Samvinnan - 01.08.1953, Qupperneq 14
1U) sjásl griski skipakóngurinn Onassis og kona
tiuas i villugarði þeirra á Rivieraströnd.
ÞAÐ VAKTI TÖLUVERÐA AT-
HYGLI í fyrra, þegar sú frétt barst út
um heim, að maður að nafni Aristo-
teles Sokrates Onassis hefði keypt
spilabankann fræga í Monte Carlo.
Það vakti enn meiri athygli, að mað-
urinn keypti bankann ekki bankans
vegna, heldur til að komast yfir skrif-
stofuhúsnæði, sem var í einni af bygg-
ingum bankafélagsins, og ekki var
hægt að fá nema með því að ná yfir-
ráðum yfir bankanum.
ÞESSI BANKAKAUP beindu allmik-
illi athygli að Onassis og blaðamenn
fóru að snuðra um hann. Komust þeir
fljótt að raun um, að hér var á ferð
einn af auðugustu mönnum veraldar
og um leið einn mesti ævintýramaður
sinnar samtíðar. Og mestur auður
þessa manns er bundinn í skipum,
því að hann er eigandi að kaupskipa-
flota, sem er rúmlega tíu sinnum
stærri en öll skip íslendinga, eða
1.250.000 smálestir, eftir því sem næst
verður komizt. Onassis á skrauthýsi í
París, New York og Montevido, siglir í
sinni eigin skemmtisnekkju um
heimshöfin, og sérstakar íbúðir hafa
verið innréttaðar fyrir hann í mörg-
um skipum hans. Samtals er áætlað,
^Ouipir iountí&i
armanna:
Gríski skipakóngurinn
Onassis
Keyptí spilabankann i Monte Carío
til að komast yfir skrifstofubásnæði
að auður hans nemi nú um 5.000.000.-
000 króna íslenzkum, en þó veit það
enginn maður með vissu.
ÞAÐ ER FURÐULEG SAGA, sem er
á bak við þennan ævintýramann.
Hann fæddist i Grikklandi 1906 og
var uppalinn í Smyrna í Tyrklandi.
Faðir hans var tóbaksútflytjandi og
átti þrjár dætur auk piltsins. Fjöl-
skyldan var meðal þeirra Grikkja,
sem Kemal Atatúrk rak úr landi eftir
fyrri styrjöldina, og komst hún við
illan leik til Grikklands. Aristoteles
leizt ekki á framtíðarvonir þessa
flóttafólks.og lagði leið sína til Argen-
tínu. Fjölskyldan skaut saman í far-
gjaldið og Argentínu valdi hann, af
því að þar var auðvelt að fá borgara-
rétt. Sextán ára gamall kom hann til
Buenos Aires í skipi, sem 1000 flótta-
mönnum var troðið í við hin verstu
kjör.
ONASSIS BYRJAÐI á því að fá
næturvinnu við símastöð, en komst.
brátt í samband við grískan heildsala,
kunningja föður síns. Verzlunin
blómgaðist og von bráðar byrjaði On-
assis að verzla sjálfur og 19 ára gam-
all hafði hann aurað saman um
300.000 krónum. Sagan segir, að hann
hafi lánað norskum hvalveiðimanni
þetta fé, og hafi veiðiförin heppnart
svo vel, að hann hafi enn auðgazt til
muna. Þegar hann var 25 ára, var
hann orðinn margfaldur milljóna-
mæringur og átti blómlega heildsölu,
flutti vörur út og inn í Argentínu.
Grísku stj órninni leizt svo vel á þenn-
an unga mann, að hún gerði hann að
grískum ræðismanni í Buenos Aires.
NÚ ER ÞAÐ, sem Onassis byrjar að
leggja fé sitt í kaupskip í kreppunni
frétti hann, að kanadiskt skipafélag
vildi selja nokkur ágæt kaupskip fyrir
einn tíunda af raunverulegu verðgildi
þeirra. Samt voru kaup á slíku skipi
áhætta á þeim árum og skipið gat
tapað kaupverði sínu í einni ferð, ef
illa tókst til. Onassis keypti sex skip,
lagði fjórum þeirra, en sigldi tveim-
ur. Þaðan hefur leið hans legið stig
af síigi, og hann hefur stöðugt aukið
við flota sinn, látið smíða glæsileg ný
skip, aðallega oiíuskip, en einnig hval-
veiðimóðurskip og flota með því.
SKIP ONASSIS eru ekki skráð í
Grikklandi, heldur víða um heim, en
þó aðallega í Panama, Honduras og
Liberíu, þar sem reglur um skipa-
skráningu eru ekki stragar og skattar
eru litlir sem engir. Auk þess á On-
assis félög um öll lönd og er eignum
hans og rekstri þannig dreift, og því
ekki von að hann eða aðrir viti ná-
kvæmlega um auð hans.
ONASSIS er ekki eini Grikkinn,
sem lifir erlendis og stundar sigling-
ar. Grískir menn eiga þannig geysi-
mikinn flota og eru valdamiklir í
siglingamálum. Mágur Onassis og
tengdafaðir eru báðir stórútgerðar-
menn og munu sjálfsagt ekki vera
nema örfáar þjóðir í heiminum, sem
eiga jafn mikinn flota og þessir grísku
venzlamenn, sem lifa alþjóðlegu lífi
og þjóta á milli heimsálfa eftir því
sem viðskiptamál þeirra gefa ástæðu
til.
ÞAÐ ER NÆSTA ÓTRÚLEGT, að
á þessum tímum hafta og þjóða-
rembings skuli alþjóðlegir ævintýra-
menn eins og þessir grísku skipamiðl-
arar geta starfað og náö svo stórkost-
legum árangri, sem raun ber vitni. En
sjón er sögu ríkari, þegar þeir til við-
bótar við stórflota sína kaupa heila
spilabanka til þess eins að komast yf-
ir skrifstofuhúsnæði!
14