Samvinnan - 01.08.1949, Síða 3
VuUtrúar á aðalfundi S. I. S. við fundarsetningu. I miðið: Sigurður Kristinsson, fyrrv. forstjóri, form. Sambandsstjórnar, setur aðalfundinn.
Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga I Rvík
ÐALFUNDUR Sambands ísl. sam-
vinnufélaga var settur í Reykjavík
þriðjudaginn 5. júlí síðastl. af Sigurði
Kristinssyni, formanni Sambandsins.
Vék hann fyrst að því, að undanfarin
ár hefði Sambandsfundurinn verið
lialdinn utan Reykjavíkur, en væri nú
haldinn þar. Lægju til þess fleiri en
ein ástæða, en jró aðallega tvær, að ekki
eru margir staðir, sem geta tekið á
móti svo mörgum fulltrúum, og svo
það, að ekki er óeðlilegt, að fundurinn
sé öðru hvoru haldinn í Reykjavík,
Jrar sem Sambandið hefir bækistöð
sína og húsnæði.
Látinna forvígismanna minnzt.
Sigurður Kristinsson minntist í setn-
ingarræðu sinni þriggja látinna for-
vígismanna samvinnufélagsskaparins,
þeirra Sigurðar Jónssonar, skálds og
bónda á Arnarvatni, Ágústs Helga-
sonar, bónda í Birtingaholti, og Helga
Jónssonar, bónda í Seglbúðum. Risu
fundarmenn úr sætum sínum til að
votta þessum látnu forvígismönnum
virðingu sína og þakklæti.
Skýrsla forstjóra.
Að skýrslu formanns lokinni flutti
Vilhjálmur Þór, forstjóri S. í. S.,
skýrslu um starfsemi Sambandsins og
framtíðarhorfur. Hann ræddi auk jress
um samvinnustarfið vfirleitt 02: sam-
vinnuhugsjónina í heild. Sagði hann,
að hyrningarsteinn samvinnufélags-
skaparins væri fyrst og fremst f járhags-
legt öryggi og félagsþroski. Um rekst-
ur Sambandsins er annars þetta helzt
að segja:
Starfsemi S. í. S. 1948.
Rekstursreikningur S. 1. S. fyrir árið
1948 sýnir 1 millj. 695 þús. kr. tekju-
afgang, en þar af er ætlað til úthlut-
unar til Sambandsfélaganna 1.321.000
kr., og verður þá eftir nettóarður til
varasjóðs Sambandsins, 374 þús. kr.
Niðurstöðutölur rekstursreiknings eru
kr. 17.051.128.91, en efnahagsreikn-
ingskr. 85.940.454.11. Heildarsala inn-
flutnings- og véladeildar S. í. S. var
um 3 millj. kr. minni en árið 1947, en
sala útflutningsdeildar hefur aukizt
urri rúmar 20 rnillj. kr. frá jrví sem hún
var á árinu 1947.
Skip.
M.s. „Hvassafeir, 230 tonn dwt.,
sem er eign S. í. S., sigldi á árinu
Fulltrúarnir neyttu máltiða að Tjarnarkaffi. Myndirnar eru frá borðhaldinu jxar.
3