Fréttablaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 24
16 15. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég hef trúað á
endurholdgun
alveg síðan ég
var fiðrildi …
Talaðu
við
mig.
Það er ekki svo
langt síðan ég gat
drukkið mig hauga-
fullan á þriðjudegi
og vaknað á
ókunnugum sófa í
sokkunum einum
fata!
Og
langar
þig aftur
í þann
pakka?
Nja... nei! En
það var samt
spennandi tími!
Nú er allt í föst-
um skorðum.
Vinna, kona,
barn, skutbíll
og sósukanna!
Sósu-
kanna? Með föstu fati undir, svo
maður helli ekki
niður á dúkinn!
Oj, oj, oj!
Þetta er
hart!
Ég veit!
Meiri bern-
aise-sósu,
einhver?
Palli.
Síminn.
Pabbi.
Dyrnar.
Jæja þá.
Kæri fýlupúki,
Palli getur verið mjög kelinn
þegar nálgast matartíma, en
eftir að hann hefur borðað
hverfur hann bara.
Ég virði rétt hans til að vera
hann sjálfur, en hvað á þetta
að þýða?
Einn forviða
Kæri „forviða“
Kötturinn þinn er greinilega
ekki mjög hrifinn af þér.
SNÝT!
Híhíhíhíhí
Sástu þetta? Lóa
hló þegar þú
snýttir þér!
Gerðu
það
aftur!
SNÝT Híhíhíhíhí
SNÝT
SNÝT
Híhíhíhíhí
Híhíhíhíhí
Er þetta ekki fyndið?
Það fer eftir því hvorum
megin við snýtupappír-
inn þú ert.
Sjósund, maraþon, Laugavegurinn, Esjan, skemmtiskokk, boot camp, hollt mataræði. Það eru allir að hreyfa sig,
bæta sig, taka sig á þessa dagana. Hver
smettisskinnu-statusinn á fætur öðrum
lýsir sigrum dagsins og öðru hverju slysun-
um sem þeir sigrar virðast stundum hafa í
för með sér. En hverjum er ekki sama um
nokkra marbletti eða jafnvel brot, þegar
þeim líður svona ótrúlega vel? Hollusta og
hreyfing er hið nýja svart eins og maður
segir.
Það er allt gott og blessað.
Hreyfing er yndisleg. Holl
fæða er frábær, verst reyndar
hvað hún er oft dýr. Það er ekki
hægt að álasa fólki fyrir að hugsa vel
um sjálft sig. Nema það sé orðin fíkn.
Ég borða nammi, drekk gos, ligg uppi
í sófa og horfi á sjónvarpið. Ég er ekki
heilsusamleg og ég er ekki töff. Ég vinn
reyndar meira en góðu hófi gegnir en ég
úthrópa þau afrek ekki á Facebook og fæ
því ekki milljón skilaboð um hvað ég sé dug-
leg. Ég veit að ég er dugleg, en engu að síður
fæ ég öðru hverju samviskubit yfir því að
vera ekki að undirbúa maraþon. Hvar fær
fólk tíma til að stunda alla þessa líkams-
rækt? Ég bara spyr.
Það eru tvær skilgreiningar á því að vera
góður við sjálfan sig. Önnur segir að þeir
sem séu góðir við sjálfa sig láti
allt eftir sér, sælgæti, tiramisu,
bíóferðir og sósað rautt kjöt. Hin
er einhvern veginn þannig að
það að vera góður við sjálfan sig
sé að byggja líkamann upp og gefa
honum aðeins það sem hann þarfnast,
þvert á langanir. Ég segi eins og auglýs-
ingin forðum, er ekki bæði betra? Hvar
er hinn gullni meðalvegur? Sjósund er
ekki allra, ekki frekar en tiramisu.
Að vera (ekki) góður við sjálfan sig
NOKKUR ORÐ
Kolbrún Björt
Sigfúsdóttir
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
FERSKT & ÞÆGILEGT
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
Skoðaðu nánar á somi.is