Samvinnan - 01.12.1951, Blaðsíða 21
1946 1947 1948 1949 1950
1946 1947 1948 1949 1950
1946
1947 1948 1949 1950
1946
1947 1948
1949 1950
IÖgjaldaaukningin sýnir vöxt hinna ýmsu deilcla Samvinnutrygginga.
100 000 í bifreiðadeild. Á þessu ári
var úthlutað fyrir árið 1950 samtals
110 000 krónum í bifreiðadeild,
114 000 í brunadeild og 114 000 í sjó-
deild.
ÍSLENZK TRYGGINGA-
FÉLÖG.
Tryggingastarfsemi er ein af þeim
greinum viðskiptalífsins, sem Islend-
ingar tóku síðast í eigin hendur, enda
þarf mikinn fjárhagslegan styrk til að
koma slíku félagi á fót og góðar
endurtryggingar í öðrum löndum.
Fyrsta íslenzka brunatryggingafélag-
ið, Brunabótafélag íslands, var til
dæntis ekki stofnað fyrr en 1917 og
fyrsta sjóvátryggingafélagið, Sjóvá-
tryggingafélag Islands, ekki fyrr en
1918. Fyrsta alíslenzka líftrygginga-
deildin hóf ekki starfsemi sína fyrr
en 1934, er Sjóvátryggingafélagið hóf
slíkar tryggingar. Hafa íslenzkir aðil-
ar síðan smám saman keypt Islands-
deildir erlendra tryggingafélaga eða
þau hafa hætt hér starfsemi sinni, svo
að öll er þessi mikilvæga starfsemi nú
komin í innlendar hendur.
Það var ætlun samvinnumanna frá
upphafi að koma einnig upp líftrygg-
ingadeild, og voru athugaðir mögu-
leikar á því að koma upp nýrri deild
eða kaupa gamalt félag. Hölluðust
menn frekar að því að kaupa eldra
félag og hófust viðræður um kaup á
líftryggingafélaginu Andvöku árið
1948 og tókust samningar haustið
1949. Er Andvaka gamalt og rótgró-
ið félag,. norskt að uppruna, og opn-
aði það íslandsdeild sína 1921. Er Jón
Olafsson framkvæmdastjóri félagsins
og hefur verið það undanfarna tvo
áratugi. Þegar SlS keypti Andvöku,
voru um 3000 menn tryggðir hjá fé-
laginu, en á fyrsta starfsári þess sem
alíslenzkt tryggingafélag 1950, voru
gefin út 1730 ný líftryggingaskírteini.
Samvinnutryggingar og Andvaka
hafa sameiginlega stjórn og fulltrúa-
ráð, og hafa þessir menn átt sæti í
stjórninni frá öndverðu: Vilhjálmur
Þór, formaður, Jakob Frímannsson,
Karvel Ögmundsson, ísleifur Högna-
son og Kjartan Ólafsson.
21