Fréttablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009 3farið á fjöll ● fréttablaðið ● „Hvannarlamb er venjulegt lamb sem ég el á hvönn í nokkrar vikur fyrir slátrun,“ segir Halla Sigríð- ur Steinólfsdóttir, á Ytri-Fagra- dal í Búðardal, sem ræktar sér- stök hvannarlömb og selur beint frá býli. Halla segir skepnur almennt sólgnar í hvönn. Jurtin sé bragð- sterk og því fari keimur af henni út í kjötið. „Þetta hefur verið sann- að með prófunum frá Matís en þar voru gerð bragðpróf, skynmats- próf og svokölluð gaspróf,“ útskýr- ir Halla. Hugmyndin að þessari sérstöku ræktun vaknaði hjá Höllu þegar hún vann sem kjötmatsmaður í sláturhúsi. „Þá komu þangað lömb sem höfðu verið úti í eyjunum og þeim fylgdi sterk lykt af hvönn,“ segir Halla og í fram- haldi af því langaði hana að sanna að hvannarbragðið yrði eftir í kjötinu. Engin hvönn er í kringum Ytri- Fagradal. „Ég er með um sex hundruð fjár og þeim þykir hvönnin svo góð að hún kemst ekkert á legg þar sem kindurnar eru. Ég hef hins vegar aðgang að eyjum á Breiða- firði þar sem ég get sett nokkur lömb,“ segir Halla. Hún er hins vegar að rækta akur innan girð- ingar sem hún hugsar sér að beita næsta haust. „Þetta er svo dásam- leg jurt að hún fer um eins og ill- gresi þegar búið er að hjálpa henni af stað,“ segir hún glettin. Halla kveður lömbin bragðgóð og skemmtilegt sé að krydda þau með tilliti til hvannarbragðs- ins. Þá segir hún eftir- spurnina nokkra þrátt fyrir að verðið á slíku kjöti sé nokkuð hærra. Enn er aðeins hægt að kaupa kjötið beint frá býli Höllu. „Það eru nokkr- ir bitar eftir í kistunni,“ segir hún glettin og býður alla velkomna í Ytri-Fagradal. - sg Lömbin ræktuð með hvannarbragði Lömbin fá að dvelja í eyjum á Breiðafirði í nokkrar vikur þar sem þau gæða sér á safaríkri hvönninni. MYND/ÚR EINKASAFNI Verkefnið Stefnumót hönnuða og bænda þykir hafa lukkast vel og er von á fleiri spennandi afurðum á næstunni. „Það er ýmislegt á dagskrá. Næst er það skyrkonfekt, sem rjómabú- ið Erpsstaðir, hönnuðir útskrifaðir úr vöruhönnunardeild Listaháskól- ans og fleiri vinna að í sameiningu svo úr verði vörulína sem á svo hugsanlega eftir að stækka,“ segir Brynhildur Pálsdóttur hönnuður um nýjasta afsprengi verkefnisins Stefnumót hönnuða og bænda. Í verkefninu, sem var sett á lagg- irnar árið 2007, eru tvær starfs- stéttir leiddar saman, bændur og hönnuðir, með það fyrir augum að hanna og þróa vörulínu í kring- um matvæli. Um frumkvöðlastarf er að ræða þar sem ekkert bendir til þess að það eigi sér hliðstæðu á Norður-löndunum né að áður hafi verið farið í slíka vinnu hér- lendis. „Þetta er gert til að skapa efnahagslegan ávinning og styrkja stöðu íslensks landbúnaðar, hönn- uða og annarra sem að þessu verk- efni koma,“ útskýrir Brynhildur. Frá því að verkefnið hófst hefur samstarfið getið af sér vörur sem þykja hafa heppnast vel. „Síðasta sumar litu sláturkakan og rabar- barakaramellan dagsins ljós. Í seinna tilvikinu var grunnur lagð- ur að heilli vörulínu og unnið með útlit vörunnar og ímynd. Þannig gátu til að mynda bændurnir á Löngumýri, sem tóku þátt í gerð karamellunnar, sjálfir bætt við tveimur sultum í sína vörulínu, sem var kölluð Rabarbia. Þeir geta síðan haldið áfram að bæta við í línuna að eigin vild og þannig aukið verðmætasköpun. Þannig er alltaf verið að skapa frekari efna- hagslegan ávinning.“ Verkefnin eru afsprengi af kúrsi sem Brynhildur og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hafa kennt við vöru- hönnunardeild LHÍ frá árinu 2007. Hlé var hins vegar gert á kennslu síðasta vetur. „Við ákváðum að færa kennsluna yfir á þriðja árið, gefa okkur meiri tíma í þetta til þróa vörur af síðasta námskeiði en hefjum aftur rannsóknarvinnu nú í ágúst, þar sem tekin verða upp verkefni sem komu út úr fyrsta rennsli áfangans,“ segir Brynhild- ur og bætir við að sjálfsagt eigi margt spennandi eftir að koma út úr þeirri vinnu. - rve Vöruhönnun leiðir til verðmætasköpunar Guðfinna og Brynhildur kenna kúrsinn Stefnumót hönnuða og bænda við LHÍ í sjö vikur. Eftir hann tekur við vinna með sérfræðingum frá Matís, Innovit og landsliðs- kokkum að útvöldum verkefnum úr áfanganum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR 140 bæir um allt land bjóða upp á gistingu, máltíðir og afþreyingu. Fjölbreytt gisting: Heimagisting, gistihús, sveitahótel, sumarhús og tjaldsvæði. Verið velkomin! Bændur selja búvörur beint frá býli. Fjölbreytt framboð af íslenskum mat við allra hæfi. Verði þér að góðu! Bændahöllinni 107 Reykjavík sími 563-0300 www.beintfrabyli.is www.bondi.is Síðumúli 2 108 Reykjavík sími 570-2700 www.sveit.is Komdu í heimsókn til bænda og kynntu þér nútímabúskap og fjölbreytta starfsemi í íslenskum sveitum. Fyrir börn og fullorðna á öllum aldri! Velkomin í sveitina Allt sem þú þarft að vita um gistingu, mat og afþreyingu í sveitinni Bæklingurinn liggur frammi á öllum helstu áningarstöðum á landinu. Pantið bækling á www.uppisveit.is 34% 74% Fr ét ta bl að ið M or gu nb la ði ð Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Fréttablaðið stendur upp úr Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum góða árangri og bendum auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar þegar þeir velja auglýsingamiðil. Allt sem þú þarft... Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.