Fréttablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé 3.41 13.33 23.23 2.56 13.18 23.37 Í dag er miðvikudagurinn 15. júlí 2009, 196. dagur ársins. Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is Það getur einginn huggað mann nema maður sjálfur,“ sagði Eyjólfur í Sölku Völku. Og allir þeir sem hafa þarfnast huggunar við, hvort sem er vegna saknaðar eftir einhverju sem aldrei verð- ur eða minninga um eitthvað sem var, vita innst inni að þarna ratað- ist Bóbó Guðjóns satt orð á munn. Sem svo oft áður. OG þetta er ekki einungis rifj- að hér upp til að sýna fram á bók- menntaþekkingu. Meðfram er nefnilega rétt að benda á þá stað- reynd að öll þörfnumst við hugg- unar nú um stundir. Draumurinn um mesta og besta fjármálaveldi sem gaf okkur stærsta og mesta auðinn er hruninn. Sem betur fer. Verst hvað mikið hrundi með honum. STEFÁN Jónsson minntist Gísla í Papey í bók sinni Að breyta fjalli. „Eitt af býsna mörgu, sem ég heyrði hann segja við föður minn var það, að ekkert vissi hann eftir- sóknarverðara en að vera aflögu- fær. Þess háttar menn auðgast ekki í kallfæri við fátæktina. En þeir verða höfðingjar.“ Mér er til efs að betri eftirmæli sé hægt að fá. Að þrá heitast að verða aflögu- fær fyrir aðra. Ekki sjálfan sig, heldur aðra. Nægir hafa verið í því að hugsa um sjálfa sig síðustu árin og þrátt fyrir að hafa verið í kallfæri við fátæktina hafa þeir ekkert heyrt. KANNSKI skáldin verði til að bjarga okkur eftir allt saman. Ef við munum það að við verð- um að hugga okkur sjálf í stað þess að nöldra og nagga og stefn- um ótrauð að því að verða aflögu- fær er okkur kannski borgið. En kannski er bara betra að blogga með hástöfum á Eyjunni með sjö upphrópunarmerkjum. OG þar sem þú situr í strætó, drekkur kaffið í eldhúsinu, heilsar vinnufélögunum, situr í atvinnu- leysinu, grætur gjaldþrotið, horfir ofan í bjórinn á Grand rokk, þusar í heita pottinum, sökkvir þér ofan í bókina, nennir ekki fram úr, rífst á netinu, berð gjöll á Austurvelli, lætur þér leiðast yfir stjórnmála- umræðum, horfir á sólina rísa upp yfir hafflötinn með einhverj- um sem skiptir máli eða situr á klósettinu; það getur enginn hugg- að mann nema maður sjálfur. HÉR væri hægt að tengja pistil- inn með sniðugri myndlíkingu við ástandið í þjóðfélaginu. Það verð- ur þó ekki gert. Huggunin í sjálfum þér

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.