Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1953, Page 21

Samvinnan - 01.08.1953, Page 21
þessa litlu önd, sem syndir þarna niðri í sefinu! Hún er dekkri en þær eru flestar hér á vatninu. Það kæmi mér sannarlega ekki á óvart, þótt hún væri afkomandi litlu, svörtu andarinnar okkar. Og það mátti heyra stolt í rómi gamla mannsins. Þýzk samvinna rís úr rústum (Framh. aj 8. síðu) samvinnufrömuðurinn Dr. Erwin Hasselmann m. a. um þetta efni: Kaupfélög Austur-Þýzkalands lát- ast ekki einu sinni vera hlutlaus í stjórnmálum lengur. Þau styðja kommúnismann opinskátt og allir helztu leiðtogar þeirra eru kommún- istar. Þau taka þátt í „baráttu hinna vinnandi stétta“ fyrir valdi og hlýða öllum skipunum kommúnistaflokks- ins og tækis hans, ríkisins. Kaupfélög- in hafa þannig misst innra frelsi sitt, svo og athafnafrelsi sitt. Þau eru þannig orðin að tryggum þjón hins kommúnistíska ríkis, og kæmi að því, að ríkið segði kaupfélögin vera óþörf, mundu hinir kommúnistísku Ieiðtogar þeirra vafalaust fagna þeirri ákvörð- un og telja hana nauðsynlegt skref til hins „æðri sósíalisma“, eins og gerð- ist í Tékkóslóvakíu og Sovétríkjun- um.“ Dr. Hasselmann segir að lokum: „Hin útþöndu og kommúnistísku hálf-kaupfélög í Austur-Þýzkalandi munu vissulega verða erfið og tor- lej^st vandamál fyrir þýzka sam- vinnumenn, þegar dagur sameiningar- innar kemur, en hann mun vissulega koma.“ 50 ára ajmœli. Þýzku samvinnusamtökin eru þann- ig skipulögð, að sjálf heildverzlun kaupfélaganna, GEG, og samvinnu- sambandið, ZdK, eru aðskilin. Annað annast verzlunarstörfin og iðnaðinn, en hið síðara sér um fræðslu- og fé- lagsmálin, og ásamt undirsamböndum annast það endurskoðun fyrir kaup- félögin. Síðastnefnda sambandið, „Zentral- verband deutscher Konsumgenossen- schaften“, átti 50 ára afmæli fyrr á þessu ári. Var þess minnzt meðal ann- ars með opnun myndarlegs samvinnu- skóla skammt frá Hamborg. Við há- tíðahöldin mætti Agnar Tryggvason, framkvæmdastjóri, fyrir hönd SIS, og færði hinu þýzka sambandi útskorinn fundahamar að gjöf frá íslenzkum samvinnumönnum. Þýzka samvinnuhreyfingin er nú í hraðri framför og nýtur ár frá ári meiri stuðnings þýzku þjóðarinnar. Standa góðar vonir til þess, að sam- vinnuhreyfingin muni leggja fram veigamikinn skerf til viðreisnar lýð- ræðislegs Þýzkalands, og vonandi verður saga þýzku samvinnuhreyf- ingarinnar, og þjóðarinnar allrar, meiri gæfusaga í framtíðinni en hing- að til. (Aðalheimild: Consumers Co-ope- ration in Germany, eftir Dr. Erwin Hasselmann.) Bókabúð Norðra (Framh. af 19. siðu) Bókabúð Norðra hefur verið breytt allmikið undanfarið og hún gerð snyrtilegri úr garði og hentugri fyrir þá, sem vilja koma inn og skoða bæk- urnar, hvort sem þeir finna eitthvað, er þá girnir að lesa, eða ekki. Forstöðu búðarinnar hefur nú Grímur Gíslason, og hefur salan aukizt verulega í seinni tíð. Hún: Sagði Gústaf þér frá því, að hann hefði einu sinni verið trúlofaður mér? Hann: Nei, ekki beinlínis. En hann sagði, að hann hefði gert mörg heimskupör um ævina! o Hann bjargaði sér. Skip kom að Kyrrahafseyju, þar sem mannætur bjuggu. Þegar bátur frá því kom upp á ströndina, beið þar hvítur maður og spurði, hvort báts- menn gætu gefið sér í nefið. Þeir spurðu, hver hann væri. — Ég heiti Andersson, svaraði hann. Ég kom hingað fyrir 15 árum og þeir ætluðu að éta mig. Þá lyfti ég buxna- skálminni frá staurfótnum, skar flís af honum og lofaði höfðingjanum að smakka á mér. Hann lét mig lifa! Gamlir árgangar Samvinnunnar fáanlegir Hér fer á eftir skrá yfir það, sem til er hjá afgreiðslunni af eldri árgöng- um Samvinnunnar, svo og verð þeirra. Afgreiðslan er fús til að kaupa þau hefti, sem vantar í þessa skrá, ef ein- hver væru til Iaus hjá gömlum kaup- endum. Tímarit kaupfélaganna: II. hefti 1897. Tímarit kaupfélaga og sam- vinnufélaga: 1. árg. 1. tbl. 2. — 1., 2., 3. tbl. 3. — 1., 2., 3. — 5. — 1., 2., 3. — 6. — 1. og 3. — Tímarit íslenzkra samvinnufélaga: 11. árg. 1., 2., 3. tbl. 12. — 1., 2., 3., 4. tbl. 13. — 1., 2., 3., 4. tbl. 14. — 18. árg. Allt er út hefur komið. Samvinnan: 19.—40. árg. Allt er út hefur komið. 41. árg. 2., 5.—12. tbl. 42. — 1,—12. tbl. 43. — 1,—12. — 44. — 1.—12. — 45. — 1., 2., 4,—12. tbl. 46. — 1,—12. tbl. Verðskrá: Verð á heilum árg. fram til 45. árg. kr 5.00 pr. árg. Verð á stökum heftum fram til 45. árg. kr. 1.00 pr. hefti Verð á 45 árg. — 30.00 Verð á stökum heftum 45. árg. kr. 2.50 pr. hefti Verð á 46. árg. — 40.00 Verð á stökum heftum 46. árg. kr. 4.00 pr. hefti 21

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.