Samvinnan - 01.08.1949, Qupperneq 22
Kaupfélag Hrútfirðinga fimmtíu ára
Vetur ti Borðeyri.
SUNNUDAGURINN 26. júní sl.
var mikill annadagur fyrir forystu-
menn Kaupfélags Hrútfirðinga, og
þann dag fór starfið fram í Reykja-
skóla.
Fyrst var haldinn aðalfundur félags-
ins. Gekk hann mjög greiðlega. For-
ráðamaður félagsstjórnar og kaupfé-
lagsstjóri gáfu skýrslur sínar, og all-
margir fulltrúa tóku til máls um á-
stand og horfur í félagsmálunum.
Hafði afkoma kaupfélagsins á sl. ári
orðið harla góð, einkum sé miðað við
það, sem algengast er nú orðið í Jress-
um sökum vegna vöruskorts, ranglátr-
ar skiptingar innflutningsins o. fl.
vandkvæða, er steðja að kaupfélags-
skapnum í heild. Reksturshagnaður á
árinu var rúmlega 38 þús. kr., og var
þó um allmiklar afskriftir að ræða, og
áður bt'iið að leggja yfir 15 Jdús. kr. í
stofnsjóð félagsmanna og 10 þtisund
kr. í varasjóð. Ýrnsir sjóðir Kaupfélags
Hrútfirðinga nema nú 223 þús. kr.
auk stofnsjóðsins, sem nú er rúmar
100 Jrús. kr. — Voru fulltrúar, svo sem
að líkum lætur, ánægðir með reksturs-
afkomu félagsins undir forystu kaup-
félagsstjóra síns, Jóns Gunnarssonar.
AÐ afloknum aðalfundi, hófst al-
menn hátíðarsamkoma í Reykja-
ské)Ia í tilefni af 50 ára afmæli Kaup-
félags Hrútlirðinga á þessu ári.
Formaður félagsins, Gunnar Þórðar-
Gunnar Þórðarson.
son í Grænumýrartungu, setti hófið
og stjórnaði því. Þá mælti hann og
l’yrir minni tveggja látinna íorvígis-
manna kaupfélagsins, Jreirra Péturs
Jónssonar, fyrsta Iramkvæmdastjóra fé-
lagsins, og Kristjdns Gislasonar, fyrsta
formanns Jress. Afhenti Gunnar síðan
í nafni Kaupfélags Hrútfirðinga nán-
ustu ættingjum Jiessara merkismanna
tvo minjagripi — rafmagnsvegglampa
— haganlega útskorna af Hauki Snorra
syni, með nöfnum Kristjáns og Péturs,
fæðingar- og dánardægri þeirra, og
þessum orðum: „Til minningar um
starj brautryðjandans“. Þeir Magnús
Richardsson, símastjóri, og Bjarni Þor-
steinsson, kennari, þökkuðu kaupfé-
laginu fyrir hönd aðstandenda, Höllu
Björnsdóttur, konu Kristjáns, og Jón-
ínu og Höllu, dætra Péturs.
Tveir aðkomugestir voru mættir á
Jressari afmælishátíð kaupfélagsins, og
fluttu Jjeir báðir ræður við Jretta tæki-
færi. Séra Jón Guðnason, jrjóðskjala-
vörður, sem Hrútfirðingum er að góðu
kunnur, flutti aðalræðuna fyrir minni
Kaupfélags Hrútfirðinga. Baldvin Þ.
Kristjánsson, erindreki S. í. S., flutti
félaginu m. a. árnaðaróskir Sambands-
ins og Jrakkir fyrir vel unnin störf í
Jrágu samvinnusamtakanna í heild á
undanförnum áratugum. Auk Jress
ræddi erindrekinn þýðingu samvinnu-
starfsins í lífi Jrjóðarinnar og minntist
])ess árangurs, er náðzt hefði. Komu
báðir ræðumennirnir víða við. Birtist
hið fróðlega erindi sr. Jóns í heild á
öðrum stað í ritinu.
Samkvæmið fór hið bezta fram og
var sungið dátt undir borðum fyrir
atbeina og með aðstoð söngkennara
Reykjaskóla, Matthíasar Jónssonar.
Veitingar voru fram reiddar af hin-
um mesta myndarskap og þeirra notið
í boði kaupfélagsins af miklum fiölda
manna. Eftir að borð voru rudd, var
stiginn dans eins lengi og lög leyfa.
Þetta afmælissamkvæmi Kaupfélags
Hrútfirðinga var svo vel sótt, að slíks
(Framhald á bls. 34.)
Jón Gunnarsson.
22