Samvinnan - 01.08.1953, Side 23
Forustumenn Kaupfélagsins í Kaupmannahöfn í heimsókn
Meðal inargra erlendra samvinnumanna, sem liafa heimsóit Island i sumar og hynnt scr samvinnustarfið hér
á landi, var hópur forustumanna HB, liins volduga kaupféiags Kaupmannahafnar. Komu þeir undir forustu
forstjóra sins, Kaj Nielsen, ferðuðust ailmikið um landið og heimsóttu mörg kaupfélög. — SÍS bauð hinum
dönsku gestum til hádegisverðar, og var myndin að nfan tekin við pað lœkifœri.
Minnst tveggja samvinnumanna
Guðmundur S. Jónsson
á Sveinseyri
Guðmundur S. Jónsson, fyrrum
kaupfélagsstjóri á Sveinseyri í
Tálknafirði, lézt að heimili sínu 6. júní
s.l. eftir nokkurra mánaða sjúkdóms-
legu — á 77. aldursári. Jarðarför hans
fór fram 13. sama mánaðar í Stóra-
Laugardal, að viðstöddu óvenjumiklu
fjölmenni.
Guðmundur á Sveinseyri var um
allt hinn merkasti maður og lands-
kunnur fyrir löngu. Gjörfileik hans
var við brugðið, enda fremsti forystu-
maður sveitunga sinna svo að segja
á öllum sviðum. Opinber starfsferill
hans er miklu fjölþættari en svo, að
hér verði rakinn. Aðeins skal þess þó
getið, að Guðmundur var hrepps-
nefndaroddviti í 46 ár, sýslunefndar-
maður í réttan aldarfjórðung og
hreppstjóri um margra ára skeið, til
dauðadags. Dugnaður hans var hinn
sami við framleiðslustörfin til lands
og sjávar og hin margvíslegustu trún-
aðarstörf, sem á hann hlóðust, og ó-
sérhlífni hans var einstök.
Hér skal þessa drenglundaða, sjálf-
menntaða manns þó fyrst og fremst
minnzt sem ótrauðs brautryðjanda í
samvinnumálum. Á þeim vettvangi
hafði hann borið merki fyrir nágrönn-
um sínum í hálfan fimmta áratug, og
alltaf með sóma. Þegar árið 1908 gerð-
ist Guðmundur einn helzti forgöngu-
maður að stofnun Kaupfélags Tálkna-
fjarðar, tók í upphafi sæti í stjórn
þess og var í henni til hinzta dags.
Öll framkvæmdaforsjá lagðist einnig
strax á herðar Guðmundi, og var hann
kaupfélagsstjóri félagsins í full 30 ár.
Eftir að K. T. gekk í SÍS — og þar
hefur það ávallt verið traustur hlekk-
ur — var hann jafnan fulltrúi þess
á sambandsfundum, glaður og gunn-
reifur og hvers manns hugljúfi, eins
og meðal allra annarra, sem kynntust
honum. Það fylgdi Guðmundi alltaf
andblær hlýrrar karlmennsku og
hressandi glaðværðar. Ekki sízt þess
vegna vildu menn gjarna njóta ná-
vistar hans. Hún veitti í senn upp-
örvun og öryggi. Slíkir menn eru
fæddir til forystu.
B. Þ. Kr.
Jón Hannesson,
Deildartungu
Jón Hannesson, bóndi í Deildar-
tungu, lézt að heimili sínu 12. júlí
s.l. á 68. aldursári. Með honum féll
í valinn einn mesti skörungur og at-
hafnamaður i bændastétt þessa
lands. Lét hann eftir sig mikið starf
í hvers konar framfara- og menning-
armálum.
Jón var um 40 ára skeið starfandi
samvinnumaður og hlaut hann marg-
víslegan trúnað í kaupfélagi síns hér-
aðs og heildarsamtökum samvinnu-
manna. Hann var endurskoðandi
Kaupfélags Borgfirðinga í 17 ár og
sat í stjórn félagsins í 21 ár. Formað-
ur stjórnarinnar var hann í 9 ár, og
þar að auki var hann fulltrúi félags-
ins út á við til margra starfa. Loks
var Jón um árabil varaendurskoðandi
Sambands íslenzkra samvinnufélaga.
Ekki voru verzlunarmál eina sam-
vinnan, sem Jón rtuddi af lífi og sál,
heldur færði hann sömu hugsjón inn
á mörg önnur svið. Má þar fyrst og
fremst nefna samvinnu bænda í Bún-
aðarsambandi Borgarfjarðar, en þar
var Jón meðal forustumanna frá
öndverðu, svo og í ræktunarsam-
bandinu, eftir að það var stofnað.
Lagði Jón mikla vinnu til þessara
samtaka, enda var ræktun landsins
ein æðsta hugsjón hans.
23