Samvinnan - 01.09.1954, Blaðsíða 5
okkur liinn myndarlegasti og fegursti
farkostur. Skipið er í alla staði hið
fullkomnasta og vandaðasta og búið
öllum hugsanlegum hjálpartækjum.
Er það svokallað lokað milliþilfars-
skip, 3250 lestir að stærð og því þriðja
stærsta kaupskip íslendinga. Er það
mjög svipað Arnarfelli að gerð, nema
h\rað hið síðarnefnda er opið milliþil-
farsskip og ber þriðjungi minna.
Aðalvél Helgafells er NOAB 1600
hestafla dieselvél og er búizt við,
að skipið muni ganga 12,2 mílur, en
komst rnest 14,4 í reynsluferð sinni.
Hjálparvélar skipsins eru enskar Ru-
ston vélar. Vindur eru allar frá
Thrige og lyfta tvær 5 lestum en hinar
3, auk þess sem sérstök bóma er fvrir
25 lesta þunga. Lengd skipsins er
271,5 fet og breidd 40,6 fet, en full-
lilaðið ristir það 20,5 fet.
Skipstjóri á Helgafelli er Bergur
Pálsson, sem varð skipstjóri á Hvassa-
felli, aðeins 30 ára gamall og liefur
verið það um sex ára skeið. Er hann
traustur og farsæll skipstjóri, einstakt
prúðmenni og því vinsæll af áhöfnum
sínum. Fyrsti stýrimaður er Hektor
Sigurðsson, sem verið hefur á Jökul-
feli, og annar stýrimaður Ingi B.
Halldórsson. Yfirvélstjóri er Ásgeir
Árnason, sem lengst hefur verið á
Hvassafelli, en þó einnig á öðrum
Sambandsskipum. Alls er áhöfn Helga-
fells 23 menn og er þá tala sjómanna
á samvinnuskipunum komin á antiað
hundrað.
Helgafell kom hingáð drekkhlaðið
af senrenti frá Álaborg, en fór eftir
losun þess vestur um liaf til New York.
Átti skipið að flytja heim matvöru og
bifreiðir aðallega.
Með Helgafelli kom til landsins
ungur skipaverkfræðingur, Óttar
Helgafell á Reyhjavikurhöfn.
Karlsson, sent um fjögurra ára skeið
hefur starfað í Svíþjóð, en hefur nú
verið ráðinn til skipadeildar Sambands
ísl. samvinnufélaga. Er starfsemi deild-
arinnar nú orðin svo umfangsmikil, að
full þörf hefur verið að ráða að ltenni
skipaverkfræðing til að annast öll
tæknileg verkefni varðandi skipin.
Hér sjást þeir fíergur Pálsson, skiþstjóri á Helgafelli, og Hjörtur Hjartar, framkvecmdastjóri skipa-
deildar SÍS.
5