Samvinnan - 01.08.1953, Síða 17
húsi, sem Gunnar Þorsteinsson, húsa-
meistari SIS, hafði teiknað fyrir oklt-
ur á mettíma. A meðan beðið va."
eftir afgreiðslu fjárfestingarleyfisins,
var safnað vinnuloforðum meðal fé-
lagsmanna, reglugerð húsbyggingar-
deildar samin og samþykkt, en fram-
kvæmdir við verzlunarhúsið hófust 9.
september 1952 á lóð, sem landbún-
aðarráðherra, Hermann Jónasson,
hafði úthlutað félaginu.“
„Og hvernig gekk byggingin?“
„Við grófum, steyptum grunn,
hlóðum og reistum húsið á 15 kvöld-
um.“
„Og hvað voruð þið margir við
þetta?“
„I húsbyggingardeild eru samtals
23 menn, en við vorum aldrei allir
að verki í einu. Oftast vorum við 7—
10 að verki á kvöldi.“
„Og hver varð nú kostnaður við
húsið?“
„Allur bókfærður kostnaður við
húsið, þar með taldar innréttingar í
búðina, var samtals um 156 þús.
krónur.“
„Og er húsið 86 m2?“
„Já, í því eru þrjár búðir: Kjöt- og
nýlenduvörubúð, mjólkurbúð og fisk-
búð. I nýlenduvörubúðinni eru einn-
ig seldar ýmiss konar smávörur og al-
gengar vefnaðarvörur, svo að fólk
fær allar sínar nauðsynjar í verzlun-
arhúsi félagsins.“
„Rekur félagið sjálft mjólkur- og
fiskbúðina?“
„Nei. Mjólkursamsalan rekur
mjólkurbúðina, en Jóngeir D. Eyr-
bekk rekur fiskbúðina.“
Vaxandi vöruvelta.
„Og hvernig hefur verzlunin geng-
ið?“^
„Eg held mér sé óhætt að segja
vonum framar, a.m.k. hefur veltan
vaxið stöðugt. Við opnuðum búðina
okkar 29. nóvember 1952 og vorum
viku á undan áætlun þeirri, sem við
gerðum um húsbygginguna og ýms-
um þótti þó æði glannaleg. Fram að
áramótum veltum við 73 þúsundum,
en síðan hefur veltan vaxið jafnt og
þétt og var komin yfir 100 þúsund í
júní.“
„Og hvað viltu nú segja okkur að
lokum um framtíðaráform ykkar?“
„Ekkert annað en það, að ég lít svo
á persónulega, að samvinnuhreyfing-
m hafi hvergi stærri tækifæri í fram-
tíðinni en í þéttbýlinu við Faxaflóa,
einmitt þar sem hún er nú tiltölulega
veikust. Ég býst við, að við félagarn-
ir í Kaupfélagi Kópavogs munum
gera það sem við getum til þess, að
félag okkar þjóni tilgangi sínum á sínu
félagssvæði. Félagsmennirnir hafa
lagt töluvert á sig við að koma félag-
inu upp og þeim er það kært. Vonandi
finnst þeim öllum, að erfiðið við að
koma upp húsinu hafi margborgað sig
með þeirri sönnu og þroskandi á-
nægju, sem uppbyggingarstarfið
veitti. — Og ég segi það fyrir mig, að
ég er forsjóninni innilega þakklátur
fyrir að hafa fengið tækifæri til að
taka þátt í þessu starfi.“
Stjórn félagsins.
I stjórn Kaupfélags Kópavogs eiga
sæti:
Hannes Jónsson. félagsfræðingur,
formaður, Stefán Gíslason, loftsigl-
ingafræðingur, varaformaður, Gísli J.
Ástþórsson, ritstjóri, ritari, Ásgeir
Jónsson, verkstjóri, meðstjórnandi,
Sigurður Ingimundarson, húsgagna-
smiður, meðstjórnandi.
Stjórn húsbyggingardeildar skipa
þessir:
Kristinn Arason, loftskeytamaður,
formaður, Sigurjón Davíðsson, loft-
skeytamaður, meðstjórnandi, Björn
E. Einarsson, raffræðingur, með-
stjórnandi.
Kaupfélagsstjóri er Þorgeir Guð-
mundsson.
Mikið úrval
varahluta
cj£)j’íí//(inu'la r li.L
17