Samvinnan - 01.08.1949, Síða 14
Framleiðsla KF
Fjölmörg af framleiðslufyrirtækjum
KF liafa orðið til vegna þess að sam-
bandið liefur tekið upp baráttuna
gegn arðráni einkaframtaksins. Þau
hafa beinlínis verið varnarráðstafanir
almennings. En KF lætur sig vitaskuld
ekki aðeins skipta framleiðslu. Það
rekur stórfellda heildsölu fyrir kaup-
félögin í landinu, mikla og fjölþætta
upplýsingastarfsemi um þátt kaupfé-
laganna í þjóðarbúskapnum og þá
gagnsemi, sem þjóðfélagið í heild get-
ur haft af stóru, sterku átaki sam-
vinnumanna til liags fyrir heildina.
Má þar m. a. nefna sparnaðaráróður
sænskra samvinnumanna, sem mikið
gagn liefur gert sænskum þjóðarbú-
skap og hlotið verðugt lof stjórnar-
valda og ábyrgra aðila. Of langt mál
yrði að telja hér upp öll þau fyrirtæki,
sem þetta ágæta sænska samvinnusam-
band starfrækir. Starfsemi þess grípur
í dag inn í fjölmarga þætti sænsks
Jrjóðlífs. Álit þess og sænsku samvinnu-
stefnunnar er mikið og sterkt. Verkin
hafa lofað meistarann.
Hið gullna meðalhóf
Engum ábyrgum Jrjóðfélagsþegn í
Svíjrjóð dettur í liug að neita því, að
(Framhald á bls. 27.)
Hreyfingin fcer svipmót
Luma-verksmiðjurnar sýndu og
sönnuðu að starfsemi KF var reist á
bjargi, og eftir þetta hefur ganga KF
verið samfelld sigurganga. Á kreppu-
árunum eftir 1930 lagði KF mikið
kapp á að efla starfsemi sína til þess
að vinna gegn atvinnuleysinu. Þá
voru reistar stórar verksmiðjur. Þar á
meðal cellulose-verksmiðja og áburð-
arverksmiðja. Bæði fyrirtækin sýndu
framsýni, því að nokkrum árum síðar
lokaði síðara heimsstríðið fyrir mögu-
leika til þess að fá þessar vörur frá út-
löndum.
Frá útiháliðinni á Skansinum. Samvinnumenn Irylla KF 50 ára.
keyptar og stofnsettar. Þannig er þró-
unin en í dag.
Frá aðalfundi KF i Stokkhólmi i sumar.
um að byggja nýtískulegustu glóð-
lampaverksmiðju í Evrópu, rétt utan
við Stokkhólm. Og þegar Luma-glóð-
lamparnir fóru að lýsa upp sænsk
heimili, gat hver heimilismaður séð,
hvers virði neytendasamvinnan var
þeim og hvað gagnráðstafanir sam-
vinnumanna gegn hringum og einok-
unum þýddu í aurum og krónum fyr-
ir hinn almenna borgara.
Verðstríð glóðlampahringsins fór út
um þúfur. Næst var reynt að lama
fyrirtækið með málaferlum út af
einkaleyfum á glóðlampaframleiðslu.
Allt kapp var lagt á að stöðva Luma-
verksmiðjurnar, en of þessu brölti
varð heldur enginn árangur.
Á þessum árum voru kaupfélögin
líka endurskipulögð. Búðirnar voru
gerðar nýtískulegar og sameiginlegt
nafn — Konsum — tekið upp um allt
land. Þar með fékk hreyfingin sitt
eiginlega svipmót, sem varir enn í dag.
KF hélt stöðugt áfram að færa út kví-
arnar. Nýjar deildir voru stofnaðar.
Fjölmargar verksmiðjur, fleiri en þær,
sem liér hafa verið nefndar, voru
14