Fréttablaðið - 24.06.2009, Page 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Ætlarðu að drulla þér frá eða á ég að þurfa að ýta þér?“
spurði maður sem langaði að kom-
ast að barborðinu þar sem ég sat
nokkra stund á laugardagsnótt. Ég
leit á manninn og átti satt best að
segja von á því að sjá ógæfulegan
og sauðdrukkinn mann fyrir aftan
mig en svo var ekki. Hann var
samkvæmt mínum fordómum afar
ólíklegur til að gera sig sekan um
slíkan dónaskap.
HEIMSPEKINGURINN kemur
upp í mér þegar ég er með bjór í
hendi og verð vitni að svona vit-
leysu. Ég get nefnilega skilið það
að fólk reiðist, að það móðgist og
sýni af sér breyskleika í öllum
regnbogans litum, en framkoma
sem eingöngu er til þess fallin að
afhjúpa innri óreiðu er flóknari en
svo að ég fái úr ráðið.
EFTIR miklar pælingar komst ég
að þeirri niðurstöðu að almennt
væri fólk ekki sérlega illt en
sumt nokkuð ístöðulaust og léti
sig því gossa með straumnum
sem aðstæður byðu upp á hverju
sinni. Til dæmis var þessi fram-
koma ekki svo galin miðað við
þessar aðstæður en hann fengi
eflaust ófáar ákúrur fyrir hana
úti í bakaríi, á skrifstofunni eða
heima hjá sér. Þetta ruglar fólk
í ríminu, hugsaði ég með mér, og
það gleymir því að það er sama
fúlmennið þótt það sýni af sér ólíð-
andi hegðun við aðstæður þar sem
slíkt er látið líðast.
ÉG FÉKK mér annan bjór enda var
ég búinn, að mér fannst, að finna
skýringuna á bankahruninu. Menn
hegðuðu sér með ólíðandi hætti en
góðærið var hins vegar eins og
(ó)menningin á barnum atarna á
laugardagskvöldi; allt var látið líð-
ast. Agamemnon brenndi sig líka
á þessu en í Tróju stríðinu gerði
hann varla annað en að eiga við
konur sem Akkilles hafði hneppt í
kvennafangelsi fyrir hann. Hann
sá ekkert að þessu enda var þetta
látið líðast á stríðstímum í þá
daga. Akkilles var líka alltaf að
hæla honum fyrir þetta en það fór
síðan svo að eiginkonan drap stríðs-
hrjáðan Agamemnon þegar hann
fór heim í bað að stríði loknu.
ÞAÐ VAR þarna sem ég fór að sjá
mömmu fyrir mér, sem er undar-
legt því það gerist venjulega ekki
fyrr en á þriðja bjór. Hún benti á
bringuna á mér svo ég hneppti upp
um tvö göt en þá sagði hún: „Hvort
sem þú ert í stríði, góðæri eða úti á
laugardagsnótt er dómarinn ávallt
hinn sami.“
Heimspeki
á laugar-
dags kvöldi
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
Í dag er þriðjudagurinn 23. júní,
175. dagur ársins.
2.56 13.30 0.03
1.33 13.15 0.54