Fréttablaðið - 24.06.2009, Síða 44
16 24. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Þetta er bara alveg frábært. Ég er af-
skaplega stolt,“ segir Laufey Jensdóttir
myndlistarmaður, sem var valin bæjar-
listamaður Garðabæjar árið 2009.
Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garða-
bæjar afhenti Laufeyju starfstyrk lista-
manns við hátíðlega athöfn í Vídalíns-
kirkju á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17.
júní.
Laufey er fædd í Reykjavík árið 1961
en uppalin í Dalasýslu. Hún hefur verið
búsett í Garðabæ síðastliðin 25 ár. Hún
útskrifaðist með BA gráðu í myndlist
frá Listaháskóla Íslands árið 2002 og ári
síðar lauk hún Diplómaprófi í kennslu-
fræði frá sama skóla. Hún hefur sér-
hæft sig í leirlist en að undanförnu hafa
aðrir miðlar verið henni hugfólgnir. „Ég
hef verið að mála á olíu og í akríl. Ég
hef ekki fest mig í einum miðli frekar
en öðrum, enda geta aðstæður skapað
efniviðinn. Mér finnst bara ofboðslega
gaman að prófa mig áfram og koma um
leið svolítið á óvart.“
Laufey hefur haldið einkasýningar á
verkum sínum og tekið þátt í mörgum
samsýningum hérlendis. Þá hefur hún
ásamt fleirum unnið ötullega að því að
auka sýnileika listamanna í Garðabæ.
„Ég og fleiri g myndlistarmenn í Garða-
bæ viljum vekja athygli á að hér er fullt
af skapandi og starfandi listamönnum. Í
ljósi þess hversu hörðum höndum ég hef
unnið að því að undanförnu finnst mér
þessi útnefning ekki síður viðurkenning
á því starfi,“ segir hún stolt í bragði.
Hópurinn hefur svo sannarlega ekki
setið auðum höndum síðan hann var
stofnaður. Til marks um það stóðu nítj-
án listakonur innan hans fyrir gjörningi
á Kvennadaginn 19. júní í samráði við
Kvennahlaupsnefnd, í tengslum við og
í tilefni af 20 ára afmæli Kvennahlaups-
ins. „Þetta var fjölmennasti listgjörn-
ingur sem hefur verið framkvæmdur
hér á landi þar sem allar konur í hlaup-
inu tóku þátt í honum,“ segir Lauf-
ey og bætir síðan við að hópurinn sé
mjög stoltur af þessu stóra samstarfs-
verkefni, sem hefði að sjálfsögðu verið
ógerlegt án þátttöku allra kvennanna
í hlaupinu og vill hún koma sérstöku
þakklæti á framfæri við þær og eins
styrktaraðila hlaupsins.
Þetta er þó aðeins upphafið á sam-
starfinu að sögn Laufeyjar. Næst á
dagskrá er Jónsmessugleði í Garðabæ
í kvöld klukkan 20, sem kallast Gefum,
gleðjum, njótum og á Laufey hugmynd-
ina að henni. Hún er unnin í samstarfi
við bæjaryfirvöld í Garðabæ, tónlistar-
fólk, skáta og fleiri. „Við listamennirnir
ætlum að vera með útilistasýningu með-
fram strandlengjunni, eins og ég kalla
það,“ segir hún og vísar þar í strand-
lengjuna í Sjálandshverfi. „Þar ætlum
við að sýna listaverk og höfum fengið til
liðs við okkur tónlistarmenn og fleira
listafólk úr Garðabæ og vonumst til að
sem flestir bæjarbúar komi saman til
gefa, gleðja aðra og njóta og skapa eftir-
minnilega kvöldstund,“ segir hún.
„Við sem stöndum fyrir þessari hátíð
vonum að hún verði að árlegum við-
burði. Ég hvet bara sem flesta til að
mæta og lofa einstakri upplifun, þar
sem list og náttúra eru í öndvegi höfð.“
roald@frettabladid.is
LAUFEY JENSDÓTTIR MYNDLISTARMAÐUR: ER BÆJARLISTAMAÐUR GARÐABÆJAR
Gaman að koma á óvart
Á þessum degi árið
1865 var fyrsti keisara-
skurðurinn fram-
kvæmdur hér á landi.
Jón Hjaltalín, þáverandi
yfirlæknir, sá um skurð-
inn ásamt Gísla Hjálm-
arssyni lækni, tveimur
frönskum skipslækn-
um sem staddir voru
í Reykjavík og fjórum
læknisfræðistúdentum.
Móðirin, Margrét Arn-
ljótsdóttir, lifði ekki og
barnið dó sex mánaða
gamalt. Ákveðið var að framkvæma keisaraskurð
vegna smæðar konunnar, en samkvæmt Verka-
manninum, 36. tölublaði, þann 15. september
1961, var hún einungis 18 þumlungar að stærð,
eða tæpir 46 sentí-
metrar. „Var það álit
allra lækna að hún gæti
með engu móti fætt
af sér barn með venju-
legum hætti. Aðgerðin
tókst vel, eftir öllum
aðstæðum. Barnið náð-
ist með góðu lífi, 14
marka mey, - en móð-
irin dó eftir þrjú dægur
„af blóðrás hið innri“,“
segir jafnframt í blað-
inu.
Fyrsti keisaraskurður-
inn sem framkvæmdur var á Íslandi og bæði
móðir og barn lifðu var framkvæmdur 45 árum
síðar í Reykjavík, í ágúst 1910. Á Íslandi fæðist nú
um fimmtungur barna með keisaraskurði.
ÞETTA GERÐIST: 24. JÚNÍ 1865
Fyrsti keisaraskurðurinn á Íslandi
STEFÁN V. JÓNSSON, STÓRVAL, (1908-
1994) FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Ég er Íslendingur elskan
mín og mála það sem er erf-
iðast að mála og aðrir geta
ekki eða láta sér ekki detta í
hug. Herðubreið og hólana og
fjöllin úr Möðrudal og hesta og
krakka. Stundum set ég and-
lit á þá, ekki alltaf, það kaupir
þetta jafnt hvort sem er.“
Stefán V. Jónsson tók að mála
á gamals aldri og merkti mynd-
ir sínar Stórval. Einlægur einfald-
leiki og litadýrð einkenna mynd-
ir hans.
MERKISATBURÐIR
1000 Kristni er lögtekin á Al-
þingi.
1886 Stórstúka Íslands stofnuð.
1923 Listasafn Einars Jónssonar
er opnað á Skólavörðu-
hæð.
1956 Hræðslubandalagið svo-
kallaða, framboð Fram-
sóknarflokks og Alþýðu-
flokks bauð fram í Alþing-
iskosningum.
1968 Nató heldur fund á Ís-
landi í fyrsta sinn.
1974 Bresk stjórnvöld viður-
kenna að hafa sprengt
kjarnorkusprengju í
Bandaríkjunum í tilrauna-
skyni.
1983 Sally Ride, fyrst amer-
ískra kvenna til að fara út
í geim, lendir aftur á jörð-
inni eftir sex daga ferð.
AFMÆLI
PÉTUR H.
BLÖNDAL
alþingismaður
er 65 ára.
LEIFUR BREIÐ-
FJÖRÐ mynd-
listar maður er
64 ára.
LIONEL MESSI
knattspyrnu mað-
ur er 22 ára.
SISSEL KYRKEBÖ
sópransöng kona
er fertug.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Ingi Björn Halldórsson
er látinn.
Anna Guðný Ingadottir Hans Dingler
Brynja Ingadóttir Guðmundur Hreggviðsson
Brjánn Ingason Bryndís Björgvinsdóttir
Inuk Jóhannesson Dingler
Valborg Guðmundsdóttir
Hallbera Guðmundsdóttir
Björg Brjánsdóttir
Guðrún Brjánsdóttir
Ingi Brjánsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu, systur og
mágkonu,
Ásu Sigríðar Hilmarsdóttur
Akraseli 34, Reykjavík.
Hans Kristinsson
Hilmar Hansson
Hans Jakob Hilmarsson Kristinn Már Hilmarsson
Anna Hansdóttir
Ása Sigríður Sigurðardóttir Emil Jóhann Sigurðsson
Hafdís Hansdóttir Pálmi Dungal
Bríet Glóð Pálmadóttir
Svanhildur Hilmarsdóttir Ólafur Friðsteinsson
Ósk G. Hilmarsdóttir Gunnar Harrysson
MOSAIK
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þorbjörg Hólmfríður
Sigurjónsdóttir
Miðtúni 80, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi miðviku-
daginn 17. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 26. júní kl. 11.00.
Guðlaug Friðriksdóttir Ragnar Einarsson
María Friðriksdóttir Grímur Andrésson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær dóttir okkar, systir og mágkona,
Dagný Sverrisdóttir
Sléttuvegi 9, áður Hátúni 10, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn
16. júní. Jarðarförin fer fram föstudaginn 26. júní
kl. 13.00 frá Grensáskirkju. Þökkum starfsfólki
Hjartadeildar 14G fyrir frábæra umönnun.
Sverrir Halldórsson Steinunn Ingvarsdóttir
Hrafnhildur Sverrisdóttir Magnús Hafsteinsson
Guðrún G. Sverrisdóttir Chris Frankish
og frændsystkini.
STOLT Laufey Jensdóttir er bæjarlistamaður Garða-
bæjar. Hún hefur látið fjölbreytileikann ráða för á
ferlinum. Skemmtilegt þykir henni að tefla saman
ólíkum efnum, vera hvort tveggja í senn örlítið
væmin og ögrandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R