Fréttablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 15. júlí 2009 17 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Rúrik Gíslason skrifaði í gær undir fimm ára samning við Odense Boldklub í Danmörku, betur þekkt sem OB. Rúrik vakti mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu sína með Viborg í næstefstu deild danska boltans á síðasta tímabili og var talað um hann sem besta leikmann deild- arinnar. OB hafnaði í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og er eitt stærsta félag landsins. „Þetta er mikilvægt fyrir minn feril og er nýtt og spenn- andi verkefni. Ég vil vinna titla og tækifærin til þess eru í Óðins- véum,“ sagði Rúrik í viðtali á heimasíðu OB en hann er 21 árs og getur spilað allar stöður fram- arlega á vellinum. - egm Rúrik Gíslason samdi við OB: Rúrik tekur skrefið upp ÚRSLITIN Í GÆR Haukar - Þór 1-2 0-1 Einar Sigþórsson, 0-2 Ármann Pétur Ævarsson, 1-2 Hilmar Geir Eiðsson KA - HK 1-3 1-0 David Disztl, 1-1 Ásgrímur Albertsson, 1-2 Almir Cosic, 1-3 Rúnar Már Sigurjónsson ÍR - Víkingur R. 2-4 0-1 Jakob Spangsberg, 0-2 Jökull Elísabetarson, 0-3 Jökull Elísabetarson, 1-3 Árni Freyr Guðnason, 2-3 Guðfinnur Ómarsson, 2-4 Pétur Svansson ÍA - Selfoss 1-2 0-1 Ingólfur Þórarinsson, 0-2 Sævar Þór Gíslason, 1-2 Andri Júlíusson Afturelding - Leiknir R. 1-1 0-1 Ólafur Hrannar Kristjánsson, 1-1 Albert Ásvaldsson STAÐA EFSTU LIÐA Selfoss 11 8 2 1 23-12 26 Haukar 11 6 2 3 22-15 20 HK 11 6 2 3 22-15 20 Fjarðabyggð 10 6 1 3 20-15 19 KA 11 4 5 2 14-9 17 Víkingur R. 11 4 3 4 19-17 15 1. DEILD KARLA smyrja bílinn hjá Max1 Max1 verðdæmi á ódýrri smurþjónustu Toyota Yaris 1,3 Olía, olíusía og vinna: 9.095 kr. Nissan Almera 1,5 Olía, olíusía og vinna: 9.092 kr. Mazda3 1,6 Olía, olíusía og vinna: 9.370 kr. Ford Focus 1,6 Olía, olíusía og vinna: 9.688 kr. Sparaðu, láttu Smurþjónusta Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2. Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5. Skoðaðu www.max1.is Innifalið 2 lítrar af Max1 rúðuvökva KÖRFUBOLTI ÍR-ingar munu ekki spila heimaleiki sína í Seljaskól- anum í Iceland Express-deildinni næsta vetur. Ástæðan er að þeir eru nú eina liðið á höfuðborgar- svæðinu sem spilar enn á dúk og ÍR-ingar standa nú frammi fyrir því að missa frá sér lykilmenn nema að liðið fari að æfa og spila á parketi. „Við erum að reyna að leysa þetta mál með Reykjavíkurborg,“ segir Jón Örn Guðmundsson, stjórnarmaður hjá Körfuknatt- leiksdeild ÍR og fyrrum leikmað- ur og þjálfari liðsins en ÍR hefur barist fyrir því lengi að fá parket í Íþróttahús Seljaskólans. „Það hefur verið erfitt fyrir okkur að fá leikmenn til þess að spila með ÍR því að það eru ofboðs- lega margir sem setja gólfið fyrir sig. Það eru líka til dæmi um að leikmenn hafi farið frá okkur út af því,“ segir Jón Örn og nú er svo komið að nokkrir leikmenn liðs- ins eru á förum nema að þetta mál verði leyst. „Nú er bara staðan þannig að það eru ákveðnir leikmenn í ÍR- liðinu í dag sem munu fara ef við spilum á dúk. Þeir þola ekki dúk- inn lengur,” segir Jón Örn og bætir við. „Við stöndum því andspænis tveimur mjög slæmum kostum, annars vegar að halda áfram að spila á okkar heimavelli í Selja- skóla og missa ákveðna lykilmenn eða að fara tímabundið inn í annað íþróttahús sem er með parket,“ segir Jón Örn. KR, Fjölnir og Breiðablik hafa öll lagt parket í sín íþróttahús á síðustu árum og það hafa Keflvík- ingar, Grindvíkingar og Skalla- grímsmenn gert einnig. Eins og staðan er nú spila þrjú félög í Ice- land Express-deild karla ekki á parketi, ÍR, Tindastóll og Hamar. Íþróttahús Víkinga er ekki langt frá Seljahverfinu og var fyrst nefnt sem hugsanlegur möguleiki en Jón Örn segir að menn hafi horfið frá því þar sem ekki er gert ráð fyrir körfubolta í Víkinni. „Það eru ekki körfur í Víkinni og það er víst alveg jafndýrt að setja körfur þar eins og að setja park- et á Seljaskólann. Það væri fárán- legt að gera það. Það er því Höll- in sem hefur verið inni í myndinni hjá okkur,“ segir Jón Örn og það er mjög líklegt að niðurstaðan verði að ÍR spili heimaleiki sína í Laugardalshöllinni næsta vetur. „Auðvitað finnst manni þetta hundfúlt að við verðum án heima- vallar ef svo má segja. Þó að við fáum einhverjar æfingar með leikjunum þá er þetta nýtt hús fyrir mönnum ef Höllin verður fyrir valinu. Eina forskotið sem við myndum hafa á önnur lið er ef við færum alla leið í bikarn- um,“ segir Jón Örn í léttum tón en ÍR-ingar eiga góðar minningar úr Laugardalshöllinni undanfarin ár því að liðið varð bikarmeistari 2001 og 2007. Það lítur því út fyrir að leikið verði í Laugardalshöllinni í úrvals- deildinni í vetur en ekki í Selja- skólanum. ooj@frettabladid.is Leita að nýjum heimavelli ÍR-ingar geta ekki beðið lengur eftir nýju íþróttahúsi eða parketi á Seljaskól- ann. Leikmenn liðsins hóta að fara frá liðinu nema að spilað verði á parketi næsta vetur og nú er líklegast að ÍR spili heimaleiki sína í Laugardalshöllinni. DÚKURINN SLÆMUR Sveinbjörn Claessen er einn leikmanna ÍR sem hefur glímt við meiðsli sem rekja má til dúksins í Seljaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GÓÐAR MINNINGAR Eiríkur Önundarson hefur lyft bikarnum eftir tvo síðustu leiki ÍR-inga í Laugardalshöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM > Sævar ekki búinn að ákveða sig Körfuboltamaðurinn Sævar Ingi Haraldsson er á heimleið og ætlar að spila á Íslandi næsta vetur en hann tók sér frí á síðasta tímabili og fór í nám erlendis. Sævar Ingi spilaði með Stjörnunni áður en hann fór út og líklegast er að hann spili með bikarmeisturunum úr Garðabænum næsta vetur. Það kemur líka til greina að Sævar spili með Haukum í 1. deildinni þar sem hann er uppalinn. Sævar er ekki búinn að ákveða neitt en vill þó helst spila í úrvalsdeildinni þar sem hann hefur spilað allan sinn meistaraflokksferil. „Menn eru mjög spenntir fyrir þessum leik enda mikilvægt fyrir klúbbinn að halda áfram í þessari keppni,“ segir Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Íslandsmeistara FH sem mæta Aktobe frá Kasakstan í Kaplakrikanum í kvöld. „Við fengum tölvupóst frá góðum manni sem er búinn að afla sér einhverra upplýsinga um þetta lið. Svo höfum við séð einhverjar klippur úr leikjum hjá þeim. Þetta er langbesta liðið í Kasakstan og vann víst eitthvert mót í fyrra þar sem bestu liðin frá lönd- unum í kring tóku einnig þátt. Þeir spila fínan fótbolta og eru líkamlega vel þjálfaðir,“ segir Matthías sem hefur verið hreint magnað- ur í sumar. Hann segir að þátttaka FH í Evrópu- keppninni sé skemmtilegur bónus fyrir leikmenn og einnig góður gluggi fyrir yngri leikmenn liðsins að sýna sig og sanna. Heimir Guðjónsson, þjálfari FH-inga, hafði ekki farið mikið út í áherslur liðsins fyrir leikinn þegar Fréttablaðið heyrði í Matthíasi. „Hann fer vel yfir þetta á hádegisfundi á leikdegi. Ég vona per- sónulega að við fáum að spila okkar leik og pressa hátt. Ég giska á að við notum samt fyrstu fimmtán mínúturnar eða svo í að skoða hvað þeir ætla að gera. Ég tel það langmikilvægast að við náum að halda okkar marki hreinu í þessum leik.“ Leikmenn FH skelltu sér saman í bíó í gær og horfðu á myndina The Hurt Locker til að þjappa hópnum saman fyrir verkefnið. Seinni leikurinn við Aktobe verður í Kasakstan í næstu viku. Ferðalagið þangað er 4.650 kílómetrar en Íslandsmeistararnir staldra ekki lengi við í landinu. „Við fljúgum fyrst til Kaupmannahafnar og tökum einkaflug þaðan til Kasakstan. Með því spörum við einhverja klukkutíma og ferðalag- ið verður styttra. Við gistum þarna nóttina fyrir leikdag og fljúgum síðan heim beint eftir leik eiginlega. Mér finnst það fínt enda er ég ekkert voðalega spenntur fyrir að skoða eitthvað mikið þarna,“ segir Matthías Vilhjálmsson. MATTHÍAS VILHJÁLMSSON, LEIKMAÐUR FH: ER SPENNTUR FYRIR LEIKNUM GEGN AKTOBE Í KVÖLD Mikilvægast að halda okkar marki hreinu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.