Fréttablaðið - 24.06.2009, Side 48

Fréttablaðið - 24.06.2009, Side 48
20 24. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500 SÍMI 564 0000 10 10 16 7 7 L 12 L 14 YEAR ONE kl. 5.50 - 8 - 10.10 GHOSTS OF A GIRLFRIEND PAST kl. 5.50 - 8 TERMINATOR: SALVATION kl. 10 7 7 12 TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 D TRANSFORMERS 2 LÚXUS kl. 5 - 8 - 11 D LESBIAN VAMPIRE KILLERS kl. 8 - 10 YEAR ONE kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 GHOSTS OF A GIRLFRIEND PAST kl. 5.45 - 8 GULLBRÁ kl. 3.10 TERMINATOR: SALVATION kl. 10.30 NIGHT AT THE MUSEUM 2 kl. 3.30 ANGELS & DEMONS kl. 5 5% FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI 5% 12 7 7 L 14 TYSON kl. 6 - 8 - 10 YEAR ONE kl. 5.50 - 8 - 10.10 GHOSTS OF A GIRLFRIEND PAST kl. 8 - 10.15 GULLBRÁ kl. 6 ANGELS & DEMONS kl. 6 - 9 SÍMI 530 1919 16 7 12 14 LESBIAN VAMPIRE KILLERS kl. 6 - 8 - 10 YEAR ONE kl. 5.45 - 8 - 10.15 TERMINATOR kl. 5.30 - 8 - 10.30 ANGELS & DEMONS kl. 5.30 - 8.30 600kr. fyrir börn 750kr. fyrir fullorðna SÍMI 551 9000 750 KR. FULLORÐNIR 600 KR. BÖRN 750 KR. FULLORÐNIR 600 KR. BÖRN TRANSFORMERS 2 kl. 5D - 8D - 11D 10 TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 HANGOVER kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12 MANAGEMENT kl. 5:50 - 8 10 ADVENTURELAND kl. 3:40 - 5:50 12 STAR TREK XI kl. 10:20 10 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 4 - 6 L HANNAH MONTANA kl. 3:40 L TRANSFORMERS 2 kl. 4D - 7D - 10D 10 THE HANGOVER kl. 4 - 6D - 7 - 8D - 9:10 - 10:20D 12 CORALINE 3D m/ísl.tali kl. 4(3D) L TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 12 HANGOVER kl. 6 - 8 - 10 12 KYNNTU ÞÉR SÝNINGARTÍMA Á SELFOSSI OG Í KEFLAVÍK Á WWW.SAMBIO.IS 36.000 GESTIR VINSÆLASTA MYNDIN POWER POWER POWER SÝNINGAR um land allt POWER FRÁ LEIKSTJÓRANUM MICHAEL BAY ásamt stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS - bara lúxus Sími: 553 2075 TRANSFORMERS 2 - POWER kl. 4, 7 og 10 10 YEAR ONE kl. 4, 6, 8 og 10 7 GHOSTS OF GIRLFRIENDS PAST kl. 6 og 8 7 GULLBRÁ kl. 4 - Ísl. tal L TERMINATOR SALVATION kl. 10 14 POWERSÝNINGKL. 10.00 HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI ! FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS „Ég tók mér frí frá spilamennskunni fyrir nokkrum árum. Þegar ég byrjaði svo að koma fram aftur fannst mér vanta vettvang fyrir elektróníska tónlist. Þá er ég ekki að tala um teknó heldur meira svona „ambíent“,“ segir tónlistarkonan Tanya Pollock um tilurð Weirdcore-tónlistarkvöldanna, en eitt slíkt verður haldið á skemmtistaðnum Jacobsen annað kvöld. Að sögn Tönyu eru kvöldin einkar vel sótt enda er mikill metnaður lagður í að fá efnilega tónlistarmenn til að leika fyrir dansi. „Við byrjuðum með kvöldin á Cafe Cultura en urðum fljótlega að færa okkur um set því staðurinn fylltist alltaf strax og færri kom- ust því að en vildu. Nú eru kvöldin haldin á Jacobsen sem rúmar mun fleiri. Við reynum að velja bæði tón- listarmenn, sem hafa verið að spila lengi, og unga tónlistarmenn, þetta býður uppá mikla fjölbreytni.“ Tanya hefur í nógu að snúast þessa dagana því auk þess að skipuleggja Weirdcore-kvöldin á hún von á barni á næstu dögum. „Það þýðir ekkert að sitja aðgerðarlaus heima þó maður sé óléttur,“ segir Tanya galvösk. Tónlistarmennirnir Yoda Remote, Tonik og Sykur leika fyrir dansi annað kvöld, skemmtunin hefst stundvíslega klukkan 21 og er aðgangur ókeypis. Ólétt að skipuleggja danskvöld TANYA POLLOCK Sér um að skipuleggja sérstök raftónlistarkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Skagahljómsveitin Synir syndanna hefur gefið út sína fyrstu plötu, Hvernig eru himnar? Þessi hressa poppsveit var stofnuð í fyrra af gítarleikaranum Birni Árnasyni og söngvaranum Kristófer Jónssyni, sem semja öll lög og texta á plötunni. Síðan þá hafa þeir Bjarki Þór Aðalsteinsson og Karl Jóhannsson bæst í hópinn. Þrátt fyrir að ætla sér stóra hluti í tónlistinni hafa þeir félagar í nógu öðru að snúast. „Við erum tveir að vinna í álveri, einn er sjómaður og einn er að vinna í Slippnum. Við náum samt alltaf að finna tíma til að hittast þótt ótrúlegt sé,“ segja þeir félagar. „Þessi plata er bara byrjunin. Við erum búnir að semja lög á eina og hálfa plötu í viðbót og ætlum að hefja upptökur á næstu plötu í haust.“ Við upptökur á Hvernig eru himnar? fengu þeir góða aðstoð frá Pálma Sigurhjartarsyni úr Snigla- bandinu, trommaranum Jóhanni Hjörleifssyni og fleiri fagmönnum úr tónlistarbransanum og kunna þeir þeim bestu þakkir fyrir. Synir syndanna spiluðu síðast á Akranesi á laugardagskvöld til minningar um Sigmund Erling Ingimarsson, sem lést á dögunum á 27. aldursári. Stutt er síðan hann vann sér það til frægðar að hafa trommað með Mugison á tónleik- um í Bíóhöllinni á Akranesi. - fb Synirnir ætla sér stóra hluti SYNIR SYNDANNA Skagahljómsveitin Synir syndanna hefur gefið út sína fyrstu plötu. Tökum á Fangavaktinni lauk fyrir rúmri viku eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Leikararnir fengu smá frí frá þessum vinsælu karakterum en vinna við kvikmyndina Bjarnfreðar- son hófst í gær á Litla- Hrauni. Jón Gnarr bregður sér í hlutverk afa Georgs í myndinni og Páll Winkel fékk draum sinn um lítið hlutverk uppfylltan. Eins og flestum ætti að vera kunnugt um þá er Bjarnfreðar- son sjálfstætt framhald af sjón- varpsþáttaröðunum Næturvakt- inni, Dagvaktinni og áðurnefndri Fangavakt en hún verður sýnd á Stöð 2 með haustinu. Þeir Jón Gnarr, Pétur Jóhann og Jörund- ur Ragnarsson verða því búnir að vera í þessum gervum sínum í næstum tvo mánuði þegar tökum á kvikmyndinni lýkur. „Þetta er ekkert farið að taka á sálina, ég er náttúrlega töffari og harður nagli, aldrei hræddur við neitt og er ónæmur fyrir sárs- auka,“ segir Jón Gnarr. Hann við- urkennir þó að hann verði feginn þegar þessu öllu lýkur því kvik- myndin muni svo sannarlega reyna á hann. „Ég leik nefnilega líka afa Georgs, pabba Bjarn- freðar. Það er alveg svakalegur náungi, mikið verri en Georg og hann er alveg staðráðinn í að gera mig geðveikan. Ég er svona eins og Emily Rose sem var andsetin. Nema að hún þurfti að kljást við einn djöful, ég er að berjast við tvo.“ Og Jóni líst vel á mömmu sína, eða rét tara sagt mömmu Georgs, en það er Ágústa Eva Erlendsdóttir sem leikur Bjarn- freði. „Já, það er alveg stórkost- legt að eiga hana fyrir mömmu.“ Að sögn Magnúsar Viðars Sig- urðssonar, framleiðanda þátt- anna og kvikmyndarinnar, hefur allt gengið snurðulaust fyrir sig og þeir hafa átt gott samstarf við fangelsismálayfirvöld, fanga og fangaverði. „Þetta hefur gengið alveg rosalega vel og allir hafa tekið okkur alveg óskaplega vel.“ Og það er kannski rétt rifja upp orð Páls Winkel fangelsismálastjóra, sem sagðist í samtali við Fréttablaðið í mars ekki vera mikill leik- ari en væri alveg til í að leika lítið hlutverk í þáttunum. Páll fékk ósk sína uppfyllta. „Hann leikur dómara í knatt- spyrnuleik, bara lítið hlutverk en stóð sig eins og hetja.“ freyrgigja@ frettabladid.is Ekki farið að reyna á sálina FRJÁLS Kvikmyndin Bjarnfreðarson segir frá því þegar Georg og félagar losna af Litla-Hrauni. En hún fer líka aftur í tímann og varpar ljósi á æði skrautlega æsku Georgs Bjarnfreðarsonar. Myndin er frá fyrsta tökudegi í gær. PÁLL WINKEL Fangelsismálastjóri fer með lítið hlutverk í Bjarnfreðar- son.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.