Samvinnan - 01.08.1953, Side 11
Það var létt yfir sölunum i Bifröst, þegar kauþfélagskonur voru þar saman komnar.
Þúsund kaupfélagskonur heimsækja Bifröst
Mörg kaupfélög hafa í sumar boð'Lð húsmæðrum í ferðalög
Fræðslu- og skemmtistarfsemi
kaupfélaganna fyrir húsmæður hefur
á þessu sumri verið margþættari en
nokkru sinni fyrr. Var getið um það
í maíhefti Samvinnunnar, að nokkur
kaupfélög hefðu í vor haldið kaffi-
samsæti fyrir húsfreyjurnar, og hefur
það nú reynzt rétt, sem þar var spáð,
að áhugi á slíkri starfsemi mundi fara
ört vaxandi.
Eins og telja verður mjög vel við-
eigandi, hefur Bifröst verið miðstöð
þessa fræðslu- og skemmtistarfs í sum-
ar. Var heimilið algerlega lokað al-
menningi fram í júlíbyrjun, en fyrir
þann tíma var það eingöngu ætlað
slíku starfi kaupfélaganna, svo og
fundarhöldum samvinnumanna.
475 konur úr Borgarfirði.
Kaupfélag Borgfirðinga hafði Bif-
Hulda Stefánsdóttir talar i Bifröst.
röst til afnota í fjóra daga og bauð
þangað 475 konum víðs vegar af fé-
lagssvæðinu. Dvöldust þær mikinn
hluta dags við Hreðavatn og hlýddu á
fjölbreytta dagskrá. Þegar matazt
hafði verið um hádegið, ávarpaði
Þórður Pálmason, kaupfélagsstjóri,
konurnar og bauð þær velkomnar. Þá
talaði Baldvin Þ. Kristjánsson, er-
indreki, um konurnar og samvinnu-
starfið. Þessu næst tók frú Hulda
Stefánsdóttir til máls og ræddi
um þjóðleg verðmæti og húsmæðra-
skólana og voru jafnan umræð-
ur að loknu því erindi. Tóku þar
margar húsfreyjur til máls. Þá var á
dagskránni kvikmyndasýning og ein-
söngur Halldórs Sigurbjörnssonar,
starfsmanna KB. Loks var almenn-
ur söngur undir stjórn Bjarna Bjarna-
(Framh. á 20. siðu)
11