Fréttablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
15. júlí 2009 — 166. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
BEINT FRÁ BÝLI
Rjómaís, hvannarlamb,
ostur og annað lostæti
Sérblaðið Beint frá býli
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
KRISTÍN MARTHA HÁKONARDÓTTIR
Vegur sig upp voldugt
hamrastál í Öræfum
• á ferðinni
Í MIÐJU BLAÐSINS
Síung heiði
Fimmtíu ár eru liðin frá því að
vegur var lagður um Dynjandis-
heiði og akvegasamband komst á
milli byggðarlaga á Vestfjörðum.
TÍMAMÓT 14
FÓLK Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings, er að flytja til
Lúxemborgar. Hreiðar mun opna skrifstofu
ráðgjafarfyrirtækisins Consolium ytra en
fyrirtækið stofnaði hann í fyrrahaust ásamt
samstarfsmönnum úr Kaupþingi. Það veitir
ráðgjöf til fjármálastofnana og fyrirtækja.
Hreiðar segist flytja utan á næstunni og setj-
ast að í Lúxemborg ásamt fjölskyldu sinni.
Að sögn Hreiðars eru erlendir viðskipta-
vinir mun fleiri en íslenskir. Hann segir að
það sé nóg að gera og hann sé ánægður með
það traust sem viðskiptavinir hafi sýnt.
Hjá fyrirtækinu starfa fimm manns um
þessar mundir og líklega mun þeim fjölga á
næstunni. „Við höfum hóflegar væntingar um
vöxt fyrirtækisins,“ segir Hreiðar.
Flutningur Hreiðars tengist ekki bank-
anum Banque Havilland sem stofnaður var
eftir að Kaupþing í Lúxemborg var selt til
Rowland-fjölskyldunnar nú fyrir skömmu.
- bþa
Fyrrverandi forstjóri Kaupþings opnar ráðgjafarskrifstofu á meginlandi Evrópu:
Hreiðar Már til Lúxemborgar
HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Kristín er stödd á Hnappavöllum í Öræfum þegar í hana næst og er þar við sína uppáhaldsiðju að vega sig upp voldugt hamrastál. Kveðst hafa nýlokið við að taka þátt í maraþonklifri. „Við vorum hér 90 saman og þar af kepptu 25á ald i
mig alla fram,“ segir hún glað-lega. „Liðið sem sigraði kallaði sig 1993 og þar var vísað í fæðingar-ár allra þátttakendanna. Þeir klifr-uðu allar leiðir sem voru boltaða1993 og luk i
máltíðum, morgunmat, hressingu um miðjan dag og kvöldkakói. „Miðskjól er útisamkomusvæðiÖræfinga þannig ð
Maraþonklifur og ball undir háum hömrumÁherslur fólks eru ólíkar á ferðalögum um Ísland. Sumir róa á kajökum og aðrir komast í beina snertingu
við náttúruna með því að klifra í klettum. Kristín Martha Hákonardóttir er ein þeirra síðastnefndu.
Kristín vann einstaklingskeppni í maraþonklifri um síðustu helgi í Hnappavallahömrum enda er hún eins og fluga utan í klettun-
um.“
MYND/SIGURÐUR MAGNI
KÓNGSBRÚ yfir Brúará hefur verið endur-byggð af Ferðafélagi Íslands. Nýja brúin er hin veglegasta og er göngubrú yfir Brúará þar sem Kóngsvegurinn liggur í landi Efstadals og Syðri Reykja, um
10 kílómetrum neðan við Brúarárskörð. Fjölmargar skemmti-
legar gönguleiðir eru á svæðinu. www.fi.is
Dúnmjúkar
BRÚÐARGJAFIR
Laugavegi 176
Sími 533 2220
www.lindesign.is
Við hjá Lín Design erum í essinu þegar kemurað brúðkaupsgjöfum. Vörulína okkar er hönnuðá Íslandi þar sem íslensk náttúra spilar stórthlutverk. Allt okkar efni er sérvalið svo úr verð-ur vara sem gefur mýkt og hlýju.
Brúðhjón sem eru með gjafalista hjá Lín Design fá gjöf frá versluninnief keypt er af listanum.
Hlý og persónuleg þjónusta
Nýkomin blómaker og garðvörur
Opið: má-fö. 12-18, lokað á laugardögum í sumar
Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is
HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR
Nær samhljóma ávörp
ólíkra borgarstjóra
Ólafur F. og Hanna bjóða túrista velkomna
FÓLK 22
beint frá býliMIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FÍFL stofnað
Guðmundur Felix-
son vill efla sam-
starf milli leikfélaga
framhalds-
skólanna.
FÓLK 18
UTANRÍKISMÁL Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að óformlegar
þreifingar hafi átt sér stað á milli
Íslendinga annars vegar og Breta
og Hollendinga hins vegar vegna
afgreiðslu Alþingis á frumvarpi
um ríkisábyrgð vegna Icesave. Við-
semjendur hafa verið upplýstir um
að mögulega verði settir fyrirvarar
um samninginn. Viðræðurnar eru
mjög óformlegar.
Svavar Gestsson, formaður
samninganefndar Icesave, kann-
ast ekki við viðræðurnar, enda hafi
hans hlutverki lokið þegar skrifað
var undir samninginn. Hann segir
ómögulegt að segja hver yrðu við-
brögð Breta og Hollendinga við
fyrirvörum. „Ég veit ekki um
það, en mér finnst ekki skrýtið að
Alþingi velti öllu mögulegu fyrir sér
varðandi pólitíska umgjörð málsins.
Alþingi hefur síðasta orðið í því,
eins og því hvort það samþykkir
samninginn eða synjar honum.
Upphaflega var gert ráð fyrir
því að málið kæmi úr nefndum
fyrir helgi og til annarrar umræðu
á Alþingi. Nú eru allar líkur á að
það verði ekki fyrr en eftir helgina.
Verið er að reyna að ná samstöðu
um samþykkt afgreiðslu þingsins,
hvaða fyrirvara eða samþykktir
þingið gerir vegna ríkisábyrgðar-
innar. Mögulegt er að stjórnarand-
staðan, eða hluti hennar, sameinist
stjórninni um þær tillögur.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er líklegt að frumvarpið
verði samþykkt á Alþingi. Í greinar-
gerð með því yrði hins vegar kveðið
á um ríkari endurskoðunarákvæði,
jafnvel færi á einhliða uppsögn, og
greiðslubyrði.
Fjármálaráðherra staðfesti í gær
frétt Fréttablaðsins um að erlend-
ar skuldir þjóðarbúsins stefni í
að vera yfir 200 prósent af vergri
landsframleiðslu. Í tilkynningu frá
ráðuneytinu segir að miðað við að
verg landsframleiðsla verði tæpir
1.430 milljarðar á þessu ári, nemi
sú tala um 2.800 til 3.000 milljörð-
um miðað við þær uppgjörsaðferðir
sem Seðlabankinn og fjármálaráðu-
neytið nota. - kóp / sjá síðu 4
Þreifingar við Breta vegna
fyrirvara um ríkisábyrgð
Óformlegar þreifingar hafa átt sér stað á milli Íslendinga og Breta og Hollendinga vegna fyrirvara sem
rætt er um á Alþingi að setja um Icesave. Ekki er reiknað með að málið komi úr nefnd fyrr en eftir helgi.
UMHVERFISMÁL „Við skjótum á
að helmingurinn af Skeiðará
sé farin yfir í Gígju,“ segir Jón
Ragnarsson, starfsmaður Vega-
gerðarinnar á Höfn.
Samkvæmt mælum virðist sem
vestari kvísl Skeiðarár hafi hætt
að renna í farvegi árinnar um
klukkan tvö aðfaranótt mánu-
dags og flætt yfir í Gígjukvísl.
Jón segir að við þessum breyt-
ingum hafi verið búist þótt ekki
hafi verið fyrirséð hvenær þær
myndu verða. „Jökullinn hopar
svo mikið að hann er kominn
frá háum jökulöldum við upp-
tökin. Þannig að vestari hlutinn
fossar nú vestur fyrir ölduna
og í Gígju,“ útskýrir Jón sem
aðspurður telur um varanlega
breytingu að ræða. „Nema þá
að jökullinn fari að ganga fram
aftur.“
Að sögn Jóns getur brúin yfir
Gígju annað þessu aukna vatns-
magni eins og staðan er núna.
„En ef það kemur hlaup er ég
smeykur um að vegurinn geti
lokast.“ - gar
Breytingar um helgina:
Skeiðará komin
yfir í Gígjukvísl
Litlar breytingar Í dag verður
norðaustlæg átt, víða 3-8 m/s en
hvassara við SA-ströndina. Nokkuð
bjart suðvestan til en þungbúnara
annars staðar og sums staðar lítils-
háttar væta, einkum austan til.
VEÐUR 4
15
11
10
10
13
Prófskírteini
„Fyrir nokkru var þannig stofnuð
deild úr Sorbonne í Abúdabí þar
sem afkvæmi olíufursta gætu
stundað nám gegn ærnu gjaldi,“
skrifar Einar Már Jónsson.
Í DAG 12
ALLT Á AÐ SELJAST Sumarútsölur eru nú í algleymingi. Þessar sýningarbrúður stóðu vaktina á Laugaveginum í gær og virtust
fylgjast gaumgæfilega með hugsanlegum kaupendum á meðal vegfarenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Spila ekki í Seljaskóla
Leikmenn körfuboltaliðs
ÍR krefjast þess að spila
heimaleiki sína á park-
eti næsta vetur og því
þarf félagið að finna
sér nýjan heimavöll.
ÍÞRÓTTIR 17