega.“
Grunnleiðirnar sem farnar
eru á fjórhjólum liggja bæði til
fjalls og fjöru og taka frá klukku-
tíma upp í þrjá að sögn Jakobs.
„Við þræðum gamla slóða eftir
kindur og veiðimenn og berum
virðingu fyrir náttúrunni og
sögunni á svæðinu,“ segir hann.
„Selatangi er til dæmis gamall
útróðrarstaður sem gaman er
að heimsækja,“ bendir hann á og
lýkur líka lofsorði á útsýnið ofan
af Hagafelli á góðviðris dögum.
Þangað segir hann auðvelt að
komast á hjólunum. En þarf ekki
sérstök réttindi til að keyra fjór-
hjól? „Jú, það þarf bílpróf. Þau eru
skráð á götuna eins og bílar.“
Hann segir fyrirtækið leggja
áherslu á að hafa öryggi í fyrir rúmi
þegar ferðast sé á hjólunum og
allir sem vinni í fyrirtækinu hafi
lokið skyndihjálparnámskeiðum.
„Svo erum við með talstöðvar og
tengdir björgunarsveitum,“ tekur
hann fram.
Jakob segir Grindavíkursvæðið
ríkt af hellum. Einn þeirra verður
oftast fyrir valinu þegar sóst er
eftir hellaferð. Hvelfing hans er
stór og þar niðri er kolniðamyrkur
en allir væðast vasaljósum sem
fara þangað inn. „Ef við fáum stóra
hópa þá skiptum við þeim gjarnan
upp. Við erum með fimmtán fjór-
hjól og getum tekið þrjátíu manns
á þau en ef um stærri hópa er að
ræða fer kannski helmingurinn í
hellaskoðun og hópefli á meðan og
skiptir svo,“ lýsir Jakob og bendir
á heimasíðuna www.atv4x4.is.
- gun
Leiðin liggur ýmist til fjalls eða fjöru á fjórhjólunum. MYNDIR/4X4
Jakob segir leiðsögumennina bera virðingu fyrir náttúrunni og sögunni á
Suðurnesjum.
Við þræðum gamla slóða
eftir kindur og veiðimenn
Margrét Rún Guðmundsdóttir
hefur tekið við rekstri Leifsbúðar
í Búðardal, þar sem kaffihús, sem
veitingamaðurinn Örlygur Ólafs-
son rak, var opnað síðasta sumar.
„Ég var að vinna á auglýsinga-
stofu í Reykjavík sem fór á haus-
inn í maí. Þetta verkefni kom upp
í hendurnar á mér og þá var annað
hvort að hrökkva eða stökkva.“
Margrét segir að mikið verði um
að vera í Leifsbúð í sumar, meðal
annars trúbadorakvöld og mynd-
listarsýningar, auk þess sem dag-
skrá verður tileinkuð rithöfundin-
um Jóni Kalman.
Leifsbúð er sögufrægt hús sem
þekkt er sem gamla kaupfélags-
húsið á meðal Dalamanna en þar
er nú að finna sýningu tileinkaða
landafundum þeirra feðga Eiríks
rauða og Leifs heppna.
Leifsbúð verður opin alla daga
í sumar frá klukkan 10 og fram
eftir kvöldi eða eins og eftirspurn
er eftir. - mmf
Ný í gamla kaupfélaginu
Í Leifsbúð verður mikið um að vera í sumar. MYND/ÚR EINKASAFNI
4
A
AGUR:
unn og Svansí
FÖSTUDAGUR:
Í bítið
Ívar Guðmunds
Siggi Ragg
Reykjavík síðdegis
LAUGARD
Hemmi G
strax að loknum
hádegisfréttum
26.-27. júní
Á Ólafsfirði
Bylgjan og Olís fara umhverfis
landið á 80 dögum í sumar. Um
hverja helgi leggjum við undir
okkur nýjan áfangastað – byrjum
í bítið á föstudagsmorgni og förum
ekki fyrr en Hemmi og Svansí ljúka
leik síðdegis á laugardegi. Við
drögum vikulega úr potti
Ævintýraeyju Olís og bregðum á
leik með hlustendum Bylgjunnar
um allt land.
Sjáumst hress á Blúshátíð á Ólafsfirði
um næstu helgi!
BYLGJAN
á ferðalagi
Ólafsfjörður næstu helgi!